Vikan


Vikan - 17.09.1964, Blaðsíða 32

Vikan - 17.09.1964, Blaðsíða 32
Nýtízku straujárn er létt — sem allra léttast — því að j>að er hitinn — réttur hiti — en ekki jjyngdin, sem straujar. FIAMINGO straujárnið er fislétt — aðeins 800 grömm — hitnar og kólnar fljótt og hefur hárnákvseman hitastilli, ásamt hitamsali, sem alltaf sýnir hita- stigið. Stilling fyrir "straufrí" efni. Truflar hvorki útvarp né sjónvarp. Inn- byggt hitaöryggi. Lögun og léttleiki FLAMINGO gerir j>að leik einn að strauja blúndur, leggingar, kringum tölur og annað, sem hingað til hefur þótt erfitt. FLAMINGO straujárn eru falleg — hreint augnayndi — og fást krómuð, blá, gul og rauðbleik. Einnig fyrir vinstri hönd. FLAMlNGO úðarinn úðar tauið svo fínt og jafnt, að hœgt er að strauja |>að jafnóðum. Sem sé: gamaldags steink- un og vatnsblettir eru úr sögunni. Uðaranum fylgir hanki fyrir glas og úðabyssu. Litír: svartur, blér, gulur, rauðbleikur. FLAMINGO snúruhaldari heldur straujárnssnúrunni á loftí, svo að hún flækist ekki fyrir. FLAMINGO gjafakassit straujám og úðari. FLAMINGO straujám, úðari og snúruhaldari eru hvert í sínu lagi — og eldd síður saman — kjörgripir, sem vekja spurninguna: Hvemig gat ég verið én f>eirra ? FLAMINGO: fyrir yður! - FLAMINGO: falleg gjðfl ÁBYRGÐ - Varahluta- og viðgerðaj>jónusta. O.KORME SUÐU3GOTU R E Y K J A V I K PÖNTUIM Sendið undirrit. i póstkröfu: ....stk. FLAMINGO straujárn...............litur: .... stk. FLAMINGO úðara . ................Utur: ....stk. FLAMINGO snúruhaldara kr. 498,00 kr. 266,00 kr. 82,00 stk. FLAMINGO gjafakassa..................litur: ........... kr. 754,00 Nafn ... HeimiU hijpfoap Stjörnuspáin gildir frá fimmtuðegi til fimmtudags. Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Þú skalt ekki leggja út í neina óvissu í þessari viku, vegna þess, að á einu sviði leikur lánið allt annað en við þig. Einn vinur þinn gerir þér ómetanlegan greiða. Fimmtudagur verður bezti dagur vikunnar. Skemmtu þér ekki mikið. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Þetta verður vika mikiUar hamingju á flestum svið- um. Þó er hætt við, að eitthvert smáatvik eigi eftir að valda þér einhverjum áhyggjum. Þú ferð í skemmtilegt samkvæmi um helgina, þar sem þú kynnist persónu, sem þú átt eftir að umgangast töluvert. Tvíburamerkið (22. maf — 21. júní): Líklega verður þessi vika ekki á allan hátt eins og þú hafðir gert ráð fyrir. En ekki skaltu kvíða neinu, því þetta verður yfirleitt hin ánægjuleg- asta vika. Eitthvert kvöldið gerist það, sem þú hef- ur lengi beðið eftir. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Þú gerðir eitthvað í vikunni sem leið, sem kom félögum þínum afar illa, og það finnur þú vafa- laust á framkomu þeirra í þessari viku. Þú get- ur líklega ekkert við þessu gert — það verður ekki aftur tekið. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): ©Þú munt eiga skemmtilegt stefnumót í vikunni, og ef vel á að fara, verður þú að sýna fyllstu tillitssemi og kurteisi. Þú ert dálítið viðkvæmur fyrir gagnrýni þessa dagana. Mundu, að hana verða allir að þola. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): 0Þú hefur einn vina þinna fyrir rangri sök, og er leiðinlegt til þess að vita, en úr þessu rætist samt nú f vikunni. Það ber dálítið á þrjózku í fari þínu þessa dagana og verður þú að reyna að venja þig af þeim ósið. Vogarmerkið (24. september — 23. októbcr): Þú virðist alltof svartsýnn þessa dagana, og það mun koma í ljós innan tíðar, að svartsýni þín hefur verið algerlega ástæðulaus. Að vísu mun ekki allt ganga sem bezt á mánudaginn, en það mótlæti á eftir að kenna þér mikilvæga lexíu. Drekanierkið (24. október — 22. nóvember); Þú munt eiga mjög annríkt í vikunni, og hætt er við, að þú ráðir alls ekki fram úr því, sem til er ætlazt af þér. Leggðu samt ekki árar í bát, þín þíða rólegri vikur. Þér græðist töluvert fé, skyndilega og óvænt. Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. desember): ©Þú munt eiga óvenju annríkt í vikunni, svo að þú getur naumast gert þér vonir um frístundir. Ef þú verður að velja milli skyldustarfa og áhuga- mála, skaltu fyrir alla muni láta skylduna ganga fyrir. Heillalitur er rautt. Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Þú tekur miklum framförum á vissu sviði í þessari viku, og getur þetta orðið til þess, að þér bjóðist tækifæri, sem er mjög gimilegt. Þú skalt þó ekki taka því, nema þú sért viss um að hafa tíma til að sinna því. Það er varasamt að hafa mörg járn í eldinum. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Þetta verður í flesta staði þægileg vika, ef þú lætur ekki undan freistingum, sem bíða þín, og allt bend- ir til, að þú hafir viljaþrek til að standast þær. Líklega gerist eitthvað í vikunni, sem breytir áform- um þínum nokkuð. í sambandi við búferlaskipti gerist eitt- hvað mjög ánægjulegt. ©Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Ekki verður með vissu lesið úr stjörnunum, hvað þessi vika ber í skauti sinu. Þó virðist hún verða allt annað en venjuleg. Ýmislegt bendir einnig til, að þú eigir eftir að táka persónulegum sálarlífs- breytingum í vikunni. Heillatala ungs fólks er 4. «1: wötax ií, sutu>«etu io.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.