Vikan - 28.11.1968, Blaðsíða 28
skinns og hörunds, þegar hann man, hversu mikið gólf-
teppið á þessa stofu kostaði. Hann vill ekki gefa upp
verðið, en segir, að það hafi kostað helmingi meira en
almenningur gefur fyrir heilt hús. Teppið var svona
dýrt, af því að Ringó vildi hafa það horn í horn og það
máttu hvergi vera samskeyti á því.
Ringó er sá eini af Bítlunum sem notar öll herbergin
í lúxusvillu sinni. I einu leikur hann billjard, í öðru
sýnir hann kvikmyndir, í hinu þriðja er bar og svo
inætti lengi telja. Einnig er leikherbergi fyrir börn
þeirra hjóna: Zak, sem fæddist 19(i5, og Jason, sem
fæddist l!)(i7. Ringó segist ekki ætla að eiga fleiri börn
i bráð. Maureen, konan hans, á að hvíla sig á barn-
eignum í nokkur ár, segir hann.
Hann er ekki í nokkrum vafa um, hvert álit aðdá-
enda hans á honum sé.
„Eg höfða til móðurtilfinninga þeirra,“ segir hann.
„Iíg veit vel, að ég er viðkvæmur, væminn og róman-
tískur. Og hvers vegna skyldi ég breyta sjálfum mér,
þegar ég er svona í raun og veru?
Æðsti draumur minn er að komast í mannkynssög-
una á einhvern hátt, helzt ])annig, að allir skólakrakk-
ar verði látnir lesa um mig í skólabókunum sínum. I>að
væri gaman. Og ég, sem sjálfur hef aldrei lært að stafa.“
★
Fjórmenningarnir frá Liverpool hafa náð eins langt
á sínu sviði og hægt er að hugsa sér. Allir vissu, að í
heimi dægurlaganna gátu þeir sem áttu velgengni að
fagna orðið milljónamæringar á örskömmum tíma. En
Bítlarnir hafa slegið öll met í þessum efnmn. Plötur
þeirra hafa selzt meira en nokkurn tíma hefur þekkzt
áður. Þegar bítlaæðið svonefnda var í algleymingi, spáðu
allir því, að blaðran mundi springa í einu vetfangi með
háum hvell og um leið yrðu Bítlarnir fjórir úr sögunni
fvrir fullt og allt. En þessi spádómur rættist ekki. Bítla-
æðið stóð yfir í nálega þrjú ár og breiddist út um
iillan heim. Og Bítlarnir hafa hahlið vinsaddmn sínmn
samfleytt í rúrn fimm ár. Þess er skemmst að minnast,
að nýjasta tveggjalaga plata þeirra, „Hey, Jude“, seld-
ist í jafnstóru upplagi og fyrri plötur þeirra og komst
í efsta sæti á vinsældalistanum.
Mörgum leikur forvitni á að vita, hversu mikill auður
Bítlanna sé. Þessu er erfitt að svara. Raunverulegt gildi
fyrirtækja kemur ekki í ljós, fyrr en þau eru seld. Og
Bítlarnir hafa engan áhuga á að selja fyrirtæki sín.
Eftir dauða Brians Epsteins var fyrirtækið NEMS
í London endurskipulagt. Fram að þeim t.íma hafði
fyrirtækið verið vaxandi og starfsemi þcss aðallega ver-
ið fólgin í ])ví að koma listamönnum á framfæri og liafa
nmboð fyrir þá. Nú þurfti að taka ákvörðun um, hvort
fyrirtækið skyldi halda áfram að færa út kvíarnar eða
leggja áherzlu á að halda því sem það hafði. Enda
þótt Brian Epstein hefði haft Iílil afskipti af daglegum
rekstri fyrirtækisins síðasta árið, var hann þó stofnandi
þess og sá maður, sem allt byggðist á. Allar eigur Brians
runnu til móður lrans og bróður Clive, sem nú tók við
stöðu Brians sem aðalframkvæmdastjóri NEMS. Hann
hafði alltaf átt hlut í því, þótt hann vildi ekki starfa
við það, þrátt fyrir þrábeiðni Brians. Af 10.000 hluta-
bréfum átti Brian 7000, Clive 2000 og Bítlarnir 250
hver.
Sú stefna var tekin að reyna fremur að styrkja stoðir
fyrirtækisins heldur en að færa út kvíarnar. Starfsemi
NEMS byggist nú að mestu á rekstri þriggja aðila: Bítl-
anna, Cillu Black og hljómsveitarinnar Gerry and the
Pacemakers.
Til ]iess að fá ofurlitla hugmynd um árlegar tekjur
Bítlanna væri ekki úr vegi að athuga, hvað sala á einni
LP-plötu þeirra gefur í aðra hönd. Hver plata kostar
30 shillinga, og ef milljón eintök seljast koma því inn
1.500.000 pund. Útgefandinn, EMI, fær mest af
þessari upphæð, 605.000 pund, fyrir að gefa plötuna út.
Hljómplötusalarnir fá 400.000 pund í sölulaun. Ríkið
fær 300.000 pund í skatta. Bítlarnir sjálfir fá 120.000
pund fyrir að syngja og leika inn á plötuna, og höfundar
laga og texta, sem í flestum tilfelhun eru John og Paul,
fá 75.000 pund.
LP-plötur Bítlanna seljast venjulega í 5 milljónum
eintaka mn allan heim, og þar sem þeir framleiða að
auki tvær tveggjalaga plötur á ári, má gera ráð fyrir,
að þeir þéni um 500.000 pund hver á ári fyrir plötur sínar.
Saga Bítlanna er svo sannarlega ævintýri líkust, eins
og móðir Ringós komst að orði. Flestum leikur forvitni
á að vita, hvað verði um ]>á í framtíðinni. Þeir eru nú
mn 25 ára gamlir og orðnir margfaldir milljónamæring-
ar. Oll velgengni þeirra byggist á samstöðu þeirra. Ef
Jieir skilja og fara hver sína leið, er ævintýrið úti. Um
þessar mundir reyna þeir að gera hvort tveggja í senn:
vera saman og reyna þó að finna sjálfa sig hver á sínu
sviði.
Tveir Bítlanna, John og Paul, hafa mest verið í frétt-
unum að undanförnu. John er öfgafyllstur þeirra félaga
og virðist eiga við mest sálræn vandamál að stríða.
ITann er nú skilinn við konu sína og tekinn saman við
japanska listakonu. Hann var nýlega tekinn fastur og
ákærður fyrir eiturlyfjaneyzlu. Margir eru þeirrar skoð-
unar, að John sé mest. hætta búin af Bítlunum.
Paul hefur komið við sögu vegna uppgangs hins nýja
fyrirtækis Bítlanna, Apple. Þetta fyrirtæki eiga þeir
félagar einir. Það á að starfa á víðum grundvelli: gefa
út plötur, annast umboð fyrir listamenn og fleira og
fleira. Það er draumur Pauls, sem annast rekstur fyrir-
tækisins og á allan heiður að stofnun þess, að Ajiple
verði innan fárra ára alþjóðlegt fyrirtæki og öflugasti
aðilinn í heimi dægurlaganna.
Hvað sem öllum vangaveltum um framtíð Bítlanna
líður, er eitt víst: Þeir gætu sem liægast setzt í helgan
stein strax í dag og lifað góðu lífi af eignum sínum.
Þeir hafa leikið inn á 10 LP-plötur og 17 tveggjalaga
plötur. John og Paul hafa samið yfir 120 lög og texta.
Starf Bítlanna undanfarin fimm ár hefur veitt almenn-
ingi um allan heim marga ánægjustund. Og sjálfir hafa
þeir hlotið orðu frá Englandsdrottningu að launum.
Geri aðrir betur! Endir.
28 VIKAN 47-tbI-