Vikan - 28.05.1964, Síða 42
Umboðsskrifstofur
Loftieiða
á
íslandi
REYKJAVÍK
AKRANES
BORGARNES
STYKKISHÓLMUR
PATREKSFJÖRÐUR
ÍSAFJÖRÐUR
SIGLUFJÖRÐUR
AKUREYRI
HÚSAVÍK
ESKIFJÖRÐUR
HÖFN HORNAFIRÐI
VESTMANNAEYJAR
SELFOSS
HVERAGERÐI
ÞORLÁKSHÖFN
KEFLAVÍKURFLUGVÖLLUR
KEFLAVÍK
Ferðaskrifstofan SAGA, Hverfisgöto 12.
LÖND & LEIÐIR, Aðalstræti 8.
Ferðaskrifstofan SUNNA, Bankastræti 7.
Ferðaskrifstofa ríkisins, Gimli v/Lækjargötu.
Ferðaskrifstofan LANDSÝN, Týsgöto 3.
Ferðaskrifstofan ÚTSÝN, Hafnarstræti 5.
Ferðaskrifstofa ZOEGA h.f., Hafnarstræti 5.
Magnús Guðmundsson, fulltrúi, c/o Haraldur Böðvarsson.
Þorleifur Grönfeldt, c/o verzlunin Isbjörninn.
Árni Helgason, póstmeistari, Höfðagötu 27.
Ásmundur B. Olsen, kaupmaður, Aðalstræti 6.
Árni Matthíasson, umboðsm., Silfurtorgi 1.
Gestur Fanndal, Suðurgötu 6.
Jón Egilsson, forstjóri, Túngötu 1.
Ferðaskrifstofan SAGA h.f., Skipagötu 13.
Ferðaskrifstofan LÖND & LEIÐIR, Geislagötu.
Ingvar Þórarinsson, bóksali.
Ingólfur Hallgrímsson, Umboðsverzlun.
Kristján Imsland, kaupmaður.
Jakob Ó. Ólafsson, skrifstofustjóri, Faxastíg 1.
Gunnar Jónsson, fulltrúi (KÁ), Skólavöllum 6.
Valgarð Runólfsson, skólastjóri.
Magnús Bjarnason, c/o Vörugeymslur S.Í.S.
Loftleiðir, c/o Júlíus Guðjónsson.
The American Express Co. Inc.
Kristján Guðlaugsson, við Víkurbraut.
loftleidis landa milli
Ofangreindir umboðsmenn Loftleiða annast útvegun farseðla og veita
allar upplýsingar um ferðir félagsins. Væntanlegir farþegar
geri svo vel að hafa samband við umboðsmennina eða
hefur sent hundana á eftir mér og
jafnvel flugvél. En hann hefur ekki
náð mér samt. Hún horfði rann-
sakandi á Bond og áhugi hennar
hafði vaknað á ný: — Ert það þú,
sem hann vill ná í?
— Ja, ég býst við því. Við komum
hingað í nótt, felldum seglin um það
bil tvær mílur úti, svo að við sæj-
umst ekki á radarskermunum hjá
þeim. Eg býst við að Kínverjinn hafi
búizt við því, að ég mundi heim-
sækja hann. En þú komst alla leið
upp að rifunum, með seglin uppi
og hann hefur fengið skýrslu um
það, og ég þori að veðja, að hann
hefur haldið, að kanóinn þinn væri
minn. Ég held að það sé rétt, að
ég fari og vekji hann kunningja
minn, svo að við getum spjallað
um þetta. Ég er viss um að þér
semur ágætlega við hann. Hann
er frá Caymaneyjum og heitir
Quarrel. Stúlkan sagði: — Mér þyk-
ir leitt ef . . . Hún sagði ekki meira.
Það var ekki svo auðvelt að afsaka
sig úr því sem komið var. — En
ég gat ekki vitað þetta. Hún horfði
rannsakandi í andlit honum.
Bond brosti inn í blá spurnar-
augun. Hann sagði hughreystandi:
— Auðvitað ekki. Þetta var aðeins
óheppni — fyrir þig líka. Ég býst
ekki við að hann hafi miklar
áhyggjur út af einmana stúlku sem
kemur til þess að safna skeljum.
Þú getur verið viss um að þeir
hafa fylgst vel með þér, að minnsta
kosti fótaförunum, og séð hvað þú
hefur haft fyrir stafni. Hann benti
á skeljarnar á ströndinni. — En ég
er hræddur um að hann hafi aðra
skoðun á mér. Hann reynir áreiðan-
lega að ná mér með öllum tiltækum
ráðum. Ég er bara hræddur að hann
veiði þig líka í netið í leiðinni. En
— og hann brosti hressilega — við
skulum vita hvað Quarrel hefur að
segja. Bíddu hér.
Hann reis á fætur. Hann gekk
upp eftir ströndinni og upp á barð-
ið fyrir ofan. Quarrel hafði falið
sig vel. Það tók Bond fimm mínút-
ur að finna hann. Hann lá í grösugri
lægð milli tveggja, stórra kletta,
hálffalinn undir hrúgu af gráum
þara. Hann var enn í fastasvefni
og hvíldi höfuðið á öðrum fram-
handleggnum. Bond blístraði lágt
og brosti, þegar augu Quarrel opn-
uðst. Það var eins og dýr sem að
hrekkur af værum blundi. Svo kom
Quarrel auga á Bond og reis á
fætur. Það var sektarvitund í hreyf-
ingum hans. Hann nuddaði and-
litið með hrömmunum eins og hann
væri að þvo það.
— Góðan daginn, kapteinn, sagði
hann. — Það var nú ekkert smá-
vegis, sem ég svaf fast. Þessi kín-
verska stelpa kom til mín í nótt.
Bond brosti: — Það var svolítið
annað hjá mér, sagði hann. Þeir
settust niður og Bond sagði hon-
um um Honeychile Rider og skelj-
arnar hennar og klípuna sem þau
voru komin f. — Og nú er klukkan
orðin ellefu, sagði hann að lokum
og við verðum að gera nýtt skipu-
lag.
VIKAN 22. tbl.