Vikan


Vikan - 10.04.1969, Síða 37

Vikan - 10.04.1969, Síða 37
drætti og það yrði dregið í þv£ 15. nóvember. „Ég skil ekki, hvað kom yfir mig,“ sagði hún og hló hjartan- lega. Ég var di-júg með mig og sagði: „Ef talan á miðanum yðar end- ar á 37, þá vinnið þér.“ Frú M. sagðist ekki muna núm- erið. Hún kvaðst hafa sett mið- ann niður í skúffu hjá sér strax og hún hefði keypt hann. Ég bað hana að aðgæta hvert númerið væri, þegar hún kæmi heim. Daginn eftir kemur hún til mín og er í senn undrandi og forvitin. „Hvernig í ósköpunum gátuð þér vitað, að númerið á happ- drættismiðanum mínum endaði á 37?“ spurði hún. Ég lét slag standa og sagði henni allt af létta. Hún sagði mér á móti, að hún hefði misst móður sína, þegar hún var fimm ára gömul. Hún mundi það eitt, að hún var há og grönn. í bernsku sinni hafði það nokkr- um sinnum borið við, að ættingj- ar og nágrannar minntust á, að móðir hennar hefði birzt þeim. Sjálf var frá M. gædd ofurlitlum dulrænum hæfileikum og hafði nokkrum sinnum orðið vör við sitt af hverju. Einnig hafði hún lesið mikið um þessi efni í blöð- um og bókum. Hún kvaðst til dæmis hafa lesið báðar bækurn- ar mínar. Hún var þess vegna alls ekki hrædd, heldur glöð og þakklát fyrir kveðjuna. 15. nóvember var dregið í happdrættinu. Og auðvitað fékk frú M. vinning, en ekki var hann þó hærri en 5000 krónur. Mörgum finnst vafalaust þessi frásögn engan veginn stórfeng- leg, enda er hún það ekki. En það gladdi frú M. að fá kveðju frá móður sinni. Með þessu móti hefur móðir hennar ugglaust viljað sýna henni, að hún fylgd- ist með henni, að hún stæði í sambandi við hana og verndaði hana eftir mætti. Að mínu áliti var happdrættisvinningurinn aukaatriði, en kveðjan það sem máli skipti. HVERNIG ER AÐ VERA DÁINN? Ég þekkti ekki Alex G. á með- an hann lifði hér á jörðinni. En konan hans var vinkona mín í mörg ár og ég vissi, að hann var vel gefinn og litríkur persónu- leiki. Hann var Gyðingur og varð að þola margs konar mis- rétti og erfiðleika vegna kynþátt- ar síns. Hann hafði flækzt víða, búið á mörgum stöðum í Skand- inavíu, m.a. í Noregi. Fjölskylda hans er nú búsett í Danmörku. Við mörg tækifæri hefur hann sýnt þess merki, að hann getur og vill hafa samband við ástvini sína. Fjölskyldu hans er mikill styrkur í þessu og þess vegna hef ég haft ánægju af að flytja skila- boð frá honum. Konan hans hef- ur oft beðið mig um að reyna að ARRÍL HEFTIÐ ER ICOMIÐ r N r N EIGINMAÐUR- INN OG HJÓNA- BANDSSÆLAN Hvernig geta konur gert eiginmenn sína hamingjusama? HVERS MÁ VÆNTA AF NIXON? Athyglisverð grein eftir Alan Drury V__________________J V r v Ógleymanlegur maður: ENGINN GUÐ, ENGIN SYND, EKKERT HELVÍTI r N r n SUMIR MENN TS VERÐA ALDREI mi- % * f FULLORÐNIR Skemmtileg grein eftir blaðakonuna Ann Landers V V / ; n Urvalsbókin: HVÍTI UNDRALÆKNIRINN í VELLORE VEIKTIST OG VARÐ LEIKARI Róbert Arnfinnsson segir frá V______________________/ - FERMINGARÚR - EINGÖNGU VÖNDUÐ ÚR - Nivada OMEGA Fj'BBaMW JUphuu PIERPOnT Magnus E. Baldvinsson Laugavegi 12 - Sími 22804 15. tbi. VIKAN 37

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.