Vikan - 28.05.1964, Síða 41
— Þær hafa komiS með því,
a<5 Satan fékk mennina til þess
a<5 gera uppreisn móti Guði.
—- Hann hefur rétt si svona
laumaS henni inn i sköpunar-
verkið.
— Já Adam og Eva voru sköp-
uð án fýsna.
-—- Vesaiings fólkið, ekki hef-
ur það verið spennandi.
— Ef til vill ekki fyrir fólk,
sein viil lifa eingöngu fyrir fýsn-
ir heimsins, annars skil ég ekki
livaS þú meinar.
— Þá sláum viS bara botninn
í þetta, þaS er oft gott aS skilja
sem minnst. ☆
i
Ég hef vanið komur mínar hingað
í um það bil ór, til þess að leita
að skel|um. Ég fann þennan stað
— hún benti með handsveiflu ó
ströndina — fyrir um það bil mán-
uði. Siðast þegar ég kom hingað.
En ég hef fundið marga aðra góða
staði. Það var rétt fyrir jólin að
mér datt í hug að rannsaka ána.
Ég fór alla leið upp með henni
þangað sem fuglamennirnir höfðu
búðir sínar. Þar var allt í rúst. Það
var orðið framorðið og ég ákvað
að vera þar um nóttina. Um miðja
nóttina vaknaði ég. Drekinn var
aðeins fáein skref frá mér. Hann
hafði tvö stór lýsandi augu og
langt nef. Hann var með einhvers-
konar vængi og skott, sem vissi
upp á við. Hann var svartur og
gulllitur. Hún gretti sig þegar hún
sá svipinn á Bond. — Það var fullt
tungl. Ég sá hann mjög vel. Hann
fór alveg hjá mér. Það heyrðist
einhverskonar urr í honum. Hann
fór yfir fenin og að þéttum fenja-
skógi og bara klifraði yfir runnana
og hélt áfram. Stór fuglahópur þaut
upp fyrir framan hann og allt í
einu kom mikill eldur út úr munn-
inum á drekanum og brenndi hóp
af þeim og öll trén, sem þeir höfðu
verið í. Þetta var hræðilegt. Það
hræðilegasta, sem ég hefi nokkurn-
tíma séð.
Stúlkan hallaði sér á hliðina og
rýndi framan í Bond. Svo settist hún
upp aftur og starði út á sjóinn: —
Ég sé að þú trúir mér ekki, sagði
hún reiðilegri röddu. — Þú ert bara
borgarmaður. Þú trúir engu. Uss
og það fór skjálfti um hana.
Bond sagði róandi: — Honey,
það eru bara ekki svona hlutir til
í heiminum, eins og drekar. Þú sást
eitthvað, sem var mjög líkt dreka.
Ég er bara að velta því fyrir mér,
hvað það hefur getað verið.
— Hvernig geturðu vitað, að það
séu ekki til drekar? Nú hafði hann
reitt hana ærlega til reiði. — Hérna
megin á eyjunni býr enginn. Það
getur vel verið að einhver dreki
hafi lifað hér af. Og þar að auki,
hvað veizt þú um skepnur og þess-
háttar? Ég hef búið með snákum
og skordýrum síðan ég var barn.
Alein. Hefur þú nokkurntíma séð
bænamaur éta maka sinn eftir að
þau hafa eðlað sig? Hefur þú séð
mongúsu dansa? Eða hefurðu séð
krabbann dansa? Hve löng er
tungan í kólíbrífuglinum? Hefur þú
nokkurntíma átt uppáhaldssnák,
sem var með bjöllu um hálsinn
og hringdi, til þess að vekja þig?
Hefur þú séð sjávargróðurinn eins
og blómabeð á hafsbotni á nætur-
þeli? Veizt þú að krákan finnur
lykt af dauðri eðlu í margra mílna
fjarlægð? Stúlkan lét spurninga-
skothríðina dynja á honum. Nú
hætti hún til þess að draga and-
ann? Hún sagði vonleysislega: —
Þú ert bara eins og allir aðrir borg-
arbúar.
Bond sagði: — Sjáðu nú til,
Honey. Þú þekkir þessa hluti. Ég get
ekkert gert að því, að ég lifi í
borg. En mér þætti gaman að kynn-
ast því sem þú talar um. En ég hefi
aldrei haft tækifæri til þess. Ég
veit ýmislegt annað í staðinn. Eins
og . . . Bond leitaði í huga sér. Hann
fann ekkert, sem var eins athyglis-
vert og það, sem hún hafði að
segja. Hann lauk við setninguna:
— Eins og til dæmis, að Kínverjinn
hefur sennilega meiri áhuga á
komu þinni núna en nokkurntíma
áður. Að þessu sinni mun hann
reyna að koma í veg fyrir, að þú
komizt burt. Hann þagnaði og bætti
svo við: — Og sama er að segja
um mig.
Hún sneri sér við og leit á hann
með áhuga: — Nú? Hvers vegna?
En það skiptir svo sem ekki máli.
Maður bara felur sig hérna á dag-
inn og fer svo burt á nóttunni. Hann
HÚSGÖGN
SINDRASMIÐJAN
Hveifisgötu 42 — Simi 24064
ORIGINAL VÖRUR
MUNIÐ:
LUO AS C. A. V.
GIRLING
BLOSSI S.F.
Laugaveg 176 — Sími 23285
VIKAN 22. tbl. —