Vikan - 28.11.1968, Síða 4
HAGSÝN
HÚSMÓÐIR
NOTAR
GREN8ÁSVEÖ 22 - 24
»0280-32262
Gólfdúkur — plast, vinyl og línólíum.
Postulíns-veggflísar — stærðir 7'/2xl5, 11x11 og 15x15 cm.
Amerískar gólfflísar — Godd Year, Marbelló og Kentile.
Þýzkar gólfflísar — DLW.
Hollenzkur Fiesta dúkur — eldhúss- og baðgólfdúkur.
Málningarvörur — frá Hörpu hf., Mólning hf. og Slippfél. Rvlkur.
Teppi — ensk, þýzk, belgísk nylonteppi.
Fúgavarnarefni — Sólinum, Pinotex.
Silicone — úti — inni.
Veggdúkur — Somvyl, frönsk nýjung.
Vinyl veggfóður — br. 55 cm.
Veggfóður — br. 50 cm.
V
Ó HVE MARGUR YRÐI S/ELL
Kæri Póstur!
Ég sé í blöðunum, að enn
einu sinni hefur gamall
draugur verið vakinn upp.
Að þessu sinni er það hátt-
virt alþingi, sem hefur tek-
ið að sér hlutverk særinga-
mannsins. Það verð ég að
segja, að þessum háu herr-
um á alþingi dettur ekki
margt frumlegt í hug til
þess að leysa hinn mikla
vanda þjóðarinnar. Ég á
við framkomna tillögu um
þegnskylduvinnu allra
ungmenna á aldrinum 14—
18 ára.
Þetta mál er eldgamalt.
Og satt að segja hélt ég,
að engum dytti til hugar
að fara að vekja það upp
aftur. É'g hélt að Hermann
á Þingeyrum hefði kveðið
það svo rækilega niður á
sjnum tíma, er hann orti
sína stórsnjöllu vísu, sem
varð fleyg á skammri
stundu:
Ó, hve margur yrði sæll
og elska mundi landið
heitt,
mætti hann vera í
mánuð þræll
og moka skít fyrir ekki
neitt.
V
Þegnskylduvinnan er að
mínum dómi algjörlega út
í hött. Hún leysir alls ekki
unglingavandamál þjóðar-
innar. Kerfið hjá okkur
byggist einmitt á því, að
unga fólkið byrji snemma
að vinna fyrir sér og létta
undir strit heimilisföðurs-
ins. Því aðeins getur unga
fólkið stundað skólanám ár
eftir ár, að það fái tæki-
færi til þess að vinna á
sumrin og kosta sig að
mestu leyti sjálft til náms.
Stundum hefur verið rætt
um að lengja skólaárið og
útskrifa stúdenta 18 ára í
stað 20 eins og nú er gert.
Þessi tillaga er líka fjarri
öllu lagi af fyrrgreindri á-
stæðu. Það skiptir engu
máli hvað gert er einhvers
staðar úti í hinum stóra
heimi. Við verðum að
lífi okkar eftir ástæðunum
hér heima hjá okkur. Eða '
vilja þessir ágætu menn,
að hér eftir geti þeir einir
gengið menntaveginn, sem
eiga ríka foreldra? Vilja
þeir hafa ástandið eins og
það var hér á árum áður,
þegar stórvelgefnir menn
urðu að stunda erfiðis-
vinnu allt lífið af fátæktar-
sökum, en fengu ekki að
njóta góðrar menntunar,
eins og hugur þeirra stóð
til?
Ég heiti á alla góða hag-
yrðinga að fylgja nú for-
dæmi Hermanns á Þing-
eyrum og kveða aftur nið-
ur þegnskylduvinnudraug-
inn jafn eftirminnilega og
hann gerði.
Með þökk fyrir birtinguna.
Gamall verkamaður.
Okkur þykir ólíklegt, að
tillagan um þegnskyldu-
vinnuna fái nokkurn hljóm-
grunn. Það er rétt hjá bréf-
ritara, að gamlar hug-
myndir eru sjaldan til
gagns. Það eru nýir vend-
ir, sem sópa bezt.
SJÁLFSAGÐUR HLUTUR
Kæri Póstur!
Það er svo gott að leita
til þín með vandræði sín.
É'g les þig alltaf. Vanda-
mál mitt er þetta:
Ég er enn kornungur,
eða svo finnst mér sjálf-
um (ég er að verða 27 ára).
En ég hef samt öðlast
mikla lífsreynslu af svo
ungum manni að vera. Ég
er til dæmis fráskilinn og
á tvö börn (annað reynd-
ar í lausaleik). É'g hef allt-
af verið álitinn talsvert
mikill kvennamaður. Þótt
ég segi sjálfur frá hlýt ég
að ganga svolítið í augun
á kvenfólkinu. Að minnsta
kosti bendir árangurinn til
þess.
Þegar ég hef kynnzt nýj-
um stelpum að undan-
förnu, hef ég alltaf haft
áhyggjur af fortíð minni.
Fyrir nokkru missti ég af
bráðlaglegri stelpu, af því
að ég hafði mig aldrei upp
í að segja henni, að ég
væri fráskilinn og tveggja
barna faðir. Þegar viðhöfð-
um verið alllengi saman,
frétti hún þetta frá öðrum,
varð náttúrlega bálreið og
hefur hvorki viljað heyra
mig né sjá síðan.
Og þá kemur loksins
mergurinn málsins: Hven-
ær og hvernig á ég að segja
4 VTKAN 47-tbl-