Vikan - 06.02.1969, Side 34
í
!
7>
HAMiNGJIi-
LAUSi
NJÓSNAHINN
Njósnarinn, hrczki flugtæknifræð-
ingurinn Douglas Britten, sem
dæmdur var í tuttugu og eins árs
fangelsi. Ekki er þó talið líklegt
að njósnir hans hafi valdið föður-
landinu miklum skaða.
Sígarcttuveskið sem va.r njósnamyndavél. Hún myndað
sjálfkrafa er hún var opnuð.
Sambandsmaður rsritten af Itússa hálfu nefndist Júrí. í
raun réttri var hann rússneskur sendiráðsstarfsmaður að
nafni Alexander Ivanóvitsj Bórisenkó. Hann yfirgaf Lun-
dúnir sex dögum eftir að Britten var handtekinn.
Ekki hafa allir njósnarar heppnina með sér í
líkum mæli og James Bond. í Englandi hefur
nýlega verið afhjúpaður einn, sem allt gekk
öfugt fyrir.
Nú á dögunum dæmdi Lundúnadómstóll einn þrjátíu og sex ára gamlan
mann að nafni Douglas Britten í tuttugu og eins árs fangelsi fyrir
njósnir. I sex ár hafði Britten þessi, sem var loftskeytafræðingur í
brezka flughernum, njósnað fyrir Rússa.
En Douglas Britten var ekki beinlínis neinn James Bond. Fyrir rétti
sagði hann frá njósnamyndavélum, leynilegum fundarstöðum og öðru
sem gæti verið sótt í villtasta njósnareyfara. En Britten og rússneskir
atvinnurekendur hans höfðu ekki heppnina með sér. Þessi haglega
gerðu apparöt þeirra dugðu illa. Og þegar Rússarnir sáu Briften fyrir
flóknu kerfi til að koma áleiðis háleynilegum skýrslum, notaði hann
það einungis til að biðja um launahækkun.
Bíll af gerðinni Volvo kom einnig til sögunnar. Britten átti hann,
og í honum fannst mjög haglega gerð rússnesk njósnamyndavél, eftir
að Britten hafði verið handtekinn.
Allt þetta byrjaði með því að Douglas Britten var mikill áhugamaður
um stuttbylgjusenditæki. Einn daginn, er hann var staddur með tæki
sín á tæknisafni einu, náði hann í gegnum þau sambandi við Rússa einn.
Ljósmyndaöur
Rússinn hafði áhuga á að fá bók nokkra um móttökutæki, og Britten
lofaði að útvega hana. Þeir mæltu sér mót nokkrum vikum síðar. Douglas
mætti þá að vísu handbókarlaus, en Rússinn afhenti honum engu að
síður rúmar tvö þúsund krónur í umslagi. En ekki tók Britten eftir því
að annar Rússi var á höttunum nálægt og tók myndir af atburðinum.
Myndirnar voru síðan notaðar til að knýja Britten til samstarfs.
Hann var fluttur í herstöð á Kýpur og þar komu karlmaður og kona
til fundar við hann af Rússa hálfu. Þau sýndu honum myndirnar frá
Lundúnum, og Douglas gafst fljótlega upp.
Rússarnir höfðu mestan áhuga á merkjakerfi og dulmáli brezka flug-
hersins, en þeir vildu l(ka vita sitt af hverju um liðsforingjana á flug-
vellinum. Þeir hvöttu Douglas til að útvega lista yfir þá, sem héldu
hjákonur, drukku í meira lagi eða sýndu önnur merki veikrar skapgerðar.
Rússarnir fengu þessum þjóni sínum tvær bjórdósir með tvöföldum
botni, lítinn segulmagnaðan kassa og bút af vatnsslöngu, sem var dul-
búið feluhylki. Þessi áhöld áttu að notast til að koma leynilegum upp-
lýsingum áleiðis. Felustaðirnir voru símklefi, bekkur í garði og holt tré.
Framhald á bls. 49.
34 VIKAN 6 tbl