Vikan - 10.04.1969, Qupperneq 16
Þarna býr þetta fræga, fagra, ríka og dugðuga fólk, og líka
þeir sem valda hneyksli með líferni sínu. Allt er þetta frægt
fólk. Allt í kringum hið fagra Genfarvatn byggir það villur
sínar, eða kaupir skrautlegar smáhallir. I Genf og í hinum
mörgu unaðslegu þorpum kringum vatnið búa sumir allt árið,
en aðrir hluta úr árinu. Það er hagkvæmt að búa þarna, vegna
þess að skattur er aðeins 10% af tekjum. (Það er t. d. sniðugt
fyrir emirinn Abdullah ad Thani, sem býr í Versoix, því hann
hefur tekjur af því að selja 8.300.000 tonn af olíu árlega).
• Þarna er Michael, fyrrverandi konungur Rúmena, og vinn-
ur fyrir sér með því að selja bíla. Audrey Hepburn á gamlan
bóndabæ í Tolochenaz, milli Lausanne og Genf. Húsið er upp
á tvær hæðir, og búið hvítum húsgögnum, nema í svefnher-
bergi hennar, þar eru húsgögnin hvít og blá. Hún hefur látið
gera tjörn i garðinum og þar leikur Sean Ferrer, tíu ára gam-
all sonur hennar sér.
• Yul Brynner, Doris, konan hans og dóttirin Victoria, búa
líka milli Lausanne og Genf. Yul Brynner á geysimikið Ijós-
myndasafn, sem vekur öfund atvinnuljósmyndara, — jafnvel
þeirra frægustu ....
• í Lausanne býr, meðal annarra, leikkonan Capucine. Einu
sinni kom Frank Sinatra í heimsókn til hennar, svífandi í heli-
kopter, klifraði niður reipstiga með Martiniglas í hendinni!
• Georges Simenon býr í Epalinges, og hann þarf ekki að
fara út til að synda, því hann hefur gríðarstóra sundlaug inn-
an dyra í húsi sínu. Bílakóngurinn og glaumgosinn Gunther
Sachs býr rétt hjá Lausanne, í þorpinu Pully. (Þar er skatturinn
ennþá lægri). I Cully, sem líka er í nágrenni Lausanne, er
þekkt veitingastofa, sem selur beztu eplaköku í heimi, tarte
aux pommes, og þar er líka húsið þar sem dætur Farúks sáluga
konungs Egypta búa. Þær heita Fawsia, Fadia og Ferrial.
• Uppi í hlíðunum býr listmálarinn Theodor Ahrenberg, og
hann ræktar sjálfur vínberin í vínið sitt. Framkvæmdastjóri
Findus fyrirtækisins Lars Anderfelt hefur nýlega látið fullgera
glæsilega, hvíta villu, ( Blondey, sem er í hæfilegri fjarlægð
frá skrifstofunum (Nestlé í Vevey).
• í Vevey býr Charles Chaplin, sem er fæddur árið 1889,
og Oona konan hans, með þeim af börnum sínum, sem ekki
ennþá eru sloppin undan járnaga hans. Börnin tala öll frönsku
með syngjandi hreim, eins og franskan er töluð í kantónunni
Vaud. Börnin ganga í almenningsskóla þar. Næsti nágranni
Chaplins er hinn frægi flugmaður Charles Lindbergh.
• I snotru þorpi, rétt hjá Genf, býr kappaksturshetjan Joa-
kim Bonniér, með Mariönnu konu sinni og tveim börnum. —
Stewart Granger, ameríski kvikmyndaleikarinn býr í Genf,
með konu sinni Viviane, sem er af belgískum ættum.
• Adrian Conan Doyle (sonur Arthurs Conan, sem samdi
sögurnar af Sherlock Holmes) býr í Genf, en hann á líka sögu-
lega höll í Lucen, skammt frá Genf. Þangað safnar hann minj-
um og minningum um föður sinn og lætur færa upp sögur
hans á sviði.
• I Lausanne býr Viktoria-Eugenie, fyrrverandi drottning
Spánverja. Hún safnar gömlum listmunum og útsaum . . . en
hún er reyndar ein af þrem barnabörnum Viktoríu gömlu
Bretadrottningar!
• I Celigny eiga Richard Burton og Elisabeth Taylor glæsi-
legt hús, og þar hafa þau komið fyrir Matisse-málverkinu,
sem Liz keypti á uppboði fyrir um það bil 3 milljónir króna.
• Fyrir utan Genf eiga Ingemar Johansson og Birgit kona
hans glæsilegt hús.
• Forstjóri sænsk-franska listasafnsins, Jan Runnquist, býr
í Lausanne hluta af árinu. Og sokkaframleiðandinn Torsten
Degermark og kona hans (foreldrar Piu Degermark) búa í
Genf, rétt hjá Cornavin-flugvellinum.
• Nokkuð hátt uppi í fjöllunum, í Gstaad, býr Karim Aga
Khan, í smáhöll (chalet), sem hann kallar Daranour. Það er
sagt að hans útvalda sé Dolores Furstenberg ekkja eftir Pat-
rick Furstenberg, en hún er ein af erfingjum Guinnessauðæf-
anna. Framhald á bls. 44.
MICHAEL, fyrrv. Rúraeníukonungur.
AUDREY HEPBURN,
GUNTIIER SACHS
CHARLIE CHAPLIN,
ELISABETH TAYLOR.
KARIM AGA KIIAN.
DAVID NIVEN.
■■
. ijii \
'
i wnmt, :
i *V
mmm*'■
ifóíLOWft j
SH WA«1
mmm
CÖHAN
16 VIKAN 15-tbl