Vikan - 06.02.1969, Blaðsíða 30
AD MERKJfl MED
STAFNDM
Nú eru fangamörkin í tízku. Það fer eins og eldur í sinu um
Bandaríkin og Norðurevrópu, að sauma út stafina sína — eða
bara einn staf — - í alla mögulega hluti, flíkur, púða, töskur, dúka
— og hvað, sem viðkomandi dettur í hug. Þetta er oft og tíðum
upplífgandi og laglegt, iðulega valdir í þetta slcærir litir og
skreytingar stafanna eru margvíslegar.
Nú er hins vegar ekki í tízku að sauma út stafi, sem eru svo
flókin listaverk í siálfu sér, að ærna fyrirhöfn þurfi til að sjá,
hvaða stafi útsaumurinn eigi að tákna. Stafirnir eru mjög ein-
faldir prentstafir, en skreyttir með margslungnu blómavafi, og
kemur þar fram blómadýrkun vorra daga, „flower-power“. Trú-
lega munu hannyrðaverzlanir hér hafa uppdrætti af slíkum stöf-
um með tilheyrandi skreytingum á boðstólum, en annars er alltaf
skemmtilegast að nota hugmyndaflugið og láta gamminn geysa.
Við ráðleggjum ykkur: Reynið eftir föngum að skapa ykkar eig-
in mynstur og vera frjálsleg í meðferð forms og lita.
☆
Samkvæmisveski úr silfurofnum
þræði, skreytt með upphafsstaf
ur gulli og fíngerðu garni.
Langir treflar þykja fínir nú til
dags og fínastir, séu þeir úr
þunnu, mjúku efni og saumaðir
í þá staíir í skærum litum.
Venjuleg, hvít blússa verður að skartflík, þegar í liana heíur verið saum-
aður upphaísstafur eigandans. L-ið hér á myndinni er hárautt, blómin
heiðgul og blómavafningarnir fagurgrænir.
30 VIIvAN 6- tbl'