Vikan


Vikan - 14.11.1968, Síða 10

Vikan - 14.11.1968, Síða 10
þeim mun þverari og þrjózkari verður hann í uppreisn sinni. Hann er heiftúðugur og langræk- inn og situr stöðugt um að koma fram hefndum fyrir mótgerðir, sem hann hefur einhverntíma orðið að þola. Mæti hann misskilningi og leiðindum í bernsku, æsir hann sig upp í þrjózku og sérsinni, og eiga ýmist göfugar eða lágar til- hneigingar þátt í því. Hann fyrir- lítur þá siði og venjur samfélags- ins og sækir í allt það sem ó- hreint er, hræðilegt og vonzku- fullt. Hatrið fyllir sál hans og verður að djöfullegri ástríðu eft- ir að spúa eitri og eimyrju allt umhverfis hann. Svo slæmt verður það að vísu sjaldan, en betra þó að vera við því búinn. Því ef sóknarafl skorpíónsins, sem er ekkert smá- ræði, beinist ekki að göfugum markmiðum, kemur það fram í grófum hroka og uppivöðslu. Skorpíónninn lætur ekki buga sig. Enginn kann betur nei að segja en hann, og viljastyrkur hans byggist á því að geta boðið andstæðingnum hornin, eða rétt- ara sagt broddinn. Aldrei er hann baráttufúsari og harðsnúnari en þegar hann mætir hindrun, sem öðrum virðist ef til vill erfið og óyfirstíganleg. Ákvörðunum hans verður ekki breytt, og hann læt- ur sér fátt um finnast þótt þær komi hart niður á saklausum. Hann verður vinur manna eða óvinur við fyrstu sýn; viðhorf hans til þeirra eru þá ákveðin í eitt skipti fyrir öll, enda sótt lengst niðrí óradjúp skynjana og tilfinninga. Sé vinátta hans og ást vanmetin, er hinsvegar aldrei langt í hatrið. KÖTTUR KIPLINGS Öðrum virðist hann áleitinn og uppáþrengjandi. Hann virðir andstæðinginn fyrir sér nístandi augum og leitar að veikum blett- um á honum. Sjálfur er hann tortrygginn, innilokaður, leynd- ardómsfullur og óræður. Hann hefur lítinn áhuga á að falla öðru fólki í geð, hitt líkar honum miklu betur að hræða það. Hann er jafnharður við sjálfan sig og aðra. Heldur missir hann spón úr aski sínum en að komast í þakkarskuld. Mótgerðir fyrirgef- ur hann aldrei, hversu smávægi- legar sem þær kunna að vera, skipuleggur hefnd sína af köldu blóði og sýnir enga miskunn þeg- stund hennar rennur upp. Hann hefur geysiháar hugmyndir um sjálfan sig og fer eins og köttur Kiplings eigin ferða, hvort sem öðrum líkar betur eða ver. Kynhvötin er snarari þáttur í lífi skorpíónsins en líklega nokk- urs annars, sem fyrr er getið. Ástríður hans eru sterkar og heiftarlegar og því nokkur hætta á að þær gangi út í sjúklegar öfgar. Taugaspenna hans gerir að verkum að hann er kynmök- KUNNIR fSLENZKIR „DREKAR“ ---------------------N Margrét Indriöa- dóttir, fréttamaður Sr. Öskar J. Þor- iáksson Sigríður Þ. Val- geirs, danskennari Sr. Sigurður Hauk- ur Guðjónsson. Sigurvin Einars- son, alþm. Svavar Guðnason, listmálari. Þór Guðjónsson, veiðimálastjóri Þorvaldur Þórar- insson. lögfræð- ingur Þór Magnússon, þjóðminiavörður Örn Clausen, hrl. Eiður Guðnason, sjónvarpsmaður Emil Jónsson, utanríkisráðherra Evsteinn Jónsson, alþm. Gísli Sigurbiörns- son, forstj. Flli- heimilisins Grund Sr. Jóhann Hann- esson, prófessor Jóhannes úr Kötlum, skáld l____________________) un» «enn háðari en ella; þau gera honum iært að slappa af. En hann væntir sér af þeim mikils meira, algleymissælu og tak- markalauss unaðar. Hann hefur á þeim allt að því mvstíska trú, vonast til að þau gerí honum fært að vaxa uppúr sjálfum sér, komast út fyrir takmörK hins þekkta, inn í sjálfa eilífðina. Þessi stöðuga leit á sviði kyn- lífsins getur, þegar verst lætur, leitt til að hann missi alla stjórn á sér hvað þetta snertir og lendí á allrahanda villigötum. HRÆÐSLA VIÐ HVATIR Kynhvöt, drekamennisins er nátengd ódauðleikaþrá þess, löngun þess til að skilja eitthvað eftir sig hérna megin grafar. Líka er kynhvötin nátengd þrá þess eftir valdi; sjálf mökin auka sjálfstraust þess og láta það finna til máttar síns. Drekakarl- ar og drekakonur leggja bæði megináherzlu á að vera fyrst og fremst karlmenn og konur. Þróttur þeirra býr í kynhvötinni eða kemur frá henni. Líðan og heilsufari drekamenna skiptir jafnan i tvö horn. Þau sem eru sjálfum sér samkvæm og í jafnvægi eru líklega einhverjar hamingjusömustu manneskjur sem til eru, en þeim mun meir þjást og pínast hinar, sem orðið hafa fyrir því að innri óró og jafnvægisleysi hafa náð hjá þeim yfirhöndinni. Þegar einhver höft eru á. þau lögð, kveljast þau og vorkenna sjálfum sér. Þetta end- ar ekki ósjaldan í sadisma og masokkisma, menn fá nautn af að hrjá jafnt sjálfa sig og aðra. Þessir órólegu skorpíónar eru stundum gagnteknir af hræðslu við eigin hvatir og fýsnir og bæla þær niður með öllum mögu- legum ráðum. Synd og sekt eru hugtök sem þeir skilja vel. Sekt- artilfinning þeirra leiðir stund- um til sjálfsrefsingar sem skaðar jafnt andlega sem líkamlega heilsu þeirra. Þegar verst lætur hefur þessi hræðsla við lífið í för með sér sjúklega dauða- hneigð: þá koma fram morðingj- ar og sjálfsmorðingjar. Tiitölu- lega margir morðingjar, ekki sízt þeir sem voru sadistar jafnframt, kváðu fæddir í merki þessu. Því er sem sagt ekki að neita að skorpíónninn hefur öðrum fremur möguleika að sökkva mönnum í dýpstu hugsanlega úr- kynjun og niðurlægingu. En hinu má ekki gleyma að í þessu merki kom einnig oft fram stórmenni sem koma mannsandanum hærra og lengra en flestum öðrum auðnast. RÁNFUGLSNEF OG SLÖNGUAUGU Drekamennum er oft líkt við Faust og ekki að ófyrirsynju; þar á gífurleg forvitni þeirra og fróðleiksþorsti hlut að máli. Þessi fróðleiksfýsn er snar þáttur í kynlífi þeirra. Þau kanna menn og málefni af nístandi skarp- skyggni. Þau leggja mikið upp úr hvassri og beiskri gagnrýni og hafa unað af illvígum rök- ræðum. Ekkert kunna þau bet- ur við en ná einskonar djöful- legu valdi yfir umhverfi sínu. Rannsóknarþrá þeirra og valda- fíkn leiðir oft til að þau sökkva sér í töfra, stjörnuspeki, spírit- isma og annað af því tagi. Á efri árum öðlast þau oft allt að því yfirnáttúrlega, hárnákvæma skarpskyggni; þannig að svo virðist sem þau skynji hluti ó- sjálfrátt og á dularfullan eða há- spekilegan hátt. Drekamenni eru oft þreklega en jafnframt liðlega vaxin og hreyfingarnar í stíl við skepnur eins og panþer og slöngur. Oft hafa þau myndarlegt ránfugls- nef. Augnaraðið er nístandi eins og rýtingur, hvarmarnir oft þrútnir og hyija augun að hálfu. Þau eru ýmist óróleg, myrk, glerkennd, en minna stöðugt á dáleiðsluaugu slöngunnar. Þetta eru augu manns, sem staðráðinn er í að sigra, jafn mískunnarlaus og augu þess er vill drepa. And- litið er markað sterkum, þján- ingarfullum dráttum, oft af- myndað af grettum og hæðnis- glotti. Þetta kemur skýrt fram í andlitum og svipmóti dreka- menna eins og Dostóévskýs, Moltkes, Rommels og Picassos. Rödd drekamennsins er til- btrigðarík og full tilfinningar, djúp. Hjá karlmönnum er hún oft hörð og digurbarkaleg, hjá kvenfólki seiðandi og nautnaleg. Handtakið er hlýtt en óþægilega fast og krefjandi, það er eins og eigi að gleypa mann með húð og hári. SÁRSAUKI OG SEIGLA Heilsufar drekamenna er sjaldnast mjög gott, og á hið margbrotna og stormasama sál- arlíf þeirra mestan þátt í því. En þau búa yfir gífurlegri seiglu og harka því lengi af sér sjúk- dóma og þjáningar, þótt þau að vísu geri mikið úr þessu með orðum og látbragði. Sálrænt verða þau stundum fyrir mikl- um áföllum er minnimáttarkennd heltekur þau sem einskonar and- svar gegn svalli og öfgafullum lifnaðarháttum. Kynfæri, blaðra og endaþarmur drekamennsins kváðu vera veikari fyrir sjúk- dómum en aðrir líkamshlutar. f klæðaburði hugsar drekakon- an ekki fyrst og fremst um smekk eða glæsileika, heldur á- hrif. Fegurðarhugsjón hennar er öllu fremur demónískt en himn- esk. Hún vill umfram allt gæða sig ögrandi og ómótstæðilegu að- dráttarafli. Dimmir og gulrauðir litir eru í mestu uppáhaldi hjá henni. Ósjaldan er hún í senn ósmekkieg en jafnframt háska- lega töfrandi. Grace Kelly, furstafrú og kvikmyndaleikkona alltaf hafa sólina sækjast mest 10 VIKAN 45 tbl

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.