Vikan - 10.04.1969, Page 24
Einar Hákonarson kennir svokallaða
structure-teikningu, cn hún cr fólgln
í því að teikna nákvæmlcga yfirborð
og áferð hinna óiíkustu htuta. Á
vcggnum lianga nokkrar myndir, sem
gerðar voru í næstu önn á undan, en
þá var kennd litfræði.
skóla, sem tekur tvö ár, og síðan
sérnámsdeildir í önnur tvö ár. Öllu
náminu er auk þess skipt niður í
svokallaðar annir. Sérstakt verkefni
er tekið til meðferðar í hverri önn,
sem stendur yfir í einn mánuð. I
forskólanum eru fjölmargar náms-
greinar kenndar, svo sem teiknun
frumforma, notkun mismunandi
teikniaðferða, greining náttúru-
forma, hlutateiknun, líffræði, rythm-
iskar æfingar, tjáningarhreyfingar
mannslíkamans, mannslíkaminn eft-
ir módeli, hraðteikningar eftir mó-
deli, myndskipun, grafik, listasaga
og fleira. Sérnámsdeildirnar eru
átta: frjáls myndlist, frjáls grafik,
auglýsingateiknun, myndmótun,
veggmyndagerð og steint gler,
teiknikennaradeild, vefnaðarkenn-
arkadeild og myndvefnaður. Þá
mætti nefna ýmsar nýjungar, sem
eru í bígerð, og tilraunir, sem ver-
ið er að gera. Einn nemandi hefur
lagt stund á leikmyndagerð í vetur,
og ef til vill er þar á ferðinni vísir
að nýrri deild. Þá er í smíðum Ijós-
myndavinnustofa og loks er það
„akademían" svokallaða, en það er
starfsaðstaða fyrir nemendur, sem
hafa lokið burtfararprófi, en ekki
komizt til náms erlendis.
Þá eru ótalin námskeið, bæði fyr-
ir börn og fullorðna. Þau eru átta
talsins: Teiknun, málun og föndur
barna, teiknun og málun unglinga
og fullorðinna, bókband, almennur
vefnaður, fjarvíddarteiknun, letrun,
undirbúningsnámskeið fyrir þá, sem
hyggja á arktitektúrnám og loks
námskeið fyrir starfandi teiknikenn-
ara í letrun, skrift og grafik.
A þessari upptalningu sést, að
starfsemi skólans er ærið fjölbreytt
og ekki aðeins lögð áherzla á list-
rænar greinar, heldur ekki síður
hagnýtar.
A þessum síðum reynum við að
gefa ofurlitla hugmynd um það
starf, sem fram fer innan veggja
Myndlista- og handíðaskóla Islands
í Skipholti 1. Hér eru nemendur að
teikna, mála, móta og vefa frá
morgni til kvölds. Kennsla í dag-
deildum hefst strax á morgnana og
heldur áfram eftir hádegi. A kvöld-
in taka námskeiðin við.
Ótvírætt er, að áhugi á myndlist
fer vaxandi. En áhuginn einn nægir
ekki. Skilyrði góðs árangurs er
strangt nám, þrotlaus vinna, ögun
og einbeiting. Myndlista- og hand-
íðaskóli fslands hefur því mikilvægu
hlutverki að gegna, — og rækir það
með stakri prýði.
G. Gr.
;24 VIKAN 15- «*»•
llllll