Vikan

Tölublað

Vikan - 14.04.1965, Blaðsíða 30

Vikan - 14.04.1965, Blaðsíða 30
Ég veit um einn Færeying, sem væri kannske fær um þetta, og best gæti ég trúað því að þið hefðuð krækt í hann. Og þannig fór með sjóferð þá. Vélin er semsagt ekki ennþá komin í gagnið og er á tilrauna- stigi, þótt vitað sé að hún vinni verk sitt óaðfinnanlega, þá eiga þeir eftir að snurfunsa hana á ýmsan hátt, treysta hana, gera hana ódýrari í framleiðslu og svo framvegis. Síldarflökunarvél. Og enn eru þeir með eina vél í viðbót, félagarnir Haraldur og Gísli. Að vísu er ekki hægt að segja að hún sé að öllu leyti upp- finning Haraldar, en víst er að geysimiklar endurbætur hafa þeir gert á henni. Frumkvæðið að vélinni á norskur maður, Kloster að nafni, og ber vélin nafn hans. Þetta mun vera hag- leiksmaður mikill, orðinn aldr- aður og hefur lítið verkstæði heima hjá sér. Hann smíðaði síldarflökunarvél og seldi víða, og eru til nokkrar hér á landi, sem keyptar voru af honum. Haraldur og Gísli hafa nú endur- bætt hana og umsmíðað, svo heita má að aðeins tveir hlutir séu þeir sömu eða svipaðir og í þeirra upprunalegu. Vélin flakar um 100 síldar á mínútu hverri og skilar vel unnu verki — vel sambærilegu og jafnvel fallegri flökum en aðrar viðurkenndar flökunarvélar. Þessi vél þeirra er nú í notkun víða á landinu, og til sanninda- merkis um traustleika hennar, segja þeir að á einum tilteknum stað hafi hún verið notuð í tvö ár samfleytt án þess að kvartað hafi verið, né bilun hafi komið fram. Vélin kostar 240 þúsund, og vinnur fyrir sjálfri sér á skömmum tíma, ef vel gengur með síldveiðina. * Flugvél til lóðrétts flugs og lendingar Framhald af bls. 12. og skroppið á skíði með alla fjöl- skylduna upp á Vatnajökul um helgar. Þá mundu Kópavogsbúar heldur ekki lengur þurfa að kvarta yfir því að farþegavélar skríði yfir húsþökin hjá þeim. Einar vann að þessari hug- mynd sinni og fékk svo mikið traust á henni, að hann lagði í það að fara að smíða eina slíka sjálfur. Að vísu ekki fullkomna flugvél, heldur nokkurskonar til- raunatæki, til að sannreyna hvort hugmynd hans væri ekki rétt. Hann fékk inni í stórum bragga suður á Reykjavíkurflugvelli, og hóf smíðina. Hann sauð saman grind úr léttum málmrörum, út- vegaði sér einhvernvegin tvo flugvélahreyfla, sem hann setti á grindina, smíðaði síðan loft- rásir og hlíf utan um vélina úr krossvið. Þetta tók auðvitað óra- langan tíma og kostaði margra mánaðakaup, en loks þóttist hann tilbúinn og bauð ýmsum áhuga- mönnum og áhrifamönnum þang- að suðureftir að að sjá, þegar hann reyndi vélina. Sjálfur var hann viss um að vélin mundi fara á loft, og það var í raun og veru aðalatriðið. En hann vissi líka að engin stjómtæki voru á vélinni, og að hann gæti þessvegna ekki stjórn- að henni eftir að hún væri kom- in á loft. Slíkt gæti síðar kom- ið. Þessvegna tók hann það ráð til öryggis, að hann batt vélina niður með fjórum köðlum, svo hún færi ekki upp fyrir ákveðna hæð. Á kaðlana setti hann svo mæla ,til að mæla lyftiaflið. Áhorfendur voru mættir, vél- inni var ýtt út úr bragganum og Einar setti í gang. Ég hef ör- uggar heimildir fyrir því að vél- in tók sig á loft og rykkti í bönd- in. Að vísu sitt á hvað og sýni- legt að Einar gat lítið sem ekkert stjórnað henni, en staðreynd samt að hún fór upp. Beint upp. Sjálfur segir Einar — og það er engin ástæða til að rengja — að vélin hafi lýft þunga, sem sam- svarar 750 kg. Nú er það augljóst mál, að jafn- vel einn hreyfill á venjulegri flugvél getur lyft slíkum þunga. En sú vél fer heldur ekki beint upp. Á slíkri flugvél eru líka öll nauðsynleg stjórntæki og löng reynsla að baki um það hvernig bezt sé að nýta vélaraflið. Ég held líka að það þurfi ekki fag- mann til að álykta að venjuleg eins hreyfils þyrla geti lyft meiri þunga. En þetta veit Einar líka, og efast ekki um að báðar þess- ar gerðir véla hafi sitt notagildi. En mergurinn málsins er sá, að hann var með nýja aðferð til að lyfta flugvél. Nýja tegund. Nýtt kerfi. Hans vél fór beint upp og beint niður. Til þess þurfti hún mikið vélarafl. Þegar upp væri komið, mundi sennilega hægt að minnka aflið og spara eldsneyti. Sú var í það minnsta hugmynd Einars. En vélin fór aldrei hærra en þetta. Satt bezt að segja þá fór vélin aldrei á loft eftir þetta. Einar var kominn í fjárþröng og gat ekki meira í bili. Kröfuhaf- ar létu læsa bragganum og inn- sigla, svo Einar komst ekki þang- að inn aftur. Síðan var reynt að selja vélina á uppboði, en eng- inn vildi kaupa. Þessu ævintýri lauk með því að hreyflarnir voru teknir úr vélinni, en grindin sett út á guð og gaddinn og mun vera þar enn í litlu yfirlæti. En þó hafði Einar nokkuð fyr- ir sinn snúð. Einhverjir áhuga- menn á Keflavíkurflugvelli höfðu spurnir af þessu og létu Sikorsky verksmiðjurnar í Bandaríkjunum vita. Það fór svo að þær skrifuðu honum bréf og buðu honum þangað. Hann tók boðinu, en kom við í Washington til að leggja inn umsókn um einkaleyfi. Svo fór hann til Sikorsky. Þeir tóku honum opnum örm- um og hófu mál sitt með því að bjóða honum 50 dollara fyrir uppfinninguna. Einari fannst það lítið og afþakkaði gott boð. Þeir sögðu að þetta væri alls ekki svo slæmt, miðað við almennan markað á slíkum uppfinningum, og sérstaklega þegar eftir væri UtfGFRÚ YNDISFRÍÐ koníckt f rá K Ó A. HVAR ER ÖRKIN HANS NOA1 [tat stnl lclkurlnn 1 hénnl Yní- Hte heftir íaII8 8rktns han« ibiðár f 'blaðlnu cg heltlr iumlutnaa fcelm, «em getur YertUunln eru stír kon- táíttt U hezts konfektl, og ðtnx er aujfrtUS smlctetsgert- Vifa miáM QSSZ CfSte ÚiHfc SfDast er OregfS var Uont VMffiUBrtu Lára Herbjörnsdóttir, Ásgarði 63, Reykjavík. Vinninganna má vitja í skrifstofu Vikunnar. 15. tbl. að vinna við uppfinninguna og rannsaka hana kannske árum saman. En hann sat við sitt. Svo komu þeir aftur seinna og hækkuðu boðið upp í 80 dali. Hann neitaði aftur. Enn komu þeir og buðu 150. Enn neitaði hann. Og svona gekk þetta koll af kolli, þangað til þeir voru komnir upp í 1.800 dali. Einar afþakkaði enn boðið — og þar við sat og situr enn. Meðan á þessu stóð vann hann hjá fyrirtækinu á teiknistofu þess. Launin voru lítil, segir hann, og þegar ég spurði hann hvað hann hefði verið að teikna og hvort hann hefði gert þar ein- hverjar uppfinningar, sagði hann að það hefði verið tekið fram í launasamningnum að hann mætti ekki segja frá neinu slíku. í samningnum var líka tekið fram, að allar uppfinningar, sem hann kynni að gera þar, væru eign fyrirtækisins. Þarna vann hann í um það bil eitt ár, en fékk þá vinhutilboð frá The Republic Aviation Cor- poration. Þeir buðu betri laun og þar var hann næstu 3—4 Órin, Líka á teiknistofunni allan tim- ann. Þegar heim kom fékk hann sér fyrst atvinnu á sjónum, því hann er vélstjóri eins og áður er sagt, en fór síðan til Hitaveitu Reykja- víkur og hefur verið þar síðan. En allar frístundir notar hahn ennþá — og mun vafalaust gera ’— til að vinna að uppfinningum sínum á sviði flugmála. Hann hefur fengið tvö Banda- rísk einkaleyfi, annað fyrir vél- inni, sem áður er lýst, en hitt er fyrir lendingarpalli flugvéla. Sá pallur á að geta tekið á móti hvaða flugvél, sem er, — segir Einar — ef hún er sjálf út- búin á vissan hátt. Pallurinn er ætlaður fyrir vélar, sem geta lent lóðrétt niður á pallinn, en hans hlutverk er fyrst og fremst að taka á móti þeim geypilega loftstraumi, sem kemur frá út- blæstri hreyflanna. Nú er Einar að sækja um einkaleyfi fyrir flugvélinni, sem teikningin er af hér í blaðinu. Satt að segja er það einmitt teikningin, sem fylgir umsókn- inni. Einra hugsar sér að vélin taki sig á loft með þeim hætti að vængurinn er látinn vísa upp á við Skrúfublöðum hreyfilsins er þá snúið þannig, að hann blæs lofti undir vænginn að framan, og jafnframt eftir loftrás, sem veitir nokkrum útblæstri aftur úr vélinni — og niðurávið. Með þessu móti segir Einar að vélin eigi að hefja sig á loft. Þegar vélin er komin á loft, má breyta skurði vængsins þannig að hann veiti nokkra lyftu, jafn- framt því að hreyfillinn ýtir vél- inni áfram. í fullri hæð er væng- urinn settur í lárétta stöðu og skrúfublöðunum snúið við, svo 2Q VIKAN 15. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.