Vikan


Vikan - 06.02.1969, Qupperneq 46

Vikan - 06.02.1969, Qupperneq 46
úpiw úct smw* Hér koma nokkrar upp- skriftir af góðum súpum. Sögufrægar eru franskar súp- ur, sem stundum liafa verið nefndar „leynivopn franskra húsmæðra“, og efst á blaði er þá: FRÖNSK LAUKSÚPA 4 stórir laukar, skornir í þunnar skífur. 2 matsk. smjörlíki. Ca 1 líter kjötsoð. Krydd eftir smekk. Ostur. Laukurinn brúnaður í smjörlíkinu. Hann á að verða gulbrúnn á lit. Kjötsoði hellt yfir, kryddað með salti og pipar, gjarnan lárviðarlaufi og timjam. Allt látið sjóða í hálftíma. Fjórar sneiðar af ristiuðu franskbrauði látnar í heita súpuskál, súpunni hellt yfir og stráð yfir rifnum osti. Gott er að láta súpuna á eldfasta skál, stinga henni síðan inn í heitan ofn, svo osturinn bráðni og fái gulbrúnan lit, en þá er betra að láta brauð- sneiðarnar ofan á súpuna. CRI5ME VICHYSOISSE Þetta er eiginlega frönsk kartöflusúpa. Sagt er að hún sé á borðum á frönskum heimilum árið um kring, bor- in fram rjúkandi heit í vetr- arkuldum, en kæld og sval- andi á sumrin. Efnið í súp- una er: U/2 pund, hráar kartöflur. 1 meðalstór laukur. 1 púrra. 1 líter kjötsoð (gjarnan af súputeningum). Laukurinn og ljósi hluti púrrunnar er skorinn í sneið- ar og látið malla í heitri feiti í pottinum, má ekki brúnast. Kartöflurnar skrældar og sneiddar þunnt, bætt í pott- inn. Kjötsoði hellt yfir, kryddað með salt og pipar eftir smekk. Nú verður súpan að sjóða þar til kartöflurnar eru komnar í mauk. Gjarnan má hella henni upp á sigti og merja í gegn. Dálitlum rjóma hrært í súpuna og fínt hökk- uðum graslauk stráð yfir. Gott er að sjóða blandað, þurrkað grænmeti í súpunni. MARIU LOUISE SÚPA Stór uppskrift. 3 1 kjötsoð. 100 gr. smjör- líki. 1 gulrót, 100 gr. hveiti, 1 steinselja, 1 blaðlaukur, (egg, rjómi, hálfdós gulrætur og grænar baunir). Saltað eftir þörfum. Grænmetið er skorið smátt, brúnað í smjörinu, hveitið bakað saman við, þynnt út með kjötsoðinu. Soðið í hálf- tíma, sigtað gegnum gatasigti. Gott er að bæta súpuna með þeyttum rjóma, líka má láta gulrætur og grænar baunir saman við. Borin fram með litlum súpubrauðum. TÓMATSÚPA 3 1 kjötsoð, 50 gr. smjörl., 50 gr. hveiti, tómatlögur, salt eftir smekk. Smjörlíki og hveiti bakað saman, þynnt út með kjötsoð- inu, tómatlögur látinn í eftir bragði, gjarnan 1 matsk. sherry. Soðnar makkarónur eða litlar fiskbollur látnar útí súpuna. SVEPPASIJPA 2 matsk. smjörlíki, 1 matsk. fínskorinn laukur, 3 matsk. hveiti, 3 bollar mjólk eða 2 bollar mjólk og 1 bolli kjöt- soð. 1 bolli brytjaðir sveppir. Salt — pipar. Smjörl. brætt, laukur og sveppir láttið malla í, ekkíi brúnast. Ilveiti bætt í og hrært út smátt og smátt með vökvanum. Þynnt út ef með þarf, þá gjarnan með sveppa eða grænmetissoði. Látið sjóða vel í gegn. Og svo eru hér tvær fislc- súpur að vísu af skandina- viskum uppruna. SÆNSK FISKSÚPA Um það bil 700 gr. af góð- 46 VIKAN 6 tbl-

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.