Vikan - 06.03.1969, Qupperneq 37
Ilér eru þrjár
myndir sem sýna
hvernig nýta má
bil milli efri
skápa og borös.
Svona hjólaborö
eru hcntug í
stóru gamaldags
cldhíisi, þar sem
langt er frá clda-
vcl að vinnu-
borði.
Myndin á hinni síðunni sýnir grunnan skáp,
sem komið hefur verið fyrir í gömlu eldhúsi
og hýsir margs konar rafmagnsáhöld.
/ ---------N
YMISLEGT UM
EPLI §S
GRÆNMETi
Epli geta verið varasöm. Ekki
til átu, fjarri því, en rannsóknir
hafa sýnt að epli gefa frá sér
lofttegund, svonefnt etylengas og
þetta gas getur verið skaðlegt
fyrir annað grænmeti, sé það
geymt nærri eplunum, það jafn-
vel breytir bragði. Margs konar
blóm þola ekki að epli standi til
lengdar í sömu stofu, blóm-
hnappar visna og falla af, meira
að segja getur tekið fyrir blómg-
un, en þá hafa blómin orðið fyr-
ir nokkuð slöðugum samvistum
við eplin.
Gulrætur þola líka illa návist
eplanna, svo óvarlegt er að
geyma þau í sama skáp.
Rannsóknir hafa einnig farið
fram á því, við hvaða hita og
kringumstæður alls konar græn-
meti geymist bezt. Kartöflur
geymast bezt við 8—12 stiga
hita. Hlýja spillir blómkáli og
blaðsalati, bezta hitastig fyrir
það eru 2—4 stig. Skemmt græn-
meti „smitar“ það sem næst því
liggur, svo um er að gera að
kasta því fljótlega.
Tómatar gefa líka frá sér dá-
lítið etylengas og það þolir
agúrkan til dæmis illa, hún guln-
ar og verður seig í sambúð við
tómata, svo ekki er þeim hollt
að geymast saman. Og óska-
geymsluhiti agúrkunnar er ca.
12 stig. *
V_______________________________J
10. tbl.
VIKAN 37