Vikan


Vikan - 28.11.1968, Qupperneq 33

Vikan - 28.11.1968, Qupperneq 33
Klukkan sló tíu, og tíu mín- útum síðar kom Val þjótandi inn í stofuna. — Þú kemur seint, sagði fað- ir hennar. — Nei, alls ekki pabbi. Þú veizt að klukkan hans afa er alltaf of fljót. Mamma var vön að stilla hana á hverjum degi. — Móðir þín notaði alltaf ein- hverjar furðulegar reglur, þegar þessi luka átti í hlut, sagði hann glettnislega við Val. Hún rétti úrið sitt upp að nef- inu á honum og hann hló. — Allt í lagi, sagði hann. •— Hefirðu enga heimavinnu núna? — Það er föstudagur, manstu það ekki? Hún stóð hálf hikandi og horfði á þau til skiptis. — Mamma Suzönnu sagðist hafa séð Ruth frænku í bænum I dag, og að hún hefði sagt að hana lang- aði til að koma einhvern daginn. — Það væri gaman, sagði Ali- son. — Hún hefir ekki komið hingað síðan daginn sem við giftum okkur, Luke. Ég ætla að hringja til hennar og bjóða henni að borða með okkur eitthvert kvöldið. — Já, viltu gera það, sagði hann glaðlegur á svipinn. — Hún hefði gott af því, hún hefir svo mikið að gera. Hún var nokkr- um árum eldri en Barbara. Morguninn eftir hringdi Ali- son til Ruthar. — Viltu ekki koma og borða hjá okkur annað kvöld? sagði hún. Það var andartaks þögn. — Þakka þér fyrir, sagði Ruth, — það vil ég mjög gjarnan. Það var mjög heitt í veðri á sunnudeginum. Luke lá í garð- stól, og blundaði. Móðir Suzönnu kom og bauð Val með þeim nið- ur að ströndinni. Alison færði Luke matinn út i garð, og fór svo að undirbúa kvöldverðinn. Hún hugsaði með sér að ekkert væri fallegra en gular rósir til að skreyta með gamla valhnotu- borðið, svo hún fór út í garðinn og tíndi nokkrar. Hún hafði al- drei snert á þessum gulu rósum, en henni fannst það sjálfri kjána- legt, það var eins og hún væri að koma sér upp einhverri vofu. Hana hafði oft langað til að tína þessar gulu rósir, en einhvern- veginn hafði henni fundist að hún hefði ekki leyfi til þess. Val kom heim um sjöleytið, það klingdi í bjöllunum, þegar hún þaut gegnum anddyrið. Hún hafði slengt sundfötunum á öxl- ina og hárið hékk rakt fram á ennið. — Þetta eru rósir frá runn- anum hennar mömmu! sagði hún. — Hún skar aldrei rós, nema til að setja í kúluna undir lampan- um. Alison andvarpaði. — Ég veit það, en það eru margar rósir eftir á runnanum. — Það er fullt af öðrum blóm- um í garðinu, sagði Val reiðilega. — Þessar rósir eiga bezt við valhnotuborðið. Alison var á- Á tímabilinu frá 1. desember til 1. janúar eru sérstök jólafargjöld í boði frá Evrópu til íslands. Jólafargjöld Loftleiða Jólin eiga að vera hátíð allrar fjölskyldunnar. Jólafargjöldin auðvelda það, S’krifstofur Loftleiða, ferðaskrifstofurnar og umboðsmenn Loftleiða úti á landi gefa allar nánari upplýsingar. ÞÆGILEGAR HRAÐFERÐIR HEIMAN OG HEIM FLUGFAR STRAX — FAR GREITT SÍÐAR MOFTIEIDIR tbi. VIKAN 33

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.