Vikan - 06.02.1969, Síða 6
KJOLA-
EFNI..
LAUGAVEGI 59 SÍMI 18647
HatÍfiiatkutiit
INNI
OTI
BfLSKÚRS
SVALA
HURÐIR
ýhhi- ís tytikuttit h ö.
RÁNARGÖTU 15? SÍMI 19669
VILHJALMSSDN
NEYDD TIL AÐ LÆRA
Kæra Vika!
Ég skrifa þér í vandræð-
um mínum, því að ég hef
séð, að þú hjálpar svo
mörgum, sem leita til þín.
Ég er í landsprófi gegn
vilja mínum og hef ekki
nokkra von til að ná prófi
í vor. Foreldrar mínir eru
skilin. Mamma hefur ekki
efni á að kosta mig í skóla
og sjálfri hefur mér ekki
tekizt að vinna mér inn
peninga að neinu ráði. Það
er nú svona og svona með
þessa sumarvinnu. Það er
pabbi, sem kostar skóla-
göngu mína, og hann sér
ekkert nema háskólann og
svoleiðis. Eg veit, að karl-
inn vill mér vel, en það er
alveg ómögulegt að tala
við hann. Hann hlustar
ekki á mig. Hann segir, að
ég geti vel lærtj, ef ég
vilji. Auðvitað get ég lært,
en eingöngu það sem mig
langar til.
Mamma er alveg á sama
máli og ég. Hún veit hvað
ég get lært og á hverju ég
hef áhuga.
Jæja, Vika mín! Segðu
mér nú hvað ég á að gera.
Eg er heimakær, reyki
ekki, drekk ekki (eins og
svo margir á mínum aldri
gera) og fer bara einstaka
sinnum í bíó, þá helzt á
sunnudögum. Eg horfi oft
á sjónvarpið, sérstaklega á
mánudögum og þriðjudög-
um. Yfirleitt horfi ég alls
ekki á Apaspilið og
„skemmtiþáttinn“ Svart
og hvítt. Hvernig er það:
Eru skemmtiþættir með
Tom Jones, Engilbert
Humperdinch og Cliff
Richard svo dýrir, að ekki
sé hægt að fá þá til sýn-
ingar í sjónvarpinu okk-
ar? Mér er sagt, að þetta
séu þrír vinsælustu
skemmtiþættirnir í Eng-
landi um þessar mundir.
Og í Þýzkalandi er verið
að sýna ákaflega vinsæla
framhaldsmynd, sem heit-
ir Rinaldo Rinaldi. Fred
Williams (sá sem lék
furstann í Angelique og
konungurinn) leikur aðal-
hlutverkið.
En þetta var nú bara of-
urlítill útúrdúr. Eg þakka
þér fyrir allar framhalds-
sögurnar og þáttinn Eftir
eyranu, og bið þig að lok-
um að segja mér, hvað ég
eigi að gera til að fá föður
minn til að skilja, að mig
langi til að læra það sem
ég vil en ekki hann.
Þinn einlægur,
Lélegur landsprófs-
nemandi.
Ef það er eitthvað sér-
stakt, sem þú vilt læra og
hefur brennandi áhuga á,
þá skaltu reyna betur að
fá pabba þinn til að leyfa
þér að læra það. Og þú
skalt gera það fyrr en
seinna, svo að allt fari
ekki í háaloft, ef þú skyld-
ir falla á landsprófinu.
Eftir lýsingunni að dæma
ertu fyrirmyndar ungling-
ur, svo að hann hlýtur að
vilja hjálpa þér að læra
það sem þú vilt.
UNGA KYNSLÓÐIN OG
GÁFNAFAR ÍSLENDINGA
Sæll, elsku Póstur!
Mig langar til að spyrja
þig um nokkur smávægi-
leg atriði: Hefur María
Markan kennt flestum ís-
lenzkum söngkonum, eins
og til dæmis Sigrúnu
Harðardóttur,. Sigríði Þor-
valdsdóttur, Völu Báru og
fleirum?
Svo er það annað mál:
Eru íslendingar svo
heimskir að leita ráða hjá
þér, Póstur minn, um per-
sónuleg vandamál sín og
heimiliserjur?
Að lokum: Geturðu sagt
mér, hvenær næsta feg-
urðarsamkeppni unga
fólksins verður haldin í
Austurbæjarbíói? Verður
hún ekki fljótlega á þessu
ári?
Sg þakka þér kærlega
fyrir gott lesefni, sérstak-
lega Sögu Bítlamna og
Forsyteættarinnar.
Þ. M., Reykjavík.
María Markan er álitin
mjög góðnr söngkcnnari.
Hún hefur kennt söng um
langt skeið og margir
kunnir söngvarar hafa
6 VIKAN 6 tbl