Vikan - 06.02.1969, Side 10
EFTIR LÚPUS
I
íslenzkar konur njóta nú á
dögum jafnréttis við karla um
flest, sem ákveðið verður með
lögum, og hafa reynzt í al-
þingiskosningum síðasta ára-
tuginn röskur helmingur kjós-
enda. Samt á kvenþjóðin að-
eins einn fulltrúa á Alþingi
Islendinga þetta kjörtímabil,
þó að stólarnir þar séu sextíu
talsins. Sannast kannski
gleggst á því, hvað stjórn-
málaflokkunum hérlendis
veitist einkennilega örðugt að
endurnýjast og fylgjast með
þróun samfélagsins.
Auður Auðuns er eina kon-
an, sem á alþingi situr. Hún
telst ekki aðsópsmikil á lög-
gjafarsamkomunni, en þolir
hins vegar prýðilega saman-
burð við flesta sessunautana
í höllinni við Austurvöll. Eigi
að síður var Auður næsta
lengi að þokast á alþing og
komst þangað loksins af eins
konar tilviljun.
Auður Auðuns fæddist á
ísafirði 18. febrúar 1911 og
er dóttir Jóns Auðuns Jóns-
sonar forstj. og alþingismanns
ísfirðinga og Norður-Isfirð-
10 VIKAN 6- tw-
inga og konu hans, Mar-
grétar Guðrúnar Jónsdótt-
ur. Olst Auður upp í foreldra-
húsum vestra, unz hún réðst
til menntaskólanáms í höfuð-
borginni. Hún varð stúdent í
Reykjavík 1929, en las síðan
lög við Háskóla íslands og
lauk prófi í þeim fræðum 1935
fyrst íslenzkra kvenna.
Stundaði hún því næst. mál-
flutning í átthögum sínum á
ísafirði árlangt, en giftist þá
og fluttist til Reykjavíkur.
Maki Auðar var Iíermann
Jónsson lögfræðingur, en þau
slitu samvistir. Auður hefur
verið lögfræðingur mæðra-
styrksnefndar frá 1940 jafn-
framt húsmóðurstörfum og
látið mjög að sér kveða um
borgarmálefni Reykjavíkur.
Auður Auðuns var kosin í
borgarstjórn 1946 og hefur
jafnan verið endurkjörin til
þess trúnaðar þaðan í frá, en
setið í borgarráði frá 1952.
Ilún var forseti borgarstjórn-
ar 1954—1959, en varð þá
borgarstjóri ásamt Geir Hall-
grímssyni, þegar Gunnar
Thoroddsen færði bækistöð
sína í stjórnarráðið. Gegndi
Auður þeim starfa til hausts-
ins 1960, en settist þá í önd-
vegi borgarstjórnarinnar á ný
og hefur skipað það síðan.
Fjölmenn nefndastörf hafa
komið í hlut Auðar í borgar-
stjórn og á alþingi einkum
varðandi málefni kvenna og
barna og almannatryggingar.
Auður Auðuns skipaði sjö-
unda sætið á framboðslista
Sjálístæðisflokksins í Reykja-
vík við alþingiskosningarn-
ar 1946 og varð annar vara-
fulltrúi hans i höfuðstaðnum.
Sat hún á þingi vorið 1947
og haustið 1948, en harla
stutt bæði skiptin. Ilún þok-
aði fyrir Kristínu L. Sigurð-
ardóttur við kosningarnar
1949 og virtist ekki hafa
mikla von um þingmennsku,
sízt eftir að Ragnhildur
Helgadóttir hreppti fimmta
sætið á framboðslista Sjálf-
stæðisflokksins í höfuðborg-
inni við kosningarnar 1956 og
varð áttundi þingfultr. Reyk-
víkinga, en sú saga endurtólc
sig við fyrri kosningarnar
1959. Samt. var Auður í fram-
boði við alþingiskosningarnar
1949, 1953, 1956 og sumarið
1959, en skipaði ellefta sætið
á framboðslista flokks síns í
Reykjavík öll skiptin og lét
h'tt á sér bera. Við haustkosn-
ingarnar 1959 vænkaðist svo
óvænt hagur Auðar Auðuns.
Þá valdist hún í annað sætið
á framboðslista Sjáífstæðis-
flokksins í höfuðborginni og
varð annar þingmaður
Reykvíkinga. Hún skipaði
sama sæti og hlaut sömu
mannvirðingu í kosningunum
1963 og 1967.
Starfsreynsla Auðar Auð-
uns í borgarstjórn og á alþingi
er óvefengjanleg. Hún þekkir
mætavel verlcefni þau, sem
þar er um fjallað, og hefur á
þeim stvlltan en virðulegan
áhuga. Auður stýrir fundum
borgarstjórnarinnar við hæfi,
enda naumast vandasamt, því
að þar skerst sjaldan í odda,
svo að um muni eða eftir sé
tekið. Hún býður einnig af
sér góðan þokka, fríð sýnum,
hæglát og virðuleg í fram-
göngu, menntuð vel og fjöl-
hæf, jafnvæg og einörð. Hins
L