Vikan


Vikan - 14.11.1968, Side 39

Vikan - 14.11.1968, Side 39
inu. - Já, þreifaðu á því, muss- ju. Og þetta. Bómull! Fyrirlitn- ingin stóð af honum í allar átt- ir, þegar hann snerti dúskana á endanum. — En þetta — hann benti á rauða teppið — þetta er sko ull! Þetta er hægt að þvo eins og faragerir. Þetta er ósvikið, úr- vals vara. Það skal ég gefa þér skriflegt. Hvað viltu gefa fyrir svona druslu? Það var gráa tepp- ið. — Segðu eitthvað! Name your price! Ég skal fixa þér gott verð. 150 dirham. — Vil það ekki, sagði ég. — Ég skal gefa þér 125 dirham fyr- ir rauða teppið. Hann brosti vonleysislega. — Nei, monsieur minn, nei takk. En þetta gráa? — 75 dirham. — Guð hjálpi mér! Þú skiptir öllu í tvennt, sem ég segi! Sjáðu þetta. (Rauða teppið). Look at it, Monsieur. Ekta antik! Þú færð hvergi betra teppi! Þreif- aðu á því, finndu, horfðu á það! Komdu hér. Hann þreif í hand- legginn á mér, dró mig til hliðar og hallaði undir flatt. — Hlýtt og þykkt, sagði hann. — Ég skal gera þér kostaboð. 250 dirham! — Nei, takk, svaraði ég. — Ég er ekki farinn úr Marokkó enn- þá, og ég ætla að skoða þetta víðar. Að svo mæltu gekk ég til dyra og stelpurnar með mér. En Borg- ar var ekki uppgefinn. Hann stökk á mig, hremmdi á mér handlegginn og togaði mig inn aftur: — Svona nú, engan asa. Nú hef ég lækkaði mig um 50 dirham, gerðu nú gagnboð, mus- sju. — Ókei. 175 dirham. Nú ranghvolfdist hann og fór hamförum. Óð yfir í frönsku, kallaði á tvo hjálparkokka, þreif upp teppið á móti þeim, hélt því upp að veggnum og skoraði á mig að. skoða. Svo sneri hann máli sínu til stúlknanna og höfð- aði átakanlega til fegurðarsmekks þeirra og hvatti þær ákaft til að koma vitinu fyrir manninn sinn, lofaði að senda mér teppið hvert i heim sem væri. Ég lét mig ekki, hristi hausinn og arkaði til dyra einu sinni enn. Þá tók hann tepp- ið, braut það saman á hlaupun- um á eftir mér og sagði: — Ókei, monsieur, 200 dirham, Og þá gafst ég upp. Nú var röðin komin að því að borga. Ég borgaði með ferðaávís- unum. 10 brezk pund eru 120 dirham og 20 frankar. Fyrst reyndi Borgar gyðingur að halda því fram, að gengið væri 100 dirham fyrir prrndið, en gafst fljótlega upp á því, þegar hann sá, að ég var viss um mitt mál. Ég lét honum hins vegar eftir þessa 20 franka. Síðan fór í hönd mikil skriffinnska, faktúrugjörð og ábyrgðarútfylling, plögg handa mér til að hampa ef eitt- hvað gengi úrskeiðis. Að lokum lét hann mig merkja mér teppið á botninn með tússi, svo ég gæti sannfærzt um, er teppið kæmi til íslands, að ég hefði ekki ver- ið hlunnfarinn. Svo 'pakkaði hann teppinu inn, gekk vandlega frá bögglinum og merkti mér hann heim til fslands, frímerkti og hvaðeina og sagði svo: — Eftir hálfan mánuð verður þetta kom- ið til Bretlands í sjópósti. Geymdu plöggin þín, það er kvittunin fyrir teppinu og póst- inum, tryggingunni líka. Allt komið heim til þín eftir þrjár vikur. Eftir heimkomuna var mér farin að leiðast biðin, þegar komnar voru fimm vikur frá kaupdegi. En svo kom fylgibréf- ið allt í einu og þar með teppið. Og ekki voru svik í kaupmann- inum, allt var með sömu um- merkjum og þegar því var pakk- að inn. Meðan á þessu öllu stóð, höfðu hjálparkokkarnir hremmt stelp- urnar og klætt þær í svartar, gullbróderaðar skikkjur. Fatnað- ur af slíku tagi heitir kaftan og konur þar í landi klæðast þeim á almannafæri. Hér heima verða kaftanar eingöngu notaðir fyrir innisloppa, ímynda ég mér. En þetta voru fallegar flíkur, þær fallegustu af sínu tagi, sem ég sá í ferðinni. Um var að ræða stutt- ar og síðar; þær síðu sagði Borg- ar að kostuðu 150 dirham en þær stuttu á 100 dirham. Nú hófst leikurinn aftur, með því að hann hét að fixa mér góðan prís, ef ég keypti á báðar konurnar mín- ar. Svona er fjölkvænið ríkt í Marokkönum enn, jafnvel þótt gyðingar eigi í hlut, að hann áleit þær greinilega hluta af kvennabúri mínu. — Look at your wifes, sagði hann. — Arn’t they lovely? Að þessu sinni fór allt mjög friðsamlega fram og mun æs- ingaminna en í sambandi við teppið, enda höfðum við nú þreif- að hvor á annars klóm. Stein- unn valdi síðan kaftan og við Borgar fixuðum prísinn fljótlega á 100 dirham. Elín kaus sér stutt- an, og þegar við létumst ætla að arka brott án þess að fallast á 80 dirhama boð Borgars, sam- þykkti hann okkar verð, 60 dir- ham. Kaupin gengu upp á eyr- inni og allir undu bærilega við sitt. En þegar við vorum að fara, að lokinni handahristingu og gagnkvæmum árnaðaróskum varðandi langlífi við mikla ham- ingju, velferð um alla eilífð og endurkomu til Marokkó, rétti Borgar fram hendina og sagði: — Svo gefur þú mér eina síg- arettu, Monsieur. Ég gaf honuiii eina Camel, en áður en ég vissi, var önnur loppa brún búin að krækja sér í sígar- ettu líka; það var einn hjálpar- kokkurinn, sem hafði vokað eins og múkki yfir Camelpakkanum í brjóstvasa mínum, síðan ég kom inn. Leiðsögumaðurinn fullyrti ó eftir, að Borgar þyrfti sjálfur að borga um 140 dirham fyrir teppi eins og það, sem ég keypti, 75 dir- ham fyrir síðan slopp og 40 fyrir stuttan. Hvort hann sagði það satt veit ég ekki, en Martens SABENA forstjóri hafði sagt mér, að venjulega gæfu prang- ararnir leiðsögumönnunum 10% af vöruverðinu fyrir að koma með ferðamennina til þeirra, svo trúlega hefur gædinn hlaupið strax um kvöldið til Borgars að ná í dirhömin sín 36. rétt um 400 krónur. Það er þolanleg aukageta fyr- ir ekki neitt, og trúlega skatt- frjálst að auki. Daginn eftir kom Guðmund- ur aftur með þann væmna, og nú var farið í ökuferð um borg- ina, einkum um Aguedal, sem er gífurlegur skrúðgarður, 3x1.5 km að flatarmáli, með tveimur gríðarstórum tjörnum, sem vatn- ið er leitt í ofan úr Atlasfjöllum. Þarna eru ávaxtatré af öllu tagi auk skrautjurta margvíslegra, því miður var Aguedal ekki nema svipur hjá sjón núna, því 1. marz síðastliðinn gekk ofboðslegt veð- ur í klukkutíma yfir staðinn og braut niður allt að því helming- inn af trjánum og gerði marg- vislegan annan skaða. Enn mátti víða sjá eyðilegginguna blasa við, og unnið var að hreinsun og lagfæringu af fullum krafti. Það var hreint og tært veður þennan morgun, hitinn ekki nema 38 stig og afar notalegt. Eftir þessa ökuferð áttum við frí til að ráðstafa að eigin geð- þótta til klukkan fimm, en þá ætlaði Guðmundur að koma aft- ur og fara með. okkur upp í fjöll- in. Við flýttum okkur að borða, en fórum svo í sundlaug og sól- bað. Laugin var köld, 21 stig, svo maður saup hveljur er út í vatnið kom, samt voru stelpurn- ar óþreytandi að busla og synda, einkum Elín, sem kunni því bet- ur við sig, sem hún stóð minna upp úr vatninu. Ég svamlaði nokkra hringi en lagðist síðan upp á bakkann og lét sól- ina þurrka mig, hvað hún gerði á augabragði. Ég hafði nokkurn beig af allri þessari sól á íslenzk höfuð og húð, forðaði sjálfum mér í skugga áður en langt um leið og reyndi að koma stelpunum upp úr með fyrra fallinu. Það tókst raunar ekki. En um það leyti, er Guðmundur kom, hafði ég aðkenningu af höfuðverk og klígju. Hann fór með okkur mjög skemmtilega hringferð um pálmaekru utan við borgina og síðan upp í fjöllin. Heilsu minnii 45. tbi. VIKAN 39»

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.