Vikan - 06.02.1969, Side 48
óþolandi. Færðumst við ekki
neitt til?
Þegar ég opnaði augun brá
mér svo, að hjartað tók ákaft
viðbragð. Syðri gnýpan á Koh-
ring, kolsvört í myrkrinu, virt-
ist þess albúin að steypast yfir
skipið, og hvergi á þessu há-
fjalli sortans glytti í neina lýsu,
ckki varð greint garg sjófugla,
né neitt annað hljóð. Það færð-
ist nær eins og óumflýjanleg ör-
lög, sýndist samt vera svo nærri,
að ekki þyrfti annað cn að rétta
út hönd, til þess að hægt væri
að snerta það. Ég sá hvar menn
mínir, sem stóðu á verði, þyrpt-
ust saman miðskipa, og horfðu á
þessa ógn og skelfing rísa á móti
sér.
„Ætlið þér að halda sömu
stefnu áfram, herra?“ spurði
maður, sem stóð við hliðina á
mér, með óstyrkri rödd.
Ég lét sem ég heyrði ekki til
hans. Ég hafði öðru að sinna.
„Látið skipið halda fullri ferð,
og í sömu stefnu. Það dugir ekki
að breyta um, enn sem komið
er,“ sagði ég með þunga, sem
ekki leyfði nein mótmæli.
„Ég sé ekki vel seglin,“ sagði
maðurinn við stýrið, með ann-
arlegri, gneggjandi rödd.
Var skipið nú komið nógu
nærri landi? Víst var það kom-
ið — ekki inn í skuggann af
landinu, nei, þetta var ekki
skuggi, heldur svelgjandi myrk-
ur, og mundi nokkur von undan-
komu?
„Biðjið fyrsta stýrimann að
koma,“ sagði ég við unga mann-
inn, sem stóð við hliðina á mér,
kyrr eins og dauðinn sjálfur.
Rödd mín hljómaði hærra en
ég átti von á, því bergmálið frá
fjallinu svaraði henni. Ég heyrði
marga menn segja í einu: „Við
erum allir komnir upp á þilfar,
herra,“
Aftur sló þögninni á, og svarta
báknið þokaðist nær, stækkaði
og hækkaði, hljóðlaust, aldimmt,
hvergi bar skugga af skugga.
Þvílík þögn ríkti í hópnum, að
ætla mætti að þetta væru dauð-
ir menn staddir á farkosti sínum
fyrir hliðum undirheima.
„Guð hjálpi okkur, hvar erum
við staddir?"
Þetta var fyrsti stýrimaður.
Hann var kominn fast upp að
mér, þar sem ég stóð. Hann var
sem þrumu lostinn, jafnvel yfir-
skeggið mikla hafði brugðizt
honum í þetta sinn. Hann skellti
saman lófunum og sagði aðeins
þetta:
„Það er úti um okkur!“
„Ekki að æðrast!“ sagði ég
hvatskeytslega.
Hann lækkaði röddina, en ég
sá örvæntinguna speglast í
hverju hans viðviki. „Hvaða er-
indi eigum við hingað?“
„Að fá byr af landáttinni.“
Mér sýndist hann ætla að fara
að þrífa í hárið á sér til þess að
reyta það, og hann svaraði mér
af hvatvísi:
„Skipið kemst aldrei framar
út. Þarna höfðuð þér það af,
herra, og ég þóttist alltaf vita
að svona mundi fara. Skipið get-
ur ekki haldið í veðrið, og við
erum komnir of nærr til þess að
fært sé að hafa nokkra viðdvöl.
Skipið strandar fyrr en takist að
snúa því. Guð hjálpi okkur, ó!“
Ég þreif í handlegginn á hon-
um, áður en hann næði upp í
hárið á sér og dustaði hann dug-
lega.
„Skipið er strandað!" kveinaði
hann, og reyndi að losa sig.
En ég sleppti ekki takinu
heldur hélt áfram að dusta hann
til. „Farið fram í,“ sagði ég, „þér
haldið áfram í sömu átt, heyrið
þér það,“ kippt í - ,.og stanzið
þarna,“ — aftur kippt í — „og
haldið kjafti," — kippur „og
látið hagræða framseglunum,“
- dustað — dustað og dust
að.
En ekki þorði ég að líta til
lands af ótta við það að mér
féllist þá hugur. Að lyktum
sleppti ég honum, og hann
skauzt burt eins fljótt og hann
komst, eða eins og væri hann að
flýja lífsháska. Nú gafst mér
tóm til að hugsa til tvífa^ans
míns í seglageymslunni, og
hvernig honum liði. Hann hlaut
að heyra hvert orð, og hver
veit nema hann hafi skilið hvers-
vegna ég hætti öllu til að kom-
ast svona nærri landi. Fyrsta
fyrrskipun mín var þessi: „Hart
á hléborða,11 og samstundis kvað
við bergmál úr fjallinu, eins og
úr óhugnanlega djúpum fjalla-
gljúfrum. Og ég horfði og horfði
til lands, reyndi af öllum mætti
að átta mig á ferð skipsins. En
sjórinn var svo sléttur að ekki
bar gára af gáru, ég fann ekki
einu sinni hvort skipið hreyfðist.
En nú hlaut tvífarinn minn að
vera farinn að hugsa til hreyf-
ings, ef hann var þá ekki far-
inn.
Fjallið mikla, sem yfir okkur
vofði, svo að nema virtist við
siglutoppana, byrjaði nú að þok-
ast örlítið og með engu hljóði,
frá skipshliðinni. Og nú gleymdi
ég snöggvast ókunna manninum,
sem var að kveðja skipið, mundi
ekki annað en það, að ég var
sjálfur ókunnur maður á skip-
inu. Ég þekkti það alls ekki.
Mundi þetta takast? Hvernig
átti að fara að skipi þessu svo
það léti að stjórn?
Ég sveiflaði ránni og beið í
ofvæni. Líklega var skipið stanz-
að og örlög þess og okkar héngu
þá á bláþræði, en hið biksvarta
bákn Koh-rings mundi lykjast
eins og eilífðar-skuggi um okk-
ur — er yfir lyki. Við hvaða
viðbrögðum skipsins mátti bú-
ast núna? Færðist það til? Ég
skundaði til hægri og sá þá ekki
á dimmum sjónum annað en
OSRAM
BÆTIR OR SOLARLEYSI SKAMMDEGISINS.
IAUPIÐ OSRAM
VEGNA GÆÐANNA.
Þér snarifl með áskrift
IflKAN
Skiptiolði 33 - sfmi 35320
48 VIKAN 6- tbl-