Vikan - 23.04.1969, Blaðsíða 50
Daglegt heilsufar
Öruggari en nokkur önnur
gagnvart forvitnum börnum og
unglingum.
Hurðina er ekki hægt að opna
fyrr en þeytivindan er STÖÐV-
UÐ og dælan búin að tæma
«U
RAFHA-HAKA 500 þvottavélin yðar mun ávallt skila yður full-
komnum þvotti ef þér aðeins gætið þess að nota rétt þvottakerfi,
þ. e. það sem við á fyrir þau efni er þér ætlið að þvo.
Með hinum 12 fullkomnu þvottakerfum og að auki sjálfstæðu
þeytivindu- og dælukerfi, leysir hún allar þvottakröfur yðar.
Þvottakerfin eru:
1. Ullarþvottur 30° 7. Viðbótarbyrjunarþvottur 90°
2. Viðkvæmur þvottur 40° 8. Heitþvottur 90°
3. Nylon, Non-Iron 90° 9. Litaður hör 60°
4. Non-Iron 90° 10. Stífþvottur 40°
5. Suðuþvottur 100° 11. Bleiuþvottur 100°
6. Heitþvottur 60° 12. Gerviefnaþvottur 40°
Og að auki sérstakt kerfi fyrir þeytivindu og tæmingu.
RAFHA-HAKA 500 er sérstak-
lega hljóðeinangruð. — Getur
staðið hvar sem er án þess að
valda hávaða.
HlíflR EB BBKIN HflNS NDfl?
Það er alltaf sami leikurinn í henni Yndisfríð okkar. Hún hefur
falið örkina hans Nóa einhvers staðar í blaðinu og heitir góð-
um verðlaunum handa þeim, sem getur fundið örkina. Verð-
launin eru stór konfektkassi, fullur af bezta konfekti. og fram-
ieiðandinn er auðvitað Sælgætisgerðin Nói.
Síðast er dreglð var hlaut verðlaunin:
t Emil Hilmarsson, Hlíðarvegi 54, Kópavogi.
Vinninganna má vitja 1 skrifstoíu Vikunnar.
Nafn
Heimili
17.
Örkin er á bls.
Framhald af bls. 9.
hita sig upp til að vera öruggari
þegar á hólminn kom.
Það er ágætt að hita sig upp,
og það er hægt að gera með því
að gera sér vel grein fyrir verk-
efninu, lesa efnisyfirlit í róleg-
heitum, jafnvel blaða í gegnum
bækurnar. Með því fæst heildar-
yfirlit, og mergur málsins kem-
ur betur fram við síðari lestur.
Áhugi, forvitni og spyrjandi
hugur er nauðsynlegur. Það má
ekki gleypa í sig allt sem stað-
hæft er í bókinni og gera það að
sínum eigin staðreyndum. Það er
betra að kryfja málið til mergj-
ar, og ef manni finnst önnur
sjónarmið réttari, að taka það til
athugunar. Á þann hátt fæst holl
gagnrýni og svo er það líka
skemmtilegra. Þá erum við aft-
ur komin að einbeitingunni; því
að einbeiting er ekkert annað en
hæfileiki til að skilja verkefnið
sem liggur fyrir, og vita hvað
það felur í sér.
Verið ekki kvíðin fyrir prófin,
það hefur eyðilagt og eitrað fyr-
ir mörgum. Ef lesið hefur verið
samvizkusamlega og á réttan
hátt, þá er engu að kvíða, próf
eru ekki dauðadómur. Þau verða
frekar skynsamlegar rökræður
við kennarana, sem flestir, — ef
ekki allir vilja nemendum sínum
allt hið bezta. ...
☆
Mig dreymdi
Framhald af bls. 8.
þekki vel. Að lítilli stundu lið-
inni fórum við út úr bílnum og
gengum út á túnblett. Þar lögð-
umst við á jörðina. Hann breiddi
hvítt lak yfir okkur og rauða,
fallega ábreiðu þar ofan á. Okk-
ur leið vel þarna, enda þótt há-
vetur væri og kalt í veðri. Við
lágum lengi á túninu, en stóðum
síðan upp og gengum áleiðis að
bílnum.
Mig langar að fá einhverja
ráðningu á þessum draumi.
Með fyrirfram þakklæti,
Rósalind.
HJvr'r
Þetta er liagstæður draumur á
allan hátt. Áhreiða táknar aukna
velgengni og virðingu, og litirnir
eru báðir jákvæðir. Þú munt eiga
góða daga og hamingjuríka í
vændum með þessum manni.
DEMANTSHRINGUR
Kæra Vika!
Mig dreymdi einkennilegan
draum, sem mig langar til að
biðja þig að ráða fyrir mig. Hann
er þannig:
Mér fannst koma til mín ung-
ur maður. (Ég þekki hann ekki
og sá hann mjög óljóst í draumn-
um). Við áttum að trúlofa okk-
50 VIKAN 17-tbL