Vikan - 06.03.1969, Síða 22
Hvað er hægt að gera við skalla? Þessari
spurningu velta margir fyrir sér. Það er aðeins
ein lausn sem dugar að dómi sænskra lækna.
Það er að flytja til hársvörð. Ef þetta er gert á
réttan hátt, heppnast það eiginlega alltaf. Og
það hár fellur ekki af.
Lars Engstrand dósent seg-
ir: Ef talað er um venjulegan
skalla, er álitið að hann stafi
af því að sinahimnurnar
þykkni og trufli hringrás
blóðsins og blóðstreymi til
hárrótanna. Þær rýrna og
hárið hættir að vaxa og hverf-
ur svo alveg. Það er ekki neitt
innbyggt klukkuverk, sem
stöðvar hárvöxtinn á vissu
árabili. En það var almennt
álitið áður fyrr.
Ilversvegna er oftast hár-
krans knngum skallann?
Vegna þess að sinahimnan
liggur eins og kollhúfa yfir
hvirfilinn. Utan við hana er
ekki eins mikil spenna í vefj-
unum, sem minnkar blóð-
streymi til hárrótanna.
Hafa þá aðeins karlmenn
sinahimnu? Hversvegna verða
konur ekki sköllóttar?
Bæði kynin hafa sina-
himnu, en á konum er hún
næfurþunn og helzt þannig'
alla ævi. (Nema hjá þeim
mjög íau undantekningum,
sem verða sköllóttar). Það
virðist vera tvennt sem or-
sakar skalla: karlhormóna-
starfsemi og svo að það er
mjög arfgengt. Það er álitið
að erfðirnar ráði ástandi sina-
himnunnar en að hormóna-
starfsemin sjái um þróunar-
ferilinn. Það er því ör starf-
semi karlhormóna sem ræður
miklum skeggvexti og skalla
hjá mönnum um tvítugt . . .
Hvemig stendur á því að
þykk sinahimna hefir slílc
áhrif?
22 VIKAN 10- tbl-
Sinahimnan er bundin við
undirhúðina með vefjaneti.
Þegar sinahimnan strengist,
rýrnar þetta vefjanet og
sömuleiðis húðin með hárót-
unum, blóðstreymið í húðinni
verður hægara. Því fyrr sem
sinahimnan þykknar, því fyrr
dettur hárið af. Tvítugir
menn, sem sýnilega hafa byrj-
andi skalla, geta verið alger-
lega sköllóttir eftir 4—5 ár,
þrítugir eftir 6—7 ár og fer-
tugir eftir 10—12 ár. Þeir sem
halda hárinu fram yfir fimm-
tugt, halda því venjulega til
æviloka. Skýringin er í því
fólgin að hormónastarfsemi er
svo miklu örari á unga aldri.
Er nokkuð til í því að hattar
og loðhúfur eigi sök á þessu?
Það er oftast nolclcuð hár fyr-
ir neðan hattbarðið.
Alls ekki, nema hatturinn
sé of þröngur. Það er blóðrás-
in sem stjórnar þessu. Ef kon-
ur sofa með hárið of strengt,
eða vefja það of fast upp á
rúllur, getiir hársvörðurinn
skaðazt.
Er nokkuð ráð til að koma í
veg fyrir eða stöðva luirlos?
Já, það er liægt að rista upp
sinahimnuna með svokallaðri
höfuðleðursaðigerð, til að
minnka þensluna í hársverð-
inum. Þessi aðgerð tekur 45
mínútur, og er í því fólgin að
sinahimnan er losuð frá húð-
inni og gerður í liana T-Iaga
skurður, 16 cm langur. Þetta
er gert við staðdeyfingu. í
70—80 prósent tilvikum
heppnast þessi aðgerð. Skurð-