Vikan - 14.11.1968, Qupperneq 5
í september og október síð-
astliðnum dvaldi hér á landi
hópur í'ranskra vísindamanna
við háloftarannsóknir. Mun
þetta vera fjórða árið í röð
sem Frakkar senda hingað
menn til slíkra rannsókna.
Mafði hópurinn bækistöð í
Loftleiðahótelinu, þar sem
einu herbergjanna var breytt
í rannsóknastofu fyrir þá.
Rannsóknirnar fóru fram
með loftbelgjum, sem send-
ir eru ui>p í allt að þrjátíu
og fimm þúsund metra hæð.
Tilgangur þeirra er fyrst og
fremst athuganir á röntgen-
geislum í háloftuniun, norð-
urljósum og áhrifum frá sól-
árstormum. AMs munu um
þrjátíu belgir hafa verið
sendir upp að þessu sinni.
Neðan í loftbelgina eru
liengdir kassar með mæli-
tækjum. Eru kassarnir úr
frauðplasti til varnar gegn
kuldanum. Mælitækin senda
frá sér merki meðan belgur-
inn er á lofti, en í honum er
sjálfvirkur útbúnaður sem
eyðileggur belginn þegar
hann er búinn að gera sitt
gagn og breiðir jafnframt út
fallhlíf, sem kemur mælitækj-
unum óskennndum til jarð-
ar. Belgirnir eru allt að fimm-
tán þúsund rúmmetrum að
stærð.
Stofnun sú er gerir leið-
angurinn út er geimrann-
sóknastofnun Frakka, sem
gengur undir skammstöfun-
inni CNES, en þetta gerir
CNES á vegum annarrar
stofnunar, GER, sem sér um
rannsóknir á geislavirkni.
☆
.
'
: '■ '. :. > '• ■'■■■;.
Fjörir af fimm leiðangursmönnum,
Jouan, Heristsji, Pagnier og Bidau á
þaki LoTtleiðahótels, þar sem þeir
höfðu aðstöðu til ýmissa athugana.
Ballóhinn reiðubúinn til flugs sunnan
við flugskýiið. Tækin sem neðan í
hann eru hcjigd eru inetin á þúsund
dollara.
Hér er verið að gera belginn klár-
ann fyrir flugið. Frakkarnir segja að-
stæður til slíkra rannsókna mjög hag-
stæðar sem nyrzt á hnettinum, enda
hafa þeir stundað þær víðar á norður-
slóðum. til dæmis í Kiruna í Norður-
Svíþjcð og í Finnlandi.
45. tbi. VIKAN 5