Vikan - 28.05.1964, Side 38
Fjórum sinnum sterkbyggðari
en venjuiegt er,
og samt fallegur og stílhreinn . ..
Á erfiðustu vegleysum Englands, sem sérstaklega eru notaðar
við athuganir ó endingarþoli brezkra brynvagna, hefur hin
nýia CORTINA að fullu sannað hinn einstæða styrkleika
sinn. CORTINA er gerð fyrir verstu vegi er hugsast getur,
fró rykmettuðum eyðimerkum Ástralíu, um mýrafen Afrískra
regnskóga, til bítandi frosthörku íshafslandanna.
En til að reyna CORTINUNA við enn erfiðari aðstæður en
jafnvel landslag og veðurfar skapa, sendi FORD bílinn í
800 km. miskunnarlausa prófun ó reynslubrautum brynvagna
brezka hersins. Tveir bílar í sama verðflokki, en fró öðrum
framleiðendum, tóku þátt í þolrauninni. Annar varð að
hætta eftir 120 km., en hinn eftir 200 km. Aðeins CORTINAN
lauk við hina erfiðu þraut. Þrátt fyrir styrkleika sinn er
CORTINAN létt og stílhrein í lögun, er rúmgóð fyrir fimm
farþega. Hún er viðbragðsfliót, en eyðir litlu eldsneyti. —
FORD tryggir gæðin. Ennþá eitt dæmi um það borgar sig
að kaupa FORD.
FORDUMBOÐIÐ Á fSLANDI,
SVEINN EGILSSON H.F.
LAUAVEGI 105 - SÍMI 22470.
A G-8-3
V A-K-9-5
♦ 9-6
* K-G-10-7
A K-D-4 N A 10-7-6-5
y 8-7-3-2 G-10
+ G-5 V A ❖ A-8-7-4-3
* B-5-4-2 S * A-D
* A-9-2
V D-6-4
♦ K-D-10-2
* 9-8-3
Allir utan hættu, suður gefur.
Suður Vestur Norður Austur
Pass Pass 1 lauf 1 tígull
2 grönd Pass 3 grönd Pass
Pass Pass *
Útspil tígulgosi.
Það er alkunna, að í stórum
tvímenningskeppnum er oftast
kvennapar, sem sérfræðingarnir
hyggja gott til glóðarinnar að
hressa upp á stigatöflu sína. Þetta
er þó stundum tvíeggjað, þar eð
konur þessar hafa allar sameig-
inlegt, „að geta stundum spilað
þannig, að þær rugli meistarana
í rýminu“ og ef ekki vill betur
til, þá uppskera þær oft góða
skor með sakleysi sínu einu sam-
an.
Konurnar sátu n-s og sérfræð-
ingurinn í austur hugði gott til
glóðarinnar að blekkja sagnhafa.
Hvernig átti hann að vita, að í
ákafanum við að ganga í gildr-
una, snerist allt til góðs fyrir
sagnhafa.
Austur grunaði að sagnhafi
ætti fjóra tígla, þar á meðal K-
D-10, svo að vonin um að setja
spilið niður byggðist á því að
vestur ætti spaðakóng og hjarta-
drottningu. I von um að geta frí-
að tvo spaðaslagi, í viðbót við
væntanlega tvo laufaslagi, þá
drap austur á tígulásinn og spil-
aði spaða. Suður hleypti yfir á
gosann og vestur átti slaginn á
drottninguna. En vestur spilaði
nú spaðakóng og úthlutaði sagn-
hafa þar með tveimur spaðaslög-
um. Um leið sá austur að sagn-
hafi hlaut að eiga hjartadrottn-
inguna, vegna tveggjagranda
sagnar sinnar, og einnig var hon-
um ljóst, að þar með hafði sagn-
hafi fjóra hjartaslagi örugga.
Þeir ásamt þremur tígulslögum
og tveimur spaðaslögum gerðu
níu slagi, og eina vonin var nú
sú, að reyna að freista sagnhafa
til þess að spila upp á yfirslag,
sem getur haft úrslitaþýðingu í
tvímenningskeppnum. Og þegar
sagnhafi spilaði laufaníu og svín-
aði, þá drap austur á ásinn. Hann
spilaði síðan spaða og nú virtist
ekkert eftir fyrir sagnhafa en að
taka laufasvíninguna, sem var
„sönnuð“. Auðvitað myndi austur
þá drepa á drottninguna og fá
síðan fimmta slaginn á spaða-
tíuna.
En í ákafanum gleymdi sagn-
hafi að hún var inni í blindum
og spilaði laufi að heiman. Áður
en vestur gat samþykkt útspilið,
sagði blindur els;ku!lega: „Nei,
elskan, þú átt út úr borði“.
í lögunum segir svo, að ef ann-
ar hvor andstæðinganna bendi
á að sagnhafi hafi spilað út frá
öfugri hendi, þá verður sagnhafi
að spila sama lit frá réttri hendi.
En ef blindur vekur athygli á
brotinu, þá hafa andstæðingarnir
sjálfdæmt í málinu, annað hvort
að krefjast rétts útspils, eða að
taka hinu ranga. Með riddara-
legri kurteisi gáfu varnarspilarn-
ir eftir hið ranga útspil, en sagn-
hafi gat auðveldlega séð tilgang-
inn. Þegar vestur lét lágt, drap
hún á kónginn og vann fjögur
grönd, sem var toppur yfir alla
línuna.
Varið ykkur þegar andstæð-
ingarnir eru óeðlilega gjafmildir.
Varið ykkur ennþá meira á litlu
hræddu konunum. -fc
SIGILDAR
MEÐ (/ MYNDUM
FÁST í NÆSTU
VERZLUN.
_ VIKAN 22. tbl.