Vikan - 06.03.1969, Qupperneq 4
Enginn vill láta væna sig
um þröngsýni nú á dögum.
En hvað er hægt að gera til
að víkka sjóndeildarhring-
inn? Bezta ráðið til þess er
að lesa ÚRVAL. Þar birtast
í samþjöppuðu formi allar
helztu greinar, sem athygli
hafa vakið erlendis. Auk
þess birtist úrdráttur úr
heilli bók í hverju hefti,
margar innlendar greinar,
smáþættir ogfleira. ÚRVAL
er eina blaðið sinnar teg-
undar hér á landi. Úrval er
ómissandi þáttur í lífi hvers
nútímamanns.
PILLURNAR ÞRJÁR OG
SJÓNVARPIÐ
Kæri Póstur!
Mig hefur lengi langað
til að skrifa þér, því að ég
sé, að þú leysir úr þraut-
um svo margra. Eg tala nú
ekki um, þegar fólk er far-
ið að spyrja þig, hvenær
það megi byrja að kyssa og
svoleiðis. EÍg vonast eftir
að þú svarir mér engu síð-
ur en kossabréfritunum.
Þaning er málum háttað,
að ég var að lesa grein í
gamalli Viku (8. tbl. 1968)
um pillurnar þrjár, sem
taldar eru 99.99% til 100%
öruggar. Nú vil ég spyrja,
hvort allar pillurnar fáist
hér á landi. Ef svo er ekki,
hver er þá ástæðan til
þess? Ef pillan eða hylkið
F 6103 fæst ekki, hvenær
er þá von á því hingað? Eg
tel alveg tvímælalaust, að
þetta lyf eigi að vera á
boðstólum hér. Það mundi
örugglega draga úr fæð-
ingu óskilgetinna barna og
ekki mun af veita. Sg held,
að það þurfi meiri fræðslu
um kynferðismál hér á
landi, til dæmis í blöðum
og sjónvarpi.
En nóg um það að sinni.
Svo vil ég biðja þig að
koma því til þeirra þarna
á sjónvarpinu fyrir mig, að
þeir hafi meira af leikþátt-
um með íslenzkum leikur-
um, eins og þeir eru nú
dýrlegir margir hverjir. Eg
nefni engin nöfn.
Með fyrirfram þökk fyr-
ir greinagóð svör.
Vertu svo marg blessað-
ur og sæll,
G.S.Þ.
Líklega er ekki nema ein
af þessum þremur pillu-
tegundum fáanleg hér á
landi og ekki nema út á
lyfseðil frá lækni. Þó kann
að vera, að hinar tegund-
irnar séu komnar eða
væntanlegar innan
skamms. Þú verður að snúa
þér til einhvers læknis til
þess að fá vitneskju um
það. Sjónvarpið mun alla
tíð hafa haft fullan hug á
að flytja leikrit með inn-
lendum leikurum í miklu
rikara mæli en gert hefur
verið hingað til. En taxti
leikaranna kvað vera svo
hár, að fjárhagur sjón-
varpsins leyfir alls ekki
innlend leikrit nema við
hátíðleg tækifæri. fslenzku
leikararnir eru sem sagt
ekki aðeins „dýrlegir" eins
og þú kemst að orði, held-
ur líka dýrir.
BRODDUR í SKAUPINU
Kæri Póstur!
Eg hef lesið það í blöð-
unum og einnig heyrt það
manna á meðal, að mörg-
um þykir sjónvarpinu okk-
ar hafa farið aftur. É'g tel
mig ekki dómbæra á það,
þar sem ég hef ekki haft
sjónvarp nema í rúmt ár.
Auðvitað má ótalmargt að
því finna, en ég er satt að
segja fegin, að það skuli
ekki vera betra, því að ég
hef í mörg horn að líta
heima hjá mér og líklega
yrði manni anzi lítið úr
verki, ef sjónvarpið væri
bráðskemmtilegt á hverju
einasta kvöldi.
Mig langar til að minn-
ast á bezta innlenda þátt-
inn, sem ég hef séð í sjón-
varpinu. Ég hef hvergi séð
honum hælt í blöðunum og
þykir það kynlegt. Þetta
var Áramótaskaup Flosa
Ólafssonar og Ólafs Gauks,
en hluti af því var endur-
tekinn nú fyrir skömmu.
Reyndar hefði vel mátt
endurtaka þáttinn í heild,
en hvað um það. Það er
skemmst frá að segja, að
atriði þessa þáttar voru
hvert öðru betra. Þau voru
mörg hver sprenghlæileg
og það sem meira var: Það
var talsvert beittur brodd-
ur í skopinu. Eg nefni sem
dæmi atriðið „Efst á meiði“
og atriðið um „ákvarðann“
og „verðkvarðann“. Bæði
þessi atriði hittu í mark
að mínum dómi. Það er
kannski þess vegna, sem
hljótt hefur verið um Ára-
mótaskaupið? Skyldi ekki
hafa runnið upp ljós fyrir
mörgum, þegar þeir sáu
sérfræðingana okkar 1
svona raunsönnum spé-
spegli, svo að ég taki nú
svolítið menningarvitalega
til orða?
4 VIKAN
10. tbl.