Vikan - 06.02.1969, Page 20
Þegar lantlid fær máí
KIRKJAN Á FJALLINU
VATNSAUGAD Á HEIDINNI
OG RODD FJALLSINS
EFTIR ÞORSTEIN MATTHÍASSON
Á sólheitum júlídegi ek ég mér
áður lítt þekktar leiðir austur
um Hólsfjöll.
Fyrir sérstaka góðsemi Davíðs
Sigurðssonar, sem þá var ennþá
niður við Bókhlöðustíg og seldi
notaða bíla, tókst mér að kom-
ast yfir einn slíkan. „Gangverkið
er gott,“ sagði bílasalinn. Þetta
reyndist rétt. Svo var lagt upp
frá Reykjavík og án nokkurra
teljandi áfalla, var ég þennan
fyrrnefnda dag kominn á Fjöll
austur, hafði notið hinnar ágæt-
ustu fyrirgreiðslu á Grímssföð-
um og varð ljóst, að þar var eng-
inn sultur í búi, þótt ennþá væri
snöggslægt tún að sjá.
Þegar ég kem í Mörðudal, er
degi tekið að halla. Á þessum
bæ, er hæst stendur ailra byggðra
býla á íslandi er reisulegt heim
að líta.
Ég stöðva bílinn fer út og lit-
ast um. Þarna er vítt til fjalla
að sjá. Sólstafir blika í blámóðu
fjarlægðar lengst í vestri. Þegar
ég hef staðnæmst þarna litla
stund, kemur til móts við mig
hvatlegur eldri maður. Ég heilsa
og segi á mér nokkur deili, hef
svo jafnframt orð á því, að mér
finnist umhverfið búa yfir ein-
hverjum þeim töfrum, sem mig
skorti orð til að lýsa.
„Já, það er fagurt hér á fjöll-
unum að svunarlagi, enda orðin
fjölfarin leið ferðamanna í seinni
tíð. Ég er Jón í Mörðudal, og það
var ég sem byggði kirkjuna þarna
á hólnum. — Já, ég byggði hana
sjálfur, hvert einasta handtak er
mitt verk eða samkvæmt minni
fyrirsögn. — Komdu, hér eru
viðkomugestir vanir að ganga í
kirkju,“ og hann tekur í hönd-
ina á mér og leiðir mig að kirkj-
unni sinni, rétt eins og ég væri
lítill drengur. Hún er ekki há-
reist, rúmar ekki söfnuð fjölbýl-
is, en fullnægir byggð Fjallabúa,
er þeir ganga í guðshús, sólbitnir
um sumardaga — frostbitnir í
skammdegisskugga.
Gamli maðurinn lýsir fyrir
mér með fáum orðum byggingu
kirkju sinnar. Sjálfur hefur hann
málað altaristöfluna. — Jesú á-
varpar fólk sitt af fjallinu. —
Þessi mynd er hvorki formuð
eftir handverkskunnáttu mynd-
listamanns, né neinni „málara-
kúnst.“ Það er rödd landsins, sem
bóndann ól, sem talar til þess
lýðs, sem guðshússins á að njóta.
Hann sezt við hljóðfærið og
syngur sálma, rödd hans er sterk
og þrumandi. Ég er ekki dóm-
bær um „dúr“ eða „moll“. En
þegar hann leggur vinnulúnar
hendur á hvítar nótur hljóðfær-
isins, og tónar þess fylla litlu
kirkjuna, þá snertir það mína
sveitamannssál dýpra en þótt þar
um fjölluðu óþreyttar snillings-
hendur hinnar fullkomnu söng
og tónmenntar.
Jón í Mörðudal, hafði á sínum
tíma ætlað að letra nafn sitt og
konu sinnar á fjöl, sem hann
hugðist festa innan dyra í kirkj-
unni. Ekki þó af stórlæti einu
saman eða sýndarmennsku,
fremur hinu að þá mundu fleiri
til þess hugsa að nokkuð mætti
af mörkum leggja í skyldu
augnamiði.
En herra biskupinn yfir ís-
landi taldi að slíkt mætti til „for-
dildar“ telja, og voru þá nöfnin
niður felld. En ekki er ótrúlegt,
að saga þessa sérkennilega
Fjallabónda verði lengur mun-
uð, og arfur hans í íslenzkri
þjóðarsál djúptækara, en þótt
fjölin sú hin forgengilega hefði
verið fest í kirkju hans innan
dyra.
Heima í stofunni sinni á hann
málverk mörg, öll sniðin þeim
búningi, sem honum sýnist um-
hverfi sínu og samferðamönnum
hæfa.
Gestabókin hans er þegar orð-
in merkilegt heimildarrit, sem
væntanlega verður vel varðveitt.
Á henni má sjá að mörg stór-
menni hefur að garði borið í
Mörðudal. — Listamenn, erlend-
ir og innlendir — iðjuhöldar og
landsfeður. Öllum þessum mönn-
um kveðst gamli bóndinn hafa
sagt meiningu sína umbúðalaust,
og þá pngu látið sig skipta orður
og titla.
„Hefðarstand er mótað mynt
og maðurinn gullið þrátt
fyrir allt.“
Það er liðið að kvöldi, þegar
jálkurinn minn er aftur kominn
í gang og íarinn að strita austur
yfir fjöllin. Hann fær öðru hvoru
andhvíld, svo ég geti notið heiða-
kyrrðarinnar, sem mér er að
nokkru framandi, þrátt fyrir
margar vor og sumarnætur á
fjöllum og hálsum minnar
heimabyggðar. Þar var öldunið-
ur og fossahjal sjaldan svo fjarri
eða hljóðlátt, að ekki væri það
sem mjúklátt undirspil óráðinna
unglingsdrauma.
Þegar austur á heiðina kemur
teygja lágir ásar létta kvöld-
skugga yfir Sænautavatn. Nú
bylgjast ljósastörin ósnortin í
blænum á engi því er áður nytj-
uðu heiðabændur.
Veturhús — Sænautasel —
Rangalón og ótal fleiri eru nú
aðeins kuml eitt, flest með lítt
kunna sögu.
Fiskauðug fjallavötn eru ekki
lengur stór liður í lífsafkomu
fólksins, sem bjó við vetrarríki
háfjallanna. Nú er fiskur sá, oft-
ast aðeins einn þáttur í lífsmun-
aði þeirra, sem ekki lengur vinna
hörðum höndum heimili sínu til
bjargræðis.
%
Undir lágu lynggrónu hólbarði
er ofurlítið blátært vatnsauga,
lind sem úr seitlar smálækur,
sem dreifist í ljósan mýrarfláka
rétt fyrir neðan. Nú er komið
það nærri búhögum Jökuldals,
að stygg fjallafála hrekkur upp
af miðnæturblundi, horfir á mig
stutta stund, hristir móðguð á
svip stórhyrndan hausinn, stapp-
ar niður fótunum og blæs á mig,
um leið og hún snýr við og
skokkar ásamt efnilegu afkvæmi
sínu, bak við næstu hæð.
Þessi fjallalind, er mér ekki
með öllu ókunn. í það eina skipti
sem ég var hér á ferð fyrr en nú,
voru félagar mínir ungir elsk-
endur, sem komið höfðu sér sam-
an um að deila kjörum, jafnt í
blíðu sem stríðu, ekki einungis
þá er sól hlær í heiði, heldur
einnig þótt yfir kunni að draga
él eða skugga.
Að lindinni komum við á
björtum morgni, ekki um óttu-
skeið eins og ég nú. Við stað-
næmdumst og nutum fjallafrið-
arins. Unga stúlkan, sem nú er
löngu orðin kona og móðir, gekk
út að vatnsauganu, og speglaði í
því mynd sína og ljósa lokka.
Eflaust hefði sagan, sem löngu
fyrr gerðist við Galtará, endur-
tekið sig, ef ég hefði ekki verið
með í förinni. — Eða — ef til vill
— ekki vaktaði ég unga parið
meðan ég gekk svipaða slóð og
hin móðgaða fjallahind úr Jökul-
dalnum í nótt, en ég vildi for-
vitnast um hvort sjá mætti kuml
nokkurra eyðibýla að baki þeirra
ása er næstir lágu.
Þegar ég sit þarna og horfi í
blátt vatnsaugað, þá virðist mér
sem í því speglist mynd ljós-
lokkaðrar, bjarteygðar, ásthrif-
innar stúlku.
Er það mynd þeirrar er ég
vissi hér síðast á ferð, eða ef til
vill tákn - mynd íslenzku smala-
stúlkunnar, sem öld fram af öld
gætti fjár föður síns, og þekkti
ekki annað endurskin eigin
æskublóma, en það sem birtist i
20 YIKAN
G. tbl.