Vikan - 28.05.1964, Side 26
OSKAFERÐ MIN FYRIR
þrír fararstjórar gefa leiðbeiningar
Ingólffur
Kristjánsson
fapapstjópi hjá feröa-
skPifstofunni Sögu
ÍRLAND
öskalandið I ár
Ef ég mætti velja mér óskaferð á
þessu sumri mundi ég kjósa eyjuna
grænu. írland ætti fyrir margra hluta
sakir að vera íslendingum hugleikið,
og þó eru þeir furðu fáir, sem þangað
leggja leið sína, miðað við allan þann
fjölda, sem árlega bregður sér út fyrir
pollinn. Við íslendingar virðumst til
skamms tíma hafa verið furðu tóm-
látir um hagi þessarar grannþjóðar
okkar, sem geymir þó merka forn-
menningu og sögu, sem að allríkum
þætti er tengd okkar eigin sögu, en
sumir fræðimenn telja, að í æðum
þriðja hvers íslendings renni keltneskt
blóð.
Þegar menn leggja upp í ferðalag,
er það að sjálfsögðu mjög undir hugð-
arefnum hvers og einns komið, hvað
fer meðal annars eftir því hvort hann
hann telur girnilegast að fara. Það
vill njóta hvíldar og næðis á kyrrlát-
um og fögrum stað, þráir að kasta
sér út í glaum og hringiðu skemmt-
analífs stórborganna, hvort hann vill
komast um sem flest þjóðlönd á sem
skemmstum tíma — drepa niður fæti
á sem flestum stöðum, eða hvort hann
vill sameina sem mest af þessu í einni
og sömu ferðinni.
Ferðaskrifstofurnar, sem skipuleggja
ferðir fyrir fólk, leitast við að koma
til móts við flest þessi sjónarmið, eft-
ir því sem kostur er, og þó þannig,
að fólk geti fengið sem flestar svip-
myndir úr lífi þeirra þjóða og landa,
sem fp.rið er til. Þó virðist mér helzt
til mikil tilhneiging til þess að teygja
ferðirnar sem lengst, komast yfir sem
mest svæði á skömmum tíma. Þetta
skapar hraða og spennu, sem fólk
í fríi hefur sízt þörf fyrir, því sá
ætti þó að vera höfuðtilgangurinn með
ferðalögunum og fríinu að njóta hvíld-
ar frá hinum þrúgandi hraða hvers-
dagslífsins og starfsins.
Á undanförnum árum, eða frá stríðs-
lokum, hafa íslendingar gert víðreist
og þúsundir manna og kvenna ár-
lega ferðast um flest lönd Evrópu,
allt norðan frá íshafi suður til Mið-
jarðarhafs, en í öllu þessu kapphlaupi
norður, suður og austur, er tíðast
hlaupið yfir Bretlandseyjar, rétt eins
og þær væru ómerkileg útsker, sem
ekki svari kostnaði að koma til. Það
eru margir tiltölulega víðförlir menn,
sem ekki hafa komið til Bretlands,
nema þá í mesta lagi að þeir hafi
haft þar viðkomu á flugvelli eða í
einhverri hafnarborg. Ég álít að eng-
inn þyrfti að láta sér leiðast í 16 til
20 daga ferð, sem einungis væri far-
in til Bretlandseyja. Væri þá hægt að
hugsa sér að flogið væri beint til
Lundúna og 4—5 dögum eytt til þess
að skoða heimsborgina, en síðan yrði
farið með bíl norður England og til
Skotlands og þaðan flugleiðis til
Shannon-flugvallar á írlandi, og væri
þá hæfilegt að helmingi tímans væri
óráðstafað, því að á írlandi og Suður-
eyjum væri áreiðanlega þess vert að
eyða 8—10 dögum.
í bók sinni „Söngvar frá Suður-
eyjum“ segir Hermann Pálsson lektor
meðal annars:
„Ferðamaður um Suðureyjar verður
var við margt, sem annars staðar er
löngu orðið fágætt. Húsaskipun var
áður fyrr mjög einföld, en nýtízku
hús riðja sér nú rúms. Þó er enn
töluvert til að tvídyra kumböldum úr
grjóti, sem tíðkuðust mjög fyrr ....
. . . . Húsin voru venjulega hlaðin úr
hellustcinum, en séð hef ég torfveggj-
um bregða fyrir. Áður fyrr tíðkuðust
hlóðir, og enn eru eldstæði næsta
frumleg í sumum húsum. Sverði er
brennt, enda er nóg um mó í mýrum.
Mataræði er fremur einfalt eins og
tíðkast meðal sveitafólks. Geta má
þess, að þeir eta enn harðfisk og svið
eins og íslendingar. Enn er til, að
haft sé í seli, en þó er sá siður að
leggjast niður . . .“
Það skyldi ekki vera, að við gætum
fundið á írlandi og Suðurleyjum sitt-
hvað af siðum og lífsvenjum, sem nú
eru fjaraðir út á íslandi, og mörgum
kynni að þykja jafn holt og skemmti-
legt að kynnast, eins og sumu í heims-
menningu nútíma þjóðfélaga.
Ingólfur Kristjánsson,
Sögu.
Einar Pálsson
fapapstjóPi hjá
Lönd og leiðip
JT'
ROM - lornar minj-
ar og mikil sól
Þetta mundi ég telja skemmtilega
óskaferð fyrir 18.000 krónur:
Farið verður frá Reykjavík beint til
Rómar og dvalizt þar í mánuð. Óska-
ferð á að sameina tvo kosti: hún þarf
að vera hvíldarferð, en um leið til
gagns og ánægju. í Róm fæst tvennt
sem ekki liggur á lausu alls staðar:
óþrjótandi lindir sagna og fornra
minja og mikil sól fyrir sólardýrk-
endur.
Ég svara spurningu Vikunnar að
sjálfsögðu frá sjónarmiði fararstjór-
ans ,og skulum við nú athuga þetta
nánar. Allir þeir sem fara í ferðir
á vegum ferðaskrifstofu vita, að hinar
svokölluðu „frjálsu“ ferðir heppnast
jafnan bezt. Þetta Þýðir, að ákveðin
er viss dagskrá — sem ekki tekur
meginhluta tímans — og fólkið er
alveg frjálst að öðru lcyti. í Rómar-
fcrðinni, scm hér er getið, mundi ég
gefa öllum þátttakendum algcrt frjáls-
ræði. Það táknar ekki, að þátttakend-
ur mundu sjá minna en þeir sem
þeytast um sex þjóðlönd á tveimur
vikum. Það táknar, að þcir mundu
sjá miklu meira.
Ef cinungis er dvalizt í noklcra daga
á hverjum stað verður fólkið yfirleitt
mjög þreytt snemma ferðar. „Pró-
gramið vcrður of stíft" eins og þetta
er allajafna orðað. Ef dvalizt er á
góðu hótcli í heilan mánuð í borg
cins og Róm, er unnt að fullnægja
óskum allra ferðamannanna. Auðvclt
er að skipulcggja smáfcrðir um borg-
ina og út úr borginnt fyrir hvcrn þann
sem vill, cn hinir, sem vilja heldur
hvíla sig, fara í sólbað eða hitta kunn-
ingja, eru fulikomlega frjálsir ferða
sinna.
Berlínar og Kaupmannahafnar í 18 daga
fyrir 17,940 — 13 daga ferð á Edinborgar-
hátíðina, mcð tveggja daga viSdvöl í Lon-
don fyrir 13,434 — átta dagar í London
fyrir 8,385, og svona mætti lengi telja. AS
visu eru nokkrar ferðir tiltölulega dýrari,
eins og á heimssýninguna í New York, 16
dagar fyrir kr. 18,459, og ævintýraleg ferS
til Kenya í Afríku, sem tekur 21 dag og kost-
ar 36 þúsund krónur.
ÚrvaliS er næstum óþrjótandi, sem sjá má
af því að íslenzku ferðaskrifstofurnar bjóða
í sumar upp á rúmlega 120 mismunandi
hópferðir, allt frá sex daga dvöl i Glasgow,
hálfsmánaðar dvöl á Spáni með eigin húsi
og híl á leigu allan timann, ferð á heimssýn-
inguna og til Miami, — til allskonar ein-
staklingsferða eftir eigin vali, meS svipuð-
um hópferðakjörum.
Ilér yrSi allt of langt mál að telja upp
allar þessar fcrðir, enda liængurinn á að
fá ferðaáætlun hjá einhverri ferðaskrifstofu
og allar upplýsingar. ÞaS er rétt að itreka
það, að jafnvel þótt um ferð einstaklings
sé að ræða, sem ekki vill eða getur farið í
hópferð, þá er sjálfsagt fyrir hann að hafa
samband við ferðaskrifstofu, sem venjulega
getur veitt honum mun betri kjör en hann
gæti annars fengið.
Hér þarf enginn að kvarta lengur yfir
því að fá ekki svipaða jijónustu og bezt ger-
ist erlendis, og má enn benda á þá nýbreytni
Lofleiða, að veita greiðslufrest á flugfar-
gjöldum í allt að heilt ár. Nánari upplýsing-
ar um það eru veittar á öllum ferðaskrif-
stofum.
Og eitt heilræði í viðbót.
Ef þú ætlar í ferðalag, þá skaltu fara til
allra ferðaskrifstofanna hér á landi, og leita
!
2g — VIKAN 22. tbl.