Vikan


Vikan - 23.04.1969, Qupperneq 13

Vikan - 23.04.1969, Qupperneq 13
„Kunningi kennslukonunnar heimsótti skólann í dag.“ „Var það móðir Charles?" spurðum við hjónin í kór. „Nehei“, sagði Laurie með fyrirlitningu. „Það var karl- maður, sem kom til að kenna okkur leikfimi. Við þurftum að snerta tærnar á okkur með fingurgómunum. „Lítið á“. Hann brölti niður af stólnum, hnipraði sig saman og snerti á sér tærnar. „Þannig“ sagði hann. Hann settist hátíðlega í stólinn sinn aftur og sagði um leið og hann tók upp gaff- alinn: „Charles tók ekki einu sinni þátt í leikfiminni“. „Það er laglegt“, sagði ég áköf. „Langaði Charles ekki til að gera æfingarnar?“ „Nehei,“ sagði Laurie. „Charles var svo ókurteis við vin kennslukonunnar, að honum var bannað að vera með í leikfiminni.“ „Ókurteis aftur?“ sagði ég. „Hann sparkaði í vin kennslukonunnar“, sagði Laurie. „Vinur kennslukonunnar, sagði Charles að snerta á sér tærn- ar, eins og ég gerði áðan, en Charles sparkaði í hann“. „Hvað álítur þú að þeir geri í sambandi við þennan Char- les?“ spurði faðir Lauries hann. Laurie yppti öxlum tilgerð- arlega. „Ég ímynda mér, að þeir reki hann úr skólanum“, sagði hann. Miðviku- og fimintudagur voru svipaðir hinum dögunum. Charles gólaði meðan sögutími stóð yfir, og grætti einn drengj- anna með því að berja hann í magann. Á föstudeginum varð Charles að sitja eftir aftur, og sama gerðu öll hin börnin. Með þriðju viku barnaskólans var Charles orðinn áhrifa- mikil sögupersóna innan fjölskyldu okkar. Þegar litla dótt- ir okkar grenjaði allan eftirmiðdaginn, var hún nokkurskonar Charles. Og Laurie var Charles, þegar liann fyllti vagniim sinn með aur og drullu. og dró hann gegnum eldhúsið. Þeg- ar maðurinn minn festi olnbogann í símaþræðinum og kippti símanum, öskubakkanum og vasa fullum af blómum niður af borðinu, sagði hann: „Svonalagað mundi Charles gera“. Þriðja og fjórða vikan virtust virka bætandi á Charles. Við matborðið á fimmtudegi þriðju vikunnar, skýrði Laurie hryssingslega frá því, að Charles hefði verið svo góð- ur þann dag, að kennslukonan hefði gefið honum epli. „Hvað“ varð mér að orði, og maðurinn minn bætti við þi'eytulega: „Meinarðu Charles?“ „Charles“ fullyrti Laurie, og hélt áfram: „Hann útbýtti krítarlitum, safnaði saman bókunum eftir kennslustundina og kennslukonan sagði að liann væri aðstoðarmaðurinn sinn“. „Hvað kom fyrir?“ spurði ég tortryggin. „Hann var aðstoðarmaður hennar, það er allt og sumt“, sagði Laurie og yppti öxlum. „Getur þetta verið satt um Charles?“ spurði ég manninn minn um kvöldið. „Getur svona lagað átt sér stað?“ „Sjáðu hverju fram vindur“ sagði minn heittelskaði, blygð- unarlaust. „Þegar maður á í höggi við Charles, gæti þetta þýtt að hann sé aðeins að skipuleggja nýja klæki.“ Hann virtist hafa á röngu að standa. í meira en vikutíma var Charles aðstoðarmaður kennslukonunnar. Á hverjum degi færði hann skólasystkinum sínum nauðsynleg áhöld og verk- efni, og safnaði þeim saman eftir notkun. Enginn þurfti lengur að sitja eftir, þegar skóladegi var lokið. „Kennara- og' foreldrafundur verður aftur í næstu viku“, sagði ég manni mínum eitt kvöldið. „Ég ætla að hitta móð- ur Charles þar“. „Spurðu hana hvað hafi komið fyi-ir Charles,“ sagði mað- urinn minn. „Mig langar til að vita það.“ „Ég' hefði ekkert á móti því að vita það sjálf“, sagði ég. Á föstudeginum, í þessari sömu viku, var allt komið í sitt fyrrverandi ástand. „Vitið þið hvað Charles gerði í dag?“ spurði Laurie yfir matnum og það vottaði fvrir lotningu í Framhald á bls. 36. 17. tw. VIICAN 13

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.