Vikan - 06.03.1969, Page 21
EIGNAÐIST
FIMMTÁN HVOLPA
Stolt og virðuleg situr hún
fyrir hjá ljósmyndaranum með
hvolpana sína, sem eru hvorki
meira né minna en 13 talsins.
Hún heitir Sahri-Tien, og er af
mjög sjaldgæfu hundakyni. Eig-
endur eru herra og frú John
Popper frá Hindhead í Surrey
í Englandi.
Sahri-Tien eignaðist fimmtán
hvolpa, en tveir fæddust and-
vana. Er ekki vitað til, að nokk-
ur tík hafi nokkru sinni eign-
azt svo marga hvolpa í einu.
Allir hvolparnir bera göfug
nöfn, enda hæfir ekki annað. í
heimalandinu, Afghanistan, eru
nefnilega hundar af þessu kyni
ekki í eigu annarra en prinsa og
aðalsmanna. Hundar af þessari
sjaldgæfu tegund ganga kaupum
og sölum fyrir offjár.
Múhammeð spámaður átti
hund af afghan-kyni, sem hann
tók miklu ástfóstri við. Sagan
segir, að þegar hundurinn lézt
hafi Allah gefið Múhammeð sér-
stakt leyfi til þess að hundur
hans mætti komast inn í himna-
ríki. Kanski er hér um að ræða
fyrsta hundinn, sem fékk að
fara inn fyrir gullna hliðið!
Um langt skeið reyndu íbú-
ar í Afghanistan að gæta hunda
sinna eins vendilega og nokkur
kostur var á. Það var stranglega
bannað að flytja þá úr landi.
En á nítjándu öldinni var send-
ur brezkur refsileiðangur til
Afghanistan og kom aftur með
fjóra hunda. Frá þeim eru allir
afghanhundar, sem til eru á
Vesturlöndum, komnir.
Á myndinni sjáum við Sahri-
Tien og hvolpana hennar, en þeir
heita: Aiedya, Akuwazi, Anush-
ka, Ansahriya, Anukha, Aleesha,
Azrana, Ankarima, Acushla,
Alikanta, Anya-Leazh, Azudibu
og Ayishya.
En hvernig eigendurnir fara
að þekkja þá í sundur og bera
fram nöfnin þeirra, er hins veg-
ar önnur saga.
metsúlubOk
UM KRUPP-
FJÖLSKYLDUNA
Krupp-fjölskyldan þýzka hef-
ur verið, mikið í kastljósinu að
undanförnu. Greinar um hana
hafa birzt í vikublöðum um all-
an heim. VIKAN birti til dæmis
grein um hana á síðasta ári. Og
William Mancester, sá sem skrif-
aði bókina Dauði Kennedys og
VIKAN birti á sínum tíma, hef-
ur skrifað heila bók um þessa
illræmdu fjölskyldu. Hún heitir
„The Arms of Krupp“ og er í
þriðja sæti á lista yfir söluhæstu
bækur í Bandaríkjunum, þegar
þetta er skrifað.
Nafnið Krupp skaut fyrst upp
kollinum í Þýzkalandi árið 1587.
Þá tókst fyrsta af mörgum með-
limum ættarinnar að auðgast á
neyð annarra. í augum alls
heimsins, að Þjóðverjum kannski
undanskildum, táknar nafnið
Krupp valdasýki, fallbyssur, til-
litsleysi, þjáningar, blóð og
dauða. í augum sumra Þjóðverja
kann það þó enn að tákna styrk
og yfirburði á sviði iðnaðar.
Áhrifa Krupps-fjölskyldunnar
hefur gætt í fjögur hundruð ár,
en nú er þeim endanlega lokið.
Það er einmitt í tilefni af því,
sem verið er að rifja upp ótrú-
lega og óhugnanlega sögu þess-
arar fjölskyldu.
Á myndinni eru Friedrich
Krupp (1787—1826), Alfred
Krupp (1812—1887), Friedrich
Alfred Krupp (1854—1902),
Gustav Krupp von Bohlen und
Halbach (1870—1950), Alfred
Krupp von Bohlen und Halbach
(1907—1967) og loks Arndt von
Bohlen und Halbach (1938—?).
StDAN SÍDAST
l_____________________ J
10 tbl VIKAN 21