Vikan - 10.04.1969, Qupperneq 8
STENTOFON
STENTOFON
kallkerfin fyrir skrifstofur og verksmiðjur.
*
Látið STENTOFON
kallkerfið létta yður störfin.
*
Með STENTOFON
kallkerfinu getur einn talað við alla og
allir við einn.
Sparið tíma - Sparið sporin - Sparið
peninga.
STENTOFON gerir allt þetta fyrir yður.
Allar nánari upplýsingar fúslega veittar hjá
STENTAFON umboðinu.
Georg Ámundason & co.
Sími 81180 — BOx 698 — Reykjavík.
V________________________________/
( ^
Þóp sparið með oskrift
IflKAN
Skipholtl 33 - sfml 35330
FARIÐ MEÐ BREF
Á NÆSTA BÆ
brekkubrún en fyrir góðu.
Að dreyma að maður eigi
að bera bréf til ákveðins
manns getur táknað nýtt
umhverfi. En þar sem
bréfið týndist á leiðinni í
draumi þínum, — þá mun
dreymandinn búa áfram á
sama stað. Allt ber sem
sagt að sama brunni: Það
tekst að sigrast á erfiðieik-
unum, en hvers eðlis þeir
eru getum við ekki sagt
Sextuga konu á Fljóts-
dalshéraði dreymdi eftir-
farandi draum. Ég hef
skráð hann eftir henni og
er hann á þessa leið:
„Mig dreymdi 9. marz,
að ég legg'af stað með bréf
til næsta bæjar. Ég geng
gamlar engjar, sem mér
eru kunnar. Þar sé ég tvö
stór heysæti og tvo gráa
hesta, sem standa hlið við
hlið á lækjarbakkanum. ■—
Ég hafði hugsað mér að
stikla yfir lækinn, en það
tekst ekki, svo að ég verð
að vaða yfir hann. En það
merkilega er, að ég er al-
veg þurr í fæturna, þegar
yfir er komið. Síðan geng
ég upp brekku, sem mér
virðist aldrei ætla að taka
enda. Loks kemst ég þó
upp og er ég þá komin að
bænum, sem ég bý á. Út
ganga drengur og stúlka.
Drengurinn vill ekki
heilsa, en þá kemur frúin
út. Uppgötva ég þá, að mér
er með öllu týnt bréfið,
sem hún átti að fá.
Það skal að lokum tekið
fram, að ekki er bílvegur
þessa leið, aðeins hestagöt-
ur og stutt á milli bæja.
Ég óska eindregið eftir
birtingu bessa draums og
ráðningu.
H. M. D.
Þessi draumur táknar
t erfiðieika, sem farsællega
tekst að sigrast á. Á eftir
B roun líf dreymandans
n verða miklu litríkara og
U happasælla en áður. Nær
öll tákn draumsins benda
til þessa. Heysæti táknar
sigur á erfiðleikum og
fjárhagslegan ávinning að
auki. Grár hestur táknar
gleði og gæfu. Að vaða
vatn er fyrir veikindum,
en komist dreymandinn
heill á húfi upp úr því,
nær hann fullri heilsu aft-
ur. Að komast upp á
um.
KÝR ÚTI í KULDA
OG KOSS Á HÖKU
Kæra Vika!
Viltu gera svo vel að
ráða fyrir mig draum, sem
mig dreymdi fyrir nokkru.
Ég vil taka það fram, að
ég á heima í sveit, er
átján ára og ógift.
Draumurinn er svona:
Mér finnst koma hér
maður, sem ég hef aldrei
séð, en samt átti hann
heima hér í sveitinni. Hann
biður föður minn að hjálpa
sér að ná í lamb, sem sé
fast í klettum hér fyrir of-
an bæinn. Þeir fara svo og
ná í lambið. Ég lit út um
gluggann, en hann veit til
fjalls. Sé ég þá, að kýr
stendur skammt frá lamb-
inu. Mér finnst það ærið
undarlegt, því að það er
komið haust og snjór yfir
öllu.
Þeir koma heim nokkru
síðar. Ég spyr þá um kúna,
hvort hún sé ekki illa far-
in að vera svona úti í
kuldanum. Þeir segja, að
hún sé ekki horuð, en eyr-
un á henni séu svo þunn,
og sums staðar komin á
þau göt. Svo fer mamma
að gefa þeim kaffi. Mér
finnst einkennilegt, að hún
skyldi ekki heldur gefa
þeim að borða.
Þegar þeir eru búnir að
drekka, fer maðurinn að
kveðja. Hann kveður alla
með handabandi. Þegar
röðin er komin að mér, tek
ég eftir því, að hann er
með gullhring, en hann
var ekki með neinn hring
á meðan hann var að
drekka. Meðan hann held-
ur í hönd mína, horfir
hann stöðugt í augu mín.
Svo lýtur hann áfram, eins
og hann ætli að kyssa mig,
Framhald á bls. 44.
8 VIKAN 15-tbl-