Vikan


Vikan - 17.09.1964, Blaðsíða 44

Vikan - 17.09.1964, Blaðsíða 44
nokkur augnablik. Svo fór hann smótt og smátt að skilja, og loks rann upp fyrir honum hin djöful- lega kænska Ordneszky. Hann skildi loks að hann hafði tapað. Það væri alveg sama hvað hann segði við þessa menn, hvað hann segði við sýslumanninn, kunningja sína — eða Fanney. Það mundi enginn lifandi maður trúa sögu hans. Menntamanninum, heiðurs- manninum fórnfúsa, sálfræðingnum bæklaða, Ordneszky mundi trúað til dauðadags. Og Fanney væri honum glötuð að eilífu ... ★ SKÆÐUR KEPPINAUTUR Framhald af bls. 25. menn i New York höfðu veitt fyrirtæki Rockefellers vaxandi athygli og fengu nú áhuga á þvi svo um munaði. Þau hv'öttu liann til að mynda hlutafélag. Með þátttöku þeirra var siðan mynd- að hlutafélagið Standard Oil i janúar árið 1870. Standard Oil keypti fyrirtæki Rockefellers og félaga hans fyrir 450 þúsund dollara. Þannig skipulagt réði Standard Oil yfir tíunda hluta allrar olíuhreinsunar í Banda- ríkjunum. Jafnframt voru gerð- ir nýir samningar við járnbraut- arfélögin um cnn lækkuð flutn- ingsgjöld. Eftir það gat enginn staðizt Standard Oil snúning. „Þetta voru dagar mikilla á- hyggna og amsturs,“ sagði eigin- kona Rockefellers síðar. En þeir stóðust samt engan samanhurð við það sem á eftir kom, er eig- inmaður liennar .Tohn D. Rocke- feler varð hataður um öll Banda- ríkin, úthrópaður einokunar- sinni og hundcltur af stjórnar- völdum og afbrýðisömum keppi- nautum með aðstoð daghlað- anna. Þeir tímar mörkuðu þátta- skil í fjármálalifi Bandarikjanna. Framhald í næsta blaði. Morg o g mömmuleikur. Framhald af b!s. 19. fang hennar. Eru þessar upplýsing- ar dollaranna virði?" „Sendi þá tafarlaust," varð mér að orði. Þokunni hafði létt um kvöldið, þegar ég hringdi dyrabjöllunni hjá þeim Bradshaw-mæðginum; frú Bradshaw kom til dyra sjálf og mér virtist hún hafa elzt ótrúlega frá því ég sá hana síðast. „Sonur minn hefur nú verið fjarverandi í þrjá sólarhringa," sagði hún, „og ekkert látið til sín heyra. Hvað haldið þér að hafi getað komið fyrir hann?" „Þá spurningu vildi ég gjarnan ræða við yður undir fjögur augu, frú Bradshaw." Hún vísaði mér inn í litla setu- _ VXKAN 38. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.