Vikan - 06.03.1969, Síða 16
SIBARI HLUTI
HAROLDSEN LAFAYETTE HUNT,
olíukóngur, 78 ára
Það er eins gott að búast ekki við míklu, jyrir þá
sem boðnir eru að borða hjá Heira Tlunt. A mat-
seðlinum er ojtast. pylsur og kartöjlusalat....
Á hverjum morgni, þegar Haroldsen Lafayette Hunt vakn-
ar, er hann orðinn rúmlega 1.5 milljón krónum ríkari en dag-
inn áður. En þrátt fyrir það, lifir hann lífi sínu eiginlega alveg
eins og hann gerði, þegar hann var fátækur skógarhöggs-
maður, fyrir 40 árum.
Oft, hefur hanh miðdagsmatinn með sér í bréfi. Og við-
skiptavinir, sem koma til hans á skrifstofuna í Dallas, fá
yfirleitt ekki annað en pylsur og kartöflusalat, þegar þeir
borða með lionum á veitingahúsum.
Hunt hefur andstyggð á því að sóa peningum. Amerískur
blaðamaður spurði hann einu sinni hversvegna hann hefði
hætt að reykja, fyrir mörgum árum. Hann svarað: — Þá vissi
ég að hver stund i líl’i mínu var 40.000 dollara virði. Svo
þér sjáið að það er alltof dýrmætur tími til að eyða honum
í að kveikja á eldspýtum, eða finnst yður það ekki?
En ]>að er eitt sem Iíunt sér ekki eftir tíma sínum í, og
það eru stjórnmálin. Ilann er Texani í lnið og hár og reynir
að fá fótfestu á stjórnmálasviðinu. Hann er andkommúnisti,
og hann sér ekkert eftir því að greiða fyrir 15 mínútna út-
sendingar frá 000 útvarpsstöðvum daglega.
En eitt er það sem hinn aldraði auðkýfingur getur ekki
fengið þrátt fyrir alla sina peninga, og það er að verða blaða-
maður og fá greitt fyrir greinar sínar. Hann reyndi einu
sinni að bjóða einum 150 blöðum grein eftir sig, en árang-
urslaust. Blöðin vildu ekki einu sinni birta greinar hans
ókeypis. Það kom þó að því að „Houston Cronicle" að lokum
lét til leiðast að birta greinar hans, og bauð honum 5 dollara
laun á viku. Þegar han fékk fyrstu kaupávísunina, varð olíu-
kóngurinn himinlifandi. Hann sendi strax afrit af ávísuninni
til tengdamóður sinnar og aldraðrar systur.
16 VIKAN 10- tbl-