Vikan - 04.09.1969, Blaðsíða 34
FjarlægiS
naglaböndin
á auðveldan hátt
*Fljótvirkt *Engar sprungur
* Hreinlegt * Sársaukalaust
Hinn sjálffyllti Cutipen gefur mýkj-
andi lanolín blandaðan snyrtilög, einn
dropa í einu sem mýkir og eyðir
óprýðandi naglaböndum. Cutipen er
eins og fallegur óþrjótandi sjálfblek-
ungur sérstaklega gerður til snyrting-
ar. Hinn sérstæði oddur hans snyrtir
og lagfærir naglaböndin svo að negl-
ur yðar njóti sín. Engra pinna eða
bómullar er þörf. Cutipen er algjör-
lega þéttur svo að geyma má hann í
handtösku. Cutipen fæst í öllum
snyrtivöruverzlunum. Handbærar á-
fyllingar.
Cutáp&K
Fyrir stöKkar neglur biðjið um Nutri-
nail, vítamicsblandaðan naglaáburð
sem seldur er í pennum jafn hand-
hægum í notkun og Cutipen.
UMBOÐSMAÐUR:
J. Ó. MÖLLCR & CO.
KIRKJUHVOLI, REYKJAVÍK
á daginn að mér fannst ekki meira
gaman í lögfræðinni en svo, að ég
hætti eftir fyrsta árið og langar ekki
þangað meir.
— Nú er ég búinn að vera um
það bil tvö ár „props-maður" eða
sviðsmaður hjá sjónvarpinu, og lík-
ar vel, á stundum getur maður gef-
ið hugmyndafluginu lausan taum-
inn, eins og ég hef gert hér á heim-
ilinu.
— En hugurinn stefnir lengra. Ég
er með myndadellu, og er nú nærri
ákveðinn í að fara utan og læra
kvikmyndun. Sennilega til Dan-
merkur eða Svíþjóðar, sem ég
reikna með að verði ofan á.
— Jú, ég hef komið mér upp
myrkrakompu hér frammi — Ása
notar að vísu helminginn af henni
fyrir saumastofu, en þröngt mega
sáttir sitja!"
Hnn er alveg búinn að stór-
smita mig," segir Ása. — „Og áður
en langt um líður verð ég ábyggi-
lega með jafn-ólæknandi dellu og
hann núna. Enn sem komið er
ég bara nokkurs konar klinik-dama
hjá honum; busla myndunum í
framkallaranum og þess háttar, en
áhuginn eykst jafnt og þétt. Hann
var nú ekki búinn að vera ýkja
lengi hjá Sjónvarpinu þegar ég náði
í hann.
Jú, það er eitthvað um að fólk
innan þeirrar stofnunar giftist inn-
bvrðis. Enn sem komið er eru þó
ekki nema tvenn hjón — og hver
veit hvað verður úr því þriðja!"
Tíminn hefur flogið áfram. Við
afþökkum aftur í bollana en tottum
vindlana heimsmannslega um leið
og við kveðjum ungu, ástföngnu
hjónin, Ásu Finnsdóttur, sjónvarps-
þul og klippara og Jóhannes Long,
leikmunavörð.
ó. vald.
Stúlka meS falleg augu
Framhald af bls. 19.
— Hvers vegna haldið þér
það?
—■ ÍÉg veit það ekki. Mér bara
finnst það.
— Ef ég á að segja alveg eins
og er, þá hafið þér rétt fyrir yð-
ur. Ég fékk mér nokkra tíma —
í mambo.
— Og cha-cha-cha?
— Nei, ég hætti, áður en það
varð landsplága.
— Nýir dansar koma á hverj-
um degi, sagði hann og hló við.
— á eftir cha-cha-cha kemur
sennilega ha-ha-ha eða ho-ho-ho.
Mér finnst nú, að ef maður get-
ur dansað foxtrot og vals og
kannski rúmbu, þá ætti það að
nægja. Hvað finnst yður?
— Mér finnst mjög gaman að
dansa.
— Já, það finnst mér líka. En
ég á við, að það er ekki hægt að
hafa brennandi áhuga á slíku.
— Nei.
— Hvað hafið þér hugsað yð-
ur að vera hér lengi?
— 14 daga.
— Það var skemmtileg tilvilj-
un.
— Þér verðið kannski líka ...
— Tja . . . ef til vill.
— É'g hef oft hugsað um,
hvernig það er....
— Hvað?
Það vitið þér vel.
— Hvað eigið þér við?
— Hvernig það er fyrir fal-
lega stúlku að ferðast ein, sagði
hann.
— Það er alveg prýðilegt,
sagði hún.
- Dálítið einmanalegt stund-
um, er það ekki?
— Það er alls ekki sem verst.
-— Jú, fjandinn hafi það, það
hlýtur að vera einmanalegt,
sagði hann með þungum áherzl-
um.
Það á alls ekki illa við
mig, sagði hún hægt.
— Jseja, við munum skemmta
okkur vel saman, haldið þér það
ekki?
Hann lagði hönd sína yfir
hennar. Hún sat hreyfingarlaus
andartak, dró síðan höndina að
sér og tók glasið sitt.
— Haldið þér, að þér getið
kennt mér að dansa mambó?
spurði hann stuttu síðar.
— Það geta allir lært.
Ja, maður þarf þó að vera
viss á taktinum, er það ekki?
Það er bara betta: Þegar svona
34 VIKAN 36- tbL