Vikan


Vikan - 10.04.1969, Side 28

Vikan - 10.04.1969, Side 28
Janine hikaði. — Gerið það, bað hann. Hún lét undan. — Þér eruð ekki aðeins fall- eg stúlka, hrósaði hann henni, — heldur eruð þér einnig mjög indæl. — Hverju viljið þér að ég svari? spurði hún brosandi. — Að ég sé ósköp indæll mað- ur, auðvitað. — Það eruð þér líka, sagði hún og seildist í glas sitt. Hendur þeirra snertust um leið eins og af tilviljun. Jiirgen horfði á hve glæsilega þjónninn tók tappann úr kampa- vínsflöskunni, hafði hann gert sér í hugarlund að Janine hlyti að vera brjáluð? Hann hafði verið viss um að eiga tal við sálarleg- an sjúkling. Þær hugmyndir voru orðnar að engu. Janine virtist vera jafn heilbrigð og þúsundir annarra stúlkna. Hún er ekki einu sinni döpur, hugsaði hann bitur. Hún hlær, drekkur, reykir, masar og ég daðra við hana eins og brjálæð- ingur, er skemmtilegur, slæ henni gullhamra, í stað þess að óska henni til heljar. Freyðandi kampavínið stóð fyrir framan þau. Sama merki og þau höfðu oft áður drukkið saman. Júrgen lyfti glasi sínu, Janine tók sitt. Þau sneru sér hvort að öðru, tvær ánægðar mannverur, sem af tilviljun höfðu kynnzt á bar .... — Ég heiti Júrgen Siebert, kynnti hann sig. Kurteisissiðirn- ir kröfðust þess af honum. Hann hafði sagt bæði nöfnin greini- lega, og hann horfði fast á hana. Nei, nafnið minnti hana ekki á neitt. Enginn samruni, enginn minningavottur. — Ég heiti Janine Laurent, sagði hún. Júrgen varð að fá sér stóran sopa til þess að dylja undrun sína. Laurent — það var augljóst. En hvers vegna Janine? Hvernig vissi Janine hið raunverulega fornafn sitt? Hafði hún aðeins gleymt fjölskyldunafni sínu, en munað fornafn sitt? Eða hafði hún munað fornafn sitt í dá- leiðslu? Ef svo var, hvað mundi þá koma í næsta tíma? — Janine — fallegt nafn. Hann sagði þetta með bros á vör. En i raun og veru hafði óttinn náð tökum á honum, sú tilfinning, að hann sæti á púðurtunnu. — Júrgen fer yður einnig vel, 28 VIKAN 15-tbl- svaraði hún. Þetta hljómaði mjög sakleysislega. Og þó var þetta ömurlegur forleikur, þegar þess var gætt að þau voru maður og kona, hjón fyrir guði og mönn- um.... Hóteldyravörðurinn reif hann frá hugsunum sínum. Hann kom til þeirra. — Ungfrú Laurent, það er símtal við yður, klefi eitt, gjörið þér svo vel. Janine þaut niður af stólnum, hvarf gegnum dyrnar, sem lágu inn í hótelanddyrið. Júrgen hristi glas sitt. Hver hringdi til hennar að nóttu til? Kona? Maður? Hingað til hafði hann haldið, að hún væri ein, hann þyrfti aðeins að fást við hana eina. En allt í einu fannst honum þetta spurningar veirt. Það gat verið til fólk, sem þekkti örlög hennar, sem hjálpaði henni við að leita fortíðarinnar .... — Verðið þér að fara núna? spurði hann, þegar Janine kom aftur. — Nei. Hvers vegna? — Ég hélt, að símtalið ... Hún gerði honum ekki þann greiða, að minnast neitt á þann sem hringt hafði. En hún gerði honum annan greiða: hún drakk áfram. Og Júrgen vissi, að hún þoldi ekki mikið. Áfengi steig henni snemma til höfuðs. Þegar mennirnir tveir við hinn enda borðsins báðu um reikning- inn, tók Júrgen mjúklega í hönd Janine: — Við megum ekki enda þetta indæla kvöld á þennan hátt. Til hvers hefur Múnchen nætur- líf? Eigum við að fara eitthvert þangað sem meira líf er, þang- að, sem hægt er að dansa .... — Mig langar ekkert fremur. Janine reyndi að veita viðnám. — Ég bý hér á hótelinu, og það er þegar orðið framorðið. — Og ef ég bið yður mjög vel, Janine? Hann sá að hún hikaði. Þetta með dansinn hafði hann sagt af ásettu ráði. Hann vissi, að henni hafði alltaf þótt gaman að dansa. Alla nóttina, ef unnt var.... Honum veittist ekki mjög erf- itt að tala um fyrir henni. Þegar hann hjálpaði henni í kápuna var hann næstum því ánægður með sjálfan sig. Ég er nú einu sinni sú tegund, sem þér gezt að, Janine, hugsaði hann. f dag þurfti hann engan leigu- bíl. Gaby hafði flogið til París- ar, til klæðskera síns, og látið honum eftir bíl sinn. Júrgen hafði lagt honum rétt hjá. Hinn óhóflega dýri rauði sport- bíll minnti hann svo óþægilega á eigandann. Gaby, sagði hann við sjálfan sig í huganum, ef þú vissir, hve heitt ég elska þig, ef þú vissir, hve lítils virði konan við hlið mér er. Ég hata hana, þú hefur komið mér til að hata hana.... Aðeins lágvært vélasuð bif- reiðarinnar rauf kyrrðina. Nei, Janine, þú ert ekki lengur að mínum smekk. Ég hef ekki einu sinni meðaumkun með þér leng- ur. Aðeins óttast ég, að þú munir geta eyðilagt allt.... — Hvert eruð þér að fara? spurði Janine. — Til „Kofans“, svaraði hann, — þar er alltaf viðkunnanlegt fólk. Það var lygi. — Kofinn“ var ekkert sérlega notalegur stað- ur. En hann hafði það til síns ágætis að liggja afsíðis. Þar mundi hann að minnsta kosti ekki hitta neina kunningja. Því hann varð fyrir alla muni að hindra að vera séður. Júrgen lagði bílnum hinum megin götunnar, þar sem engin hús voru, heldur aðeins gömul tré. Þetta var dimm nótt, það hlaut að vera nýtt tungl. Bílljós lýstu upp nágrennið, en hurfu aftur. Janine hafði stigið út og geng- ið ein, þessi fáu skref að járn- handriðinu. Hann sá greinilega Ijóst hár hennar, sem hafði vfzt lítillega í vindinum. Júrgen læsti bílnum, gekk til hennar og lagði handlegginn um axlir hennar. Hinni höndinni hafði hann borað ofar í frakka- vasann. — Allt í einu hefur vatnið í fljótinu hækkað, sagði Janine. — Það er vegna þess að snjór- inn hefur bráðnað, sagði hann og píndi sig til að dylja uppnám sitt. Fjóra eða fimm metra undir fótum þeirra buldi beljandi fljót- ið. Um kvöldið var áin orðin að drullubrúnni hættulegri straum- iðu. Þú kannt ekki að synda Jan- ine, tifuðu hugsanirnar í höfði Júrgens. Ég veit að þú kannt ekki að synda. Og þú ert lauf- létt, ég gæti hent þér yfir hand- riðið án minnstu fyrirhafnar. Hróp þitt mundi kafna í niði vatnsins, Lík þitt mundi ef til vill aldrei finnast. Og ef svo væri, þá miklu síðar, á allt öðr- um stað. Hönd hans fór að titra í frakka- vasanum. Hann kreppti hnefann. Ég væri ekki einu sinni morðingi, Janine. Því lögum samkvæmt ertu þegar dauð .... Júrgen leit varlega í kring um sig. Umhverfið var eyðilegt. Hann þurfti ekki að óttast vitni. Ég gæti kysst þig og um leið þrýst þér út fyrir, hugsaði hann. Og öll mín vandræði væru leyst. IX. Dr. Stephan Haller fór úr skónum og lagðist á beddann, sem komið var fyrir í herbergi hans, meðan hann átti nætur- vakt. Hann slökkti á lampanum, breiddi ábreiðuna yfir sig og hefði ekki haft neitt á móti nokk- urra stunda svefni. Það var komið langt fram yf- ir miðnætti. Hann hafði gert að nokkrum beinbrotum og skorið einn botnlangaskurð. Og ennþá varð ekki hljótt á skurðdeildinni. Nætursysturnar hlupu þrisvar eða fjórum sinnum fram hjá dyr- um hans. í fimmta skipti bönk- uðu þær, og systir Karin stóð í dyragættinni. — Mér þykir fyrir að þurfa að ónáða yður, herra læknir, en hér er kominn maður með höf- uðmeiðsli. Sjúkrabíllinn hafði einmitt verið að. koma með hann. Eftir blóðmissinum hlýtur þetta að vera heljarmikið sár ... Dr. Haller fór aftur í skóna, systirin hjálpaði honum í hvítan sloppinn. — Umferðaslys, spurði hann. — Nei, svaraði systirin, — Leynilögreglumaður, heitir Paul Karsch, það var ráðist á hann í húsanddyri og hann sleginn nið- ur. Karsch var með neyðarbindi bundið um höfuðið, gegnum bað seytlaði ljósrautt blóð. Hann lá á börum í miðiu hvítkölkuðu móttökuherberginu. — Kvalir? — Nei. — Urðuð þér meðvitundarlaus eftir höggið? — Nei. Því miður rann blóð- ið niður í augu mér, svo ég gat ekki séð þrjótinn. Haller lét færa hann inn í skurðstofuna. Hann fjarlægði umbúðirnar og hreinsaði sárið. Karsch, sem virtist vera mjög fölur í skæru ljósinu, kipptist nokkrum sinnum við. — Vonandi fæ ég engin höf- uðlýti, muldraði lögreglumaður- inn. Haller hló. — Nei haus- kúpan er ósködduð. Þetta er grunnt sár, en frekar langt við verðum að sauma það, ann- ars grær það ekki. — Verður að klippa af mér hárið? spurði Karsch með um- hyggju. EFTIR JENS BEKKER 8. HLUTI VIÐ hverja snertingu hans

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.