Vikan


Vikan - 17.09.1964, Blaðsíða 37

Vikan - 17.09.1964, Blaðsíða 37
alveg sjálfsagður. Þau taka bog- ann hvert á eftir öðru, en ég sé um hitt. Margrét á lika tvö uppáhaldslög, sem hún spilar á pianóið með einum fingri allan ársins hring, Gamla Nóa og Heims um ból — árstíðir skipta engu máli. — Eru þetta ekki músíkölsk- ustu börn í heimi, Einar? — Nei, til allrar hamingju eru þau alveg eins og önnur börn, en langt frá því að vera ómúsík- ölsk. — Ætlarðu að láta þau læra? — Það á enginn að „láta“ börnin sin læra á hljóðfæri — eitthvað það vitlausasta, sem fólk getur gert, er að þvinga börnin sin til þess að „læra að spila“, þegar áhugi er ekki fyrir hendi. Vilji börnin mín læra að spila, þá er það velkomið. — En að lokum, Einar. Hvern- ig er að hverfa frá starfinu hér og byrja annarsstaðar? — Sjáðu til. Ég er alltaf í slæmu skapi, þegar ég kem heim af æfingum eins og svo margir kollegar mínir enda ekki að á- stæðulausu. Konan min heldur að þetta lagist, þegar ég komi út! í alvöru talað. Við áttum í tölu- verðu sálarstríði satt að segja. Við ætluðum að fara að byggja draumahúsið suður i Garða- hreppi, en það verður nú vist ekki úr því að sinni. Það er slæmt út af fyrir sig, en verst jiykir mér að þurfa að fara burt frá skólanum. Ef ég hef einhvers- staðar skotið rótum, þá er það í Tónlistarskólanum. Ég get ekki að því gert, en méh jiykir hálft i livoru,. eð ég sé að svikjast undan merkjum, jjegar ég fæ árs leyfi frá Tónlistarskólanum. Eitt máttu hafa eftir mér: Ég kem til með að sakna nemenda minna hér. Ég vona að ég hitti j)á aftur. JÞM ALTARISGANGA Framhald af bls. 15. því að haga mér betur í fram- tíðinni". ,,Og ætlar þá ekki að hitta hann framar?" „Hitta? Má ég ekki hitta hann einu sinni?" „Jú, — einu sinni. Þú verður að segja honum að öllu sé lokið milli ykkar, og síðan verður það að standa eins og stafur á bók". „Jæja, þá það. Eg vil allt til vinna að þessu sé lokið. Ég skal tala við hann eftir matinn í kvöld. Ég veit að hann skilur mig". Kári var glaður í skapi, þegar hann lagði af stað seinna um kvöld- ið til Fanneyjar. Hann hlakkaði til að hitta hana aftur eftir langan að- skilnað, og flýtti sér í rökkrinu eftir mannlausri götunni. Leiðin lá framhjá kirkjunni, sem ALLIR DÁSAMA Þér ættuö að líta á DAF, ef þér viljið eignast þægilegan, spar- neytinn, fallegan, sjálfskiptan bíl. t....... SÖLUUMBOÐ: Vestmannaeyjar: Már Frímannsson. Akureyri: Sigvaldi Sigurðsson, Hafnarstræti 105. S. 1514. SuSurnes: Gónhóll h.f., Ytri-Njarðvík. Akranes: Gunnar Sigurðsson. Borgarnes: Bíla- og trésmiðja Borgarness h.f. Sauðárkrókur: Arni Blöndal. er sjáífskiptur - aðeins henzínstig og bremsur DAF ER MEÐ LOFTKÆLD VÉL, EN ENGAN GÍRKASSA EÐA GÍR- STÖNG, AÐEEN5 BREMSUR, BENSÍN-STIG OG STÝRI. - DAF BÍLL- INN ER FALLEGUR, KRAFMIKILL OG ÓDÝR. - DAF ER ÞEGAR EFTIRSÓTTUR OG VIÐURKENNDUR, AF ÖLLUM, SEM TIL HANS ÞEKKJA. Klippið hér ----------------------- | Gjörið svo vel að senda mér myndalista og allar upplýs- | ingar um DAF-bifreiðir. I | Nafn:...................................................... ! I Heimili:................... VIKAN 38. tbl. 37

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.