Vikan


Vikan - 14.11.1968, Page 47

Vikan - 14.11.1968, Page 47
Saumað er í ijósan hör — eða annað jafnþráða efni og með dökkum hör — eða perlugarni er fyllir sporin. Notið java- nál er hæfir grófleika garnsins. Saumið með krosssaumi eftir meðf. skýringarmynd. Snúið stykkinu upp eða niður en aldrei á hlið. Ath. að (ill yfirsporin vísi upp til vinstri. Þegar lokið er við að sauma ferningana, er saumuð rönd i kringum munstrin og síðan meðfylgjandi tölustafir og stafir (sjá mynd). Röndina utan með má hafa í þeirri breidd, sem fallegt þykir, sé gerð úr þessu mynd til að hengja upp á vegg, eins og til er ætlazt á þessum myndum. Með þessu borði má lika spila það, sem Jón Árnason og Olafur Davíðsson kalla dammur og telja þeir það útlent spil. Refskák, kotru, mylnu og skáktafl telja þeir aftur svo útbreidd spil á Is- landi, að þeir lýsa þeim í bók sinni. mBSmdÍ m m' m\ -1 llfcv j ■j ! "J' r J \j j§i§|| .) | í ■ -s 1 JQ j [2 mmmmm wmmm ■ f- -ý v - -! •; * ;.::■ \ú ...:ý íféÍmmwMMiyM mm M'V.:’./Uæ! r;:;> - É iii iMapj mSé is|s- r. . "*i.W e..i«.|SÉ íl * ‘#|V #W, 09 f 0 ..■'*** ■ ' - **í£* m *d m ■#>. m * m* * * m ■ ♦ PP^I*IÉÉI '&sm Mmm, iíéá' »»«>>*:.#»* fi*. Nú er gamli enski og franski útsaumurinn komin í tízku aftur. Hér kemur lítill dúkur, sem auðveldlega er hægt að útbúa sér af munstur með því að klippa hringlaga smjörpappírsörk, brjóta í fjóra hluta svo rétt hlutföll náist og teikna síðan hringi og blóm með hjálp fingurbjargar eða lítils tvinnakeflis. Bezt er að sauma í fíngert hörefni með snúðlinu brodergarni. Leggið síðan munstrið á efnið svo brot þess liggi eftir efnisþræðinum, leggið kalkipappírsörk milli munsturs og efnis. látið kalkhlið pappírsins snúa að efninu og dragið síðan í línur munst- ursins með vel yddum blýanti. Fyllt er undir blöð blómanna með lykkjuspori og síðan saumað líkt og með flatsaumi nema frá hægri til vinstri og sporin látin liggja þvert á blöðin og við þetta fer snúðurinn af garninu svo sporin sjást ekki nema sem þétt heild. Þræðið fyrst 1 kringum götin með þéttu þræðispori og klippið í kross, sjá skýringarmyndir. Klippið síðan úr gatinu (eða klippið annan kross 1 gatið og brjótið inn af brúninni við þræðingu) og saumið með þéttu spori frá hægri til vinstri með því að sauma frá gatinu yfir þræðinguna og niður í efnið. Gangið frá endanum með eins fínni saumnál og hægt er svo hringurinn verði ekki ójafn. Saumið blúndu í kringum dúkinn. Dragið í þráð efst í blúndunni svo hún hafist hæfi- lega við og leggist í hring, þræðið og saumið með þéttu tungu- spori (kappmelluspori) í höndum yfir brún blúndunnar og látið sporin snúa inn í hringinn. Saumið frá vinstri til hægri.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.