Vikan - 06.03.1969, Síða 9
NO. 1
TIL LJRSLITA
Nana er 15 ára gömul,
fædd 16. október 1953,
yngst þriggja barna Gunn-
ars Egilssonar, hljóðfæra-
leikara, og Ásu Gunnars-
dóttur. Hún er 163 cm á
hæð, bláeyg og ljóshærð.
Hún er í Vogaskóla,
landsprófsdeild, og íslenzka
og reikningur eru uppá-
haldsfögin. Einna leiðinleg-
ust þykir henni landafræði.
í vor tekur hún landspróf
en hyggst að því loknu
halda í menntaskóla og
þaðan í háskóla og leggja
stund á íslenzku, með það
fyrir augum að verða
menntaskólakennari í því
fagi. Á sumrin hefur henni
alla jafna orðið lltið úr
verki, að hún sjálf segir,
nema hvað síðastliðið sum-
ar var hún í unglingavinn-
unni.
Tómstundir segir hún
ekki margar, því námið
krefjist mikils. Þó er hún í
dansskóla Hermanns Ragn-
ars, og lagði þar áður
nokkra stund á ballett. —
Þeim Karenu, sem báðar
eru í sama skóla, kemur
saman um, að félagslíf þar
sé ekki mikið. Þegar tími
er til, les hún mikið, hvað
sem hendi er næst, heldur
þó einna mest upp á saka-
málasögur eins og er. Hún
horfir gjarnan á sjónvarp,
einkum fréttir, og hlustar á
þætti unga fólksins í út-
varpinu. Þá sjaldan hún
hefur farið á böll, hefur
hún farið á skólaböll og i
Las Vegas. Nú hefur starf-
semi þar verið breytt, svo
aldurslágmark er 18 ár, og
hún hyggst prófa hið nýja
æskulýðsheimili í Hliðun-
um (Lídó) í staðinn. Hún
fór einu sinni í Saltvík I
sumar en var svo óheppin
með veður, að það gaf ekki
góða raun.
Hún myndi helzt vilja
vera íri, þyrfti hún að velja
sér annað þjóðerni. Hún
hefur þó aldrei til írlands
komið, en þykir fallegt þar
eftir myndum að dæma.
Hins vegar hefur hún kom-
ið til Englands og likaði vel
þar — en samt — Irland
heillar hana meir.
☆
10. tbi. VIKAN 9
i