Vikan


Vikan - 28.11.1968, Qupperneq 5

Vikan - 28.11.1968, Qupperneq 5
þeim sannleikann um for- tíS mína? Beztu kveðjur og þakk- ir fyrir gott blað. S.B. Því fyrr því betra að okk- ar dómi. Þú skalt ekki hefja máls á fortíð þinni upp úr þurru og ekki segja henni, eins og þú sért að ljóstra upp einhverju ógur- legu leyndartpáli. Reyndu að haga samræðunum svo til, að þú getir vikið að þessu og sagt frá því eins og hverjum öðrum sjálf- sögðum hlut. í okkar þjóð- félagi þykir engin skömm að því að vera fráskilinn. Það er eins og hvert annað áfall, sem enginn getur gert að. HEITROF Kæra Vika! Nýlega var mér sagt, að það varðaði við lög, ef karlmaður sliti trúlofun sinni við stúlku alveg að ástæðulausu. Slíkt væri kallað heitrof og væri hægt að fá menn dæmda og sektaða fyrir að gerast sekir um slíkt athæfi. Er þetta rétt? Ég vildi óska, að þetta sé satt, en er ekki mjög trúuð á það. Þannig er mál með vexti, að ég var svik- in í tryggðum fyrir rúmu ári síðan. Það hlýtur að teljast heitrof, því að ekk- ert kom fyrir frá minni hálfu, sem gat verið orsök- in. Unnusti minn fór út á land að vinna sumartíma, hætti að skrifa mér og var búinn að vera lengi í bæn- um um haustið, án þess að ég hefði hugmynd um það. Ég komst að því fyrir hreina tilviljun. Ég náði loksins í hann í síma, og þá sagði hann ósköp blátt áfram, að öllu væri lokið okkar á milli. Hann nefndi enga ástæðu. Framkoma af þessu tagi ætti að mínum dómi að varða við lög og ég vona að hún geri það. Þess vegna skrifa ég þér einmitt, Póstur góður. Ef svar þitt er játandi, er ég að hugsa um að fara í mál við hann Hann á það svo sannarlega skilið. Með fyrirfram þökk, H.I.K. P.S. Ég frétti alveg nýlega, að hann væri trúlofaður annarri, og ætlaði að gifta sig innan skamms. Stúlkan er víst utan af landi. Sama. Það mun vera rétt, að' hægt sé að fá karlmenn dæmda fyrir heitrof. En við ráð- leggjum þér að fara ekki að ana út í slíka vitleysu. Maðurinn virðist einfald- lega hafa orðið hrifinn af annarri og slíkt getur kom- ið fyrir á beztu bæjum. Þú átt kannski eftir að lenda í slíkri aðstöðu sjálf. Þú skalt gleyma lionum sem fyrst og hugsa ekki um heitrof og málaferli. VILL EKKI FARA TIL LÆKNIS Kæri Póstur! Mig langar til að biðja þig að ráða mér heilt í erfiðleikum mínum. Ég er gift yndislegum manni. Ég get ekkert sett út á hann — nema eitt. En þetta eina er að mínum dómi svo mik- ill ókostur, að ég get ekki með nokkru móti sætt mig við hann. Maðurinn minn drekkur, ekki oft, en þegar það kemur fyrir, gerist allt- af eitthvað skelfilegt. Hann er hinn versti viðureignar með víni, en er annars dag- farsprúður, blíðlyndur og elskulegur. Þetta kom mjög sjaldan fyrir fyrstu hjú- skaparár okkar, en síðan hefur það farið versnandi smátt og smátt og hefur aldrei verið eins slæmt og nú. Ég er búin að marg- biðja hann að fara til lækn- is og biðja um einhverja hjálp til þess að geta hætt að drekka. Ég er sannfærð um, að hann getur það. Hann þarfnast bara aðstoð- ar, og því miður get ég ekki veitt honum hana. Ég er búin að reyna að gera allt sem ég get, en það hefur enn ekki gagnað. Hann VILL hætta að drekka, en getur það ekki einn. En hann vill heldur ekki fara til læknis. Hvað ráðleggur þú mér að gera? Fyrirfram ástarþakkir fyrir hjálpina. H.R. Haltu áfram að reyna að fá hann sjálfan til að fara til læknis. Ef það dugar hins vegar alls ekki, skaltu sjálf leita læknishjálpar hans vegna. En hefurðu reynt að grafast fyrir um orsakir þess, að hann drekkur. Getur ekki verið, að þú eigir sjálf einhverja sök á því? Allavega erum við sannfærðir um að ykk- ur takist sameiginlega að sigrazt á drykkjuhneigð hans. (tÆRUFOÐRADLH KULDASKÖR! Islenzkt hráefnij’slenzk vinna fyrir islenzka veöráttn 4A*Sl/ 47. tbi. VIICAN 5

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.