Vikan - 06.03.1969, Qupperneq 2
m,
ilii
Colgate fluor
gerir tennurnar sterkari
við hverja burstun
Spyrjiö tannlækni yðar...
hann veit betur en nokkur annar, hvað Colgate Fluor hefur
mikla þýðingu fyrir tennur yðar og allrar fjölskyldunnar.
Byrjið í dag
- það er aldrei of seint...
Frá allra fyrstu burstun styrkír Colgate Fluor tannglerunginn
og ver tennurnar skemmdum. Með þvi að bursta tennurnar
daglega með Colgate Fluor tannkremi, fáið þér virka vörn
gegn sýrum þeim, sem myndast í munninum og mjög er hætt
við að eyðileggi tennurnar, ekki sízt tennur barnanna.
Auk þess er þetta dásamlega, ferska bragð sem aðeins Colgate Fluor tannkrem hefur.
Skemmtistaður
unga fólksins
Skemmtistaður unga fóiks-
ins, hvort sem hann verður
nefndur Tónabær eða Hlíða-
bær, er nú tekinn til starfa.
Aðsóknin að honum strax í
upphafi sýnir vel, hversu
mikil þörf var fyrir slíkan
stað, þar sem táningarnir geta
skemmt sér við góðar aðstæð-
ur á heilbrigðan hátt. Það
veitir foreldrum talsvert ör-
yggi að vita af börnum sínum
á skemmtistað, sem bæjarfé-
lagið sjálft rekur. Það er að
minnsta kosti hægt að gera
ráð fyrir, að velferð unga
fólksins sé látin sitja í fyrir-
rúmi á slíkum stað, en ekki
gróðasjónarmið. Þeir aðilar
eru nógu margir, sem kepp-
ast um að færa sér í nyt auk-
in fjárráð æskufólks og beita
öllum brögðum til þess að
hagnast á því.
Margir vilja nefna okkar
tíma „öld táninganna“, og má
það til sanns vegar færa. Al-
drei hefur ungt fólk hér á
landi búið við jafn góðar ytri
aðstæður. Hins vegar hafa
breyttir tímar og lifnaðar-
hættir skapað þessar aðstæð-
ur, en í rauninni hefur lítið
verið gert fyrir táningana af
þjóðfélagsins hálfu. Það var
því sannarlega mál til komið
að bæta aðstöðu þeirra til
heilbrigðs skemmtanahalds.
Sú hugmynd hefur komið
fram í borgarstjórn, að kom-
ið verði á fót slíkum skemmti-
stöðum í öllum stærstu hverf-
um borgarinnar. Þessi hug-
mynd er áreiðanlega þörf og
mætti byrja strax að undir-
búa framkvæmd hennar.
Einnig væri fróðlegt, ef fleiri
hugmyndir um nýmæli í
æskulýðsstarfi kæmu fram.
Kynslóð, sem ekki býr vel að
æsku sinni, hefur misst trúna
á sjálfa sig og framtíð sína.
G.Gr.
1