Vikan - 28.05.1964, Qupperneq 28
VIKAN - ferðablað
Á að fara með
bílinn?
„Brosandi síðdegissólin tindrar á gljá-
fægðri vélarhlíf bifreiðarinnar, sem hylur
ómælanlega orku i dauðum málminum, sem
malandi af ánægju þeytir okkur upp snar-
bratta fjallshlíðina á steinsteyptum vegin-
um, en langt, langt fyrir neðan glitrar á
dökkbláan flöt Miðjarðarhafsins, sem vaggar
sér letilega í lieitu logninu, og sendir dæt-
ur sínar til að kyssa mjallhvíta ströndina,
þakta hálfnöktum yngisineyjum, en snjóhvít
og mjúkleg íbúðarhúsin stara blindum aug-
um á lífið og leikinn, ljósið og ljúfsárar
hugrenningar piltanna við ströndina ...
Það springur á hægra framhjóli um leið
og kerran bræðir úr sér í brekkunni, kerl-
ingin bölvar hraustlega afturí yfir helvitis
hitanum, og við' eigum ekki annars úrkosta
en labba sárfætt niður í þangfjöruna, þar
sem sextugar piparjónkur eru skrækjandi
og veinandi að reyna að bleyta á sér tærnar
í skitugu og ísköldu skolpinu frá niðurniddu
og skældu þorpinu, en þar stara tannlausir
karlgapar tómhausa út í loftið úr rúðulaus-
um gluggum leirkofanna.“
Stopp! Hingað og ekki lengra!
Maðurinn, sem skrifaði þetta, hefur greini-
lega orðið fyrir áhrifum frá umhverfinu,
góðum eða vondum, alveg eftir þvi hvernig
billinn hagaði sér. Og svo illa vill fara hjá
fleirum.
Það fylgirt þvi nefnilega tðluverð ábyrgð
og umhugsun að aka sjálfur bíl um ókunn
lönd, og þurfa að treysta á hann alla tíð
og sjálfan sig, hvernig sem á stendur og hvar
sem er.
Jafnvel þótt billinn sé nýlegur og traust-
ur að sjá i alla staði, er aldrei að vita hvað
komið getur fyrir á versta stað. Það er nógu
bölvað, þegar bíllinn bilar hérna heima, og
hreint ekki auðhlaupið að því að koma hon-
um inn á verkstæði. En hvernig haldið þið
að það sé í ókunnu landi, þar sem maður
þekkir engan, og kann kannske ekki nema
þrjú orð í tungumálinu? Það kom einu sinni
fyrir mig að bíllinn minn bræddi úr sér
á átóbananum milli Hamborgar og Bremer-
liaven. Eg ætla ekki að lýsa þvi nánar, en
það munaði ekki miklu að það eyðileggði
alveg ferðina fyrir mér og samferðafólkinu.
Og svo er það þetta eilifðar próblem með
að koma bilnum fyrir á góðum stað yfir
nóttina, þar sem liann er öruggur fyrir
þjófum og skemmdarvörgum — finna park-
eringspláss, ef maður skreppur í búð —
rata réttar götur — íara ekki öfugt um ein-
stefnugötur — rata um landið — fá smurt
— fá viðgerð á smábilunum — koma bíln-
um yfir landamæri í gegn um toll — koma
honum fyrir á ferjum yfir fljót og sund -—
borga brúartolla, ferjutolla, landamæragjöld,
bensín og margt, margt fleira, að maður
tali nú ekki um ekkisens bilinn, ef manni
dettur í hug að fá sér einn eða tvo bjóra
i hitanum!
En auðvitað eru ekki allir eins svartsýnir
og ég enda kannske ástæðulaust. Húrra fyr-
ir bjartsýninni og allt það, og reynið þið
þetta sjálf — upp á eigin ábyrgð.
Svo eru liér nokkrar staðreyndir, sem þið
skuluð moða úr áður en þið leggið af stað.
Flutningur. Það kostar um 3,400 krónur
að flytja venjulegan fólksbíl til Kaupmanna-
hafnar með Gullfossi — og þá þarf farþegi
að fylgja bifreiðinni. Þessi upphæð er fyrir
flutning fram og til baka, —og farþegi báð-
ar leiðir. (kostar aukalega).
Trygging. Það er margt, sem kemur til
greina í sambandi við tryggingar, og kostn-
aður þar af leiðandi misjafn.
í fyrsta lagi er nauðsynlegt að sjótryggja
bifreiðina á leiðinni út og heim með skip-
inu. Ef hveljan er kaskótryggð í forveien,
þá er e. t. v. möguleiki á að fá hana til að
gilda sem sjótryggingu, með því að borga
20% af ársiðgjaldi tryggingarinnar. Þá er
sjálfsáhætta kr. 2,000. — Ef þér hefur aldrei
fundizt það borga sig að kaskótryggja garm-
inn, þá verðurðu að fá þér sérstaka trygg-
ingu, sem kostar 2,5% af verðmæti kerr-
unnar, — sem auðvitað getur aldrei orðið
mikið, miðað við þessa druslu, sem þú átt.
Og svo kemur liður X-12, skyldutrygging.
íslenzk skyldutrygging getur undir engum
kringumstæðum gilt erlendis, og þess vegna
þarf að kaupa hana sérstaklega, sem hægt
er að gera á tvennan hátt:
X-12-A: Kaupa tryggingu sérstaklega í
hverju landi, sem komið er til. Ekki mundi
ég ráðleggja það, ef þú ætlar að liafa ein-
hvern tíma aflögu til að skoða þig um.
X-12-B: Kaupa tryggingu áður en þú legg-
ur af stað. Þá verður þú að gjöra svo vel
að kaupa tryggingu i öllum þeim löndum,
sem þú getur villzt inn í, og þá færðu svo-
nefnt „Green card“, eða „Grænt kort“, sem
mun vera grænt á litinn, eins og gras um
páskaleytið.
En .. . athugaðu nú vel, að i sumum lönd-
um er þess krafizt að þú hafir ótakmarkaða
tryggingu gagnvart þriðja aðila (hvað sem
það svo þýðir), og þá er annaðhvort að
kaupa slika tryggingu yfir allt heila gillið,
eða sortéra þau lönd úr, sem treysta þér
fyrir minni tryggingarupphæð.
Og svo er auðvitað farið eftir þvi hvað
kerran er stór, miðað við hestafjölda, og
þá skaltu biðja fyrir þér ef þú átt Kadillakk.
En ef þú átt 15 liesta kerru, þá þarftu að
borga 25 dollara fyrir ótakmarkaða ábyrgð
i einn mánuð.
Liður Y-64-H: Kaskótryggingu getur þú
liæglega, fengið fyrir allt tímabilið, ef þú
borgar l'yrir það, -— með 50 dala frádrætti
við hvert tjón. Slík tjón innifela brunatjón,
þriðja manns áhættu á mönnum og munum,
— og þjófnað á eigin bíl. (Þetta stendur í
bréfinu, sem ég hefi fyrir framan mig frá
tryggingarfélaginu: Þjófnað á eigin bíl. En
engin útskýring fylgir á því hvernig þú ætl-
ar að stela þínum eigin bil. Það verður þú
að finna út sjáifur.)
Liður Y-64-Z: Bruna á eigin bíl, þjófnað
á eigin bíl, þriðja manns áliættu gagnvart
mönnum og munum.
Hér á eftir birtist svo langur listi yfir
verð liinna mismunandi trygginga, skift nið-
ur i liði frá A-l-A, til Ö-365-Ö.
Nei, annars. Ég lield að ég birti listann
ekki að sinni. Ef þú ert ennþá svo bjartsýnn
að ætla að fara út með beygluna, þá skalt
þú sjálfur hafa fyrir því að tala við trygg-
ingarfélagið — ef það hefur nokkurn áhuga.
Sjálfur ætla ég með flugvél og áætlunar-
bíl, og horfa rósrauðum augum út um glugg-
ann og telja veitingastaðina á leiðinni.
Aths. i fullri alvöru:
Allar upplýsingar um þessi mál, og margt
annað, færðu á skrifstofu F. í. B., Bolholti
ð, Simi 3361i.
i---------------------------------
BEN SÍNVERÐ OG BÍLALEIGA
(Reiknað I ísl. krónum)
Bilaleiga (4-5 manna)
Bensín Grunngj. Pr. ekinn
Land pr. ltr. pr. dag km. Bensín innifalið.
Austurríki 5,31 217 2,60
Belgía 6,40 195 2,60
Bretland 5,85 238 2,17
Danmörk 6,20 174 2,17
Finnland 6,40 281 2,60
Frakkland 8,56 325 3,00
Holland 5,42 227 1,95
írland 6,40 217 2,60
ísland 5,90 350 3,00
Ítalía 5,20 217 3,47
Luxemburg 5,85 260 2,17
Noregur 6,29 173 3,00
Sviss 5,20 238 3,00
Svíþjóð 6,40 217 2,17
Spánn 6,50 435 4,35
I