Vikan - 28.11.1968, Side 19
Cilla Blaclc þótti standa sig vel í
kvikmyndinni „Work is a four
letter word“, sem frumsýnd var í
London í sumair. Gagnrýnendur
hrósuðu henni á hvert reipi, og hafa
kvikmyndatilboðin streymt til
hennar síðan. Hér sjáum við Cillu
koma til frumsýningarinnar, ásamt
heitsveíni sínum, Bobby Willis, en
hann er jafnframt umboðsmaður
hennar. Þúsundir aðdáenda biðu
fyrir framan kvikmyndahúsið til
þess að fá að sjá hana og fleira
stórmenni, sem frumsýninguna
sótti.
TINY TIM MINNIR A SNODDAS
Það eru þrjár ástæður fyrir því að ég syng: Hin fyrsta er sú, að ég vil með því
þakka skapara vorum fyrir að hafa gefið mér þá náðargjöf að geta sungið. í öðru
lagi syng ég til þess að koma fólki í gott skap, bæði ungu fólki og gömlu. Og í
þriðja lagi syng ég vegna allra þeirra indælu kvenna, sem með fegurð sinni koma
hjarta mínu til að hoppa af gleði.
Þannig mælir TINY TIM, nýjasta fyrirbrigðið í skemmtanabransanum í Ameríku.
Það er víst ekki til sá sjónvarpsþáttur vestra, sem hann hefur ekki komið fram
í. Hann hefur komið fram í hljómleikasölum og dregið til sín þúsundir manna
eins og segull stál, og fyrsta tveggja laga platan hans, „Tiptoe Through The Tulips
With Me“ komst ofarlega á blað á vinsældalistanum vestan hafs.
Bandaríkjamenn dá þennan furðufugl, en samt er það svo, að menn vita næsta
lítil deili á honum utan það, að hann hlýtur að vera um fertugt og af arabískum
stofni. Hann syngur með hárri og hvellri páfagauksröddu, og er sagt, að sjálf
Mrs. Miller sé hreinasta hátíð, þegar söngur hennar er borinn saman við söng
Tiny Tim ,eða litla Timma, eins og við getum kallað hann. Hann leikur sjálfur
undir, þegar hann syngur, og hljóðfærið er pínulítið og forkostulegt ukulele, sem
hann hefur alltaf með sér í pappírspoka. Tiny Tim minnir okkur ósjálfrátt á
Snoddas hinn sænska, sem allir dáðu í eina tíð, en veslingurinn sá hvarf í gleymsk-
unnar djúp næstum jafn snögglega og hann hafði birzt á stjörnuhimninum.
______________________________________________________________________________y
Stúlkan í kápunni er Lulu, söngkon-
an vinsæla, og hin daman er líka ....
nei, hún er raunar ekki Lulu, ekki
einu sinni systir hennar, lieldur Lorna
nokkur Brown. Lorna er tvítug að
aldri og hvert sem hún fer, er hún
ætíð umkringd aðdáendum Lulu og
eiginhandarundirritunarsmölum. Hún
hefur ekkert á móti því að skrifa
nafnið sitt — en aðdáendur Lulu trúa
því tæplega, að þeim hafi orðið á
mistök, og halda, að hér sé Lulu að
gera að gamni sínu!
IflNSÆLL
SÖNGLEIKDR
V________________________)
Hljómplatan með lögunum úr kvik-
myndinni „Sound of Music“ hefur
selzt í stærra upplagi en nokkur önn-
ur hæggeng plata, sem gefin hefur
verið út í Bretlandi. Þar í landi hafa
nú selzt tvær milljónir eintaka af
henni. Það er plötuútgáfufyrirtæk-
ið RCA, sem gefur hana út, og
hefur fyrirtækið nú fengið 3.225.000
pund fyrir sölu á henni. Auk þessa
liafa einstök lög af plötunni verið
gefin út á tveggja laga plötum, t.d.
lagið Edelweiss, sem fjölmargir söngv-
arar hafa sungið. Það má því með
sanni segja, að „Sound of Music“ sé
einhver vinsælasti söngleikur, sem
fram hefur komið. Ef allar þær plöt-
ur, sem selzt liafa í Bretlandi, væru
settar í einn stafla, yrði sá stafli
fimmtán sinnum hærri en Empire
State byggingin í New York, hæsta
bygging í heimi!
47. tbi. VIKAN 19