Vikan - 06.03.1969, Page 11
NO. 2
TIL ÚRSLITA
Karen er 15 ára gömul,
fædd 19. september 1953,
yngri dóttir Axels Mogen-
sen, matreiðslumanns, sem
nú er látinn, og Ásdísar
Mogensen. Karen er 171 cm
á hæð, með gráblá augu og
brúnt hár.
Hún er í Vogaskóla, og
bekkurinn heitir S-9 val-
deild. Valdeild heitir hann
vegna þess, að auk kennslu-
stunda á morgnana með
föstu námsefni, geta nem-
endur að verulegu leyti
valið sér námsefni sem
kennt er í tímum eftir há-
degi, 4—5 valfög auk föstu
faganna mun vera lágmark.
Uppáhaldsfög Karenar eru
enska og vélritun, en leið-
inlegasta fagið líklega
þýzka — hún er valfag. í
vor tekur Karen svo gagn-
fræðapróf.
Á sumrin hefur Karen
nú um langt skeið unnið
hjá Sláturfélagi Suðurlands,
í eldhúsinu á Grensásveg-
inum. Aðspurð segir hún
brosandi, að vinnan hafi
einkum verið fólgin í því,
að skammta salat og sinn-
ep í dollur — eða annað
álíka. Enda hyggur hún
hærra í framtíðinni. — Að
loknu gagnfræðaprófi ætlar
hún að jafna fjárhaginn
með því að vinna í eitt ár
eða svo, en gerast síðan
fóstrunemi eða þjálfa sig
fyrir kennslu vangefinna
barna.
í frítímum les hún mik-
ið, flest lesefni annað en
ferðasögur. Hún horfir
stundum á sjónvarp, eink-
um framhaldsþætti, og
hlustar á Lög unga fólks-
ins og Á nótum æskunnar
í útvarpinu. Á böll fer hún
lítið, nema skólaböll, —
og hefur aldrei komið á
sveitaball. Hún biður ævin-
lega leyfis, þegar hún fer
að heiman og segir hvert
hún ætli og hvenær hún sé
væntanleg heim aftur. Hún
segir alla sína kunningja
hafa sama háttinn á.
Þótt töluvert danskt blóð
renni um æðar hennar, —
faðir hennar var af dönsku
foreldri en fæddur hér og
búsettur alla tíð — hefur
hún lítinn áhuga fyrir því
þjóðerni, en kysi helzt að
vera Englendingur, væri
hún ekki íslenzk. Hún hef-
ur komið til Skotlands og
þótti þar einkar fallegt, en
fátæktin áberandi mikil. —
Svo hún vildi heldur vera
ensk og búa í fjallahéruð-
unum næst Skotlandi....
☆