Vikan - 06.02.1969, Side 5
Sænskur læknir, Kit Colfach, vann mikið álit með-
al stari'sbræðra sinna á Tonga, fyrir að setja sam-
an brotinn fót á manni sem datt úr pálma. Hann er
hér meðal lækna og hjúkrunarkvenna.
Þessi kór söng við krýninguna, og var mjög vel
tekiö. Hér er kórinn að syngja „Messias“ eftir
Hándcl. }
Það varð að fresta hátíðahöldum og krýn-
ingu konungsins á Tonga í heilt ár, vegna
þess að allir aligrísir eyjanna voru upp-
étnir við sorgarhátíðina, þegar hin elsk-
aða drottning eyjaskeggja, Salote, lézt ár-
ið 1965. Það var ekki búið að ala upp nógu
marga aligrísi til krýningarhátíðarinnar,
fyrr en árið 1967.
4. júlí, á fertugasta og níunda afmælis-
dag konungs, var haldin veizla fyrir tíu
þúsund manns, og meðal annars þurfti
2000 aligrísi í matinn. Það komust samt
ekki nema 77 af gestunum inn í kapell-
una, þar sem Tafa'ahau Topou IV. sat í
hásæti. Fyrir utan innlenda gesti voru
gestir frá 12 löndum, þar á meðal hertoga-
hjónin af Kent, en Tonga er eitt af sam-
veldislöndum Bretlands.
Konungurinn af Tonga, sem er af einni
elztu konungsætt heims, er lærður mað-
ur, doktor í lögum frá háskólanum í Ox-
ford. Þangað til nú fyrir skömmu hefur
hann haldið landi sínu lokuðu eins og
perluskel.
En nú er fólksfjölgunin það mikil, að
kopar- og bananaútflutningur nægir ekki
til að brauðfæða fólkið, svo hann hefur
gripið til þess ráðs, eins og nábúar hans
á Tahiti og Havaii, að reyna að auka
freðamannastrauminn og fá þannig pen-
inga í ríkiskassann.
Tongaeyjarnar eru 90 ð tölu og hafa allt
það til að bera sem ferðamenn láta sig
dreyma um.
☆
8. tbi. VIICAN 5