Vikan


Vikan - 28.11.1968, Síða 44

Vikan - 28.11.1968, Síða 44
MMmiiir á LOFT og VEGGI Höfum fyrirliggjandi ýmsar tegundir s.s.: FURU OREGON PINE EIK ÁLIVI ASK CAVIANA GULL-ÁLM TEAK Harðvlðorsalfln sf. Þórsgötu 13. Símar 11931 & 13670. ENGLISH ELECTRIC SJÁLFVIRKU ÞVOTTAVÉLAR 2 GERÐIR GERÐ 474 GERÐ 484 • Heitt eða kalt vatn til áfyllingar. • Innbyggður hjólabúnaður. • 8 þvottastillingar — skolun — vindun • Afköst:4,5 kg. • 1 árs ábyrgð • Varahluta- og viðgerðaþjónusta. ODF&SZJ ^ Laugavegi 178 Sími 38000 ENGLISH ELECTRIC þurrkarann má tengja við þvottavélina (474) kallaði Alísa í mig hvað eftir ann- að. Ég notaði handklaeðið til að þurrka blóðið af höndum mínum; það var þegar næstum orðið þurrt; og svo yfirgaf ég snekkjuna. Þegar ég kom niður á flotholtið, sá ég að þær voru þrjár komnar um borð í alumíníumbátinn, Alísa, Polly — barnið enn í örmum móður sinn- ar á miðþóftunni — og sneri aftur, Lenny sat í stafni og horfði fram. — Af hverju varstu svona lengi? spurði Alísa. — Það er brjólæði að vera hérna, Johnny, þú veizt það. — Ég þurfti að gera svolítið. — Komdu! Þess í stað stóð ég þarna og hlustaði. Þær höfðu heyrt það líka. Við hljótum að hafa verið búin að heyra það nokkuð lengi — þótt við hefðum ekki gert okkur grein fyrir því. Þetta var ekki garðsláttu- vélarhöktið í utanborðsvél, heldur djúpur og sterklegur gnýrinn í hundrað hestafla hraðbáti. Ég kastaði laus, steig upp í bát- inn og ýtti frá flotholtinu. Svo tók ég ár og reri eins hratt og ég gat frá snekkjunni í áttina að mar- hálmsveggjunum meðfram kanaln- um. — Hvað ertu að gera? spurði Alísa hörkulega. — Af hverju set- urðu vélina ekki í gang, Johnny? Ég benti í áttina að austurenda kanalsins, þar sem tvö hvít boða- föll voru sjáanleg frá stefni báts- ins. — Við komumst ekki framhjá hon- um og ég veit ekki hvað er hér vestur af okkur. Það er allt krökkt af sundum, kanölum og aureðjum og á nóttunni, þegar fráfall er, er þetta hreinasta dauðagildra. Er þetta Montez, Lenny? — Híióðið er eins og í hans báti. — Hraðbátur? — Það held ég. — Er hann vopnaður? — Hann hefur Luger. Hann er alltaf með hana þegar hann kem- ur út í snekkjuna. Við vorum næstum komin að hálmveggnum núna og með árinni fann ég aur á aðeins tveggja feta dýp:. Ég hætti að róa og við flutum í skugganum af háum, þurrum renglunum, sem eru svo þéttar á enginu. — Hann notar byssuna og hann notar hana vel, sagði Lenny. — Hann er góð skytta. Ég hélt fingri að vörum. Hann hafði drepið á vélinni og lágur og rennilegur hraðbáturinn lagðist að flotholtinu. 'Jafnvel hvfsl berst um nótt yfir vatnið og það voru ekki meira en þrjátíu metrar að snekkj- unni. Við gátum ekki séð Montez, því hann var í skugga, en við heyrðum bátinn rekast á flotholtið með dumbum skell, jafn greinilega og við værum sjálf í bátnum. Svo hrópaði Montez: — Hæ, þarna uppi! Angie — komdu niður og gerðu fast! Hann beið svars, en þegar ekk- ert kom hrópaði hann eitthvað á sinni tungu. Ég heyrði nafn Lenny- ar, hann hrópaði tvívegis. Svo heyrðum við hann binda bátinn og sáum hann klifra upp stigann. Hann var stór og feitur, þegar skugga- mynd hans bar við borðstokkinn og svo sáum við ofan á höfuðið á honum, þar sem hann stóð á þil- farinu. — Lenny! hrópaði hann. Ég heyrði hann skella káetudyr- unum, ýtti aðeins frá hálmveggn- um og kippti í gangsetningarspott- ann, mótorinn snerist en ekkert gerðist. Þetta var óhugsandi, hann hlaut að fara í gang. Mulligan hafði látið mig hafa mótor, sem gekk eins og klukka. Það þurfti ekki ann- að en snerta spottann, ég kippti í hann aftur og ekkert gerðist. — Johnny fyrir guðs skuld settu þetta í gang, hvíslaði Alísa. Á snekkjunni var hurðinni skellt aftur og allt í einu sá ég að ég hafði gert þá reginskyssu að stilla ekki kveikjuna á start. Ég gerði það í flýti, kippti í spottann og mótor- inn tók þegar við sér — í sama bili var kveikt á leitarl jósi, því var sveiflað í hring og það náði okk- ur. Það kom ekki fró snekkjunni; heldur hraðbótnum. Ég hafði aldrei látið mig dreyma um að feiti mað- urinn væri svona snar í snúningum, en hann var þegar kominn aftur ofan i hraðbátinn. Ég hafði aðeins forskot í fáeinar sekúndur, meðan hann væri að losa og setja vélina í gang. Ég gaf vélinni fullt og stafninn lyftist, þegar báturinn þeyttist niður eftir kanalnum. Þetta var í fyrsta skipti, sem ég hafði látið mótorinn hafa fulla gjöf og í huganum sendi ég Mulligan þakklæti fyrir þá töfra sem hann hafði gert með tuttugu hestafla Johnson's utanborðsmótorn- um; en jafnvel bezti Johnson's, tutt- ugu hestafla á sér enga von móti eitt hundrað hestafla, rennilegum hraðbáti og andartaki seinna heyrði ég þungan dyn i báti Montezar. Við vorum nú komin út úr kan- alnum og ég beygði of snöggt — báturinn þeyttist út á hlið og sner- ist, þegar við þutum gegnum mar- hálminn. Rétt i svip sá ég okkur í anda, sitja föst í aurrifi oq feita manninn skjóta okkur, eitt eftir ann- að, í rólegheitum, en svo vorum við laus og ég vatt bátnum eftir þröngum göngum i marhálminum: Montez átti í vandræðum, hann risti að minnsta kosti sex þuml- ungum dýpra en ég. Ég heyrði hann hægja á vélinni og snúa við og um leið og við komum inn á breitt, opið sund, á fullri ferð, vaknaði hraðbáturinn til lifsins aftur. Hann var á hlið við okkur í næsta sundi, en veggur af marhálmi á milli. Allt í einu drap ég á vélinni hjá okk- ur. Stefnið skall niður og bátur- inn missti ferðina miög ört, eins og tíðkast um báta með utanborðs- vél. Þarna lágum við f skyndilegri þögn og öldurnar gjálfruðu við kinnunginn, en hraðbáturinn þeytt- ist norðureftir. Alísa starði á mig, þrýsti Polly að sér og starði á rhig; hún sat 44 VIKAN 4V-tbl-

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.