Vikan - 04.09.1969, Page 39
King er látinn
en Coretta lifir
Framhald af bls. 17.
Ef bókin átti að vera sönn, yrði hún
að skrifa hana sjálf.
Samfara því að hún er stjórnar-
meðlimur í miðstjórn SCLC, og
stöðugur fylgismaður Ralhps Aber-
nathy, er Coretta einskonar um-
boðsmaður. Hún útvegar skemmti-
krafta, ræðumenn við minningar-
hátíðir og fjáröflunarskemmtanir.
Hún hefir skrifstofu heima hjá
sér, og hefur sér til aðstoðar einn
bókmenntafræðing og tvo lögfræð-
inga. Þessutan hefir hún bílstjóra,
sem líka annast allskonar störf fyr-
ir hana, tvær hjálparstúlkur, sem
vinna á vöktum, einn einkaritara
og þrjá aðra ritara. Heimili hennar
er látlaust einbýlishús í útborg At-
lanta, í negrahverfi.
Þegar börnin eru farin í skól-
ann, þá hittist þetta fólk í herbergi,
sem er hvorttveggja í senn, svefn-
herbergi og vinnustofa, til að
leggja á ráðin um störf dagsins.
Þar situr hún í miðjum hópnum,
alltaf fallega klædd, drekkur kaffi
og stjórnar samræðum.
En Coretta King heldur fast við
að fyrst og fremst verði hún að
sinna börnum sínum. Hún tekur
þau með sér i ferðalög, svo oft
sem hægt er að koma því við.
Yolanda (13 ára), Martin yngri (11
ára), Dexter (8ára) og Bernice (5
ára), skiptast á að sitja við hlið
hennar í flugvélunum.
Áður en yngri börnin fara í rúm-
ið, er það daglegt brauð að
sjá Corettu, brosandi og glaðlega,
leika við börnin, sem jafningi
þeirra. Hún er jafn kát og börn-
in. Sunnudagarnir eru helgaðir
fjölskyldunni, en þó gleymir Cor-
etta ekki „málefninu". Hún segir
börnunum frá starfi sínu, og kem-
ur þeim ( skilning um að þetta sé
málefni sem snerti allt mannkyn-
ið.
King börnin eru alin upp við
hugsjónir jafnréttishreyfingarinnar.
Yolanda var smábarn, þegar
sprengju var kastað á prestssetrið
í Alabama. Og þegar farið var í
mótmælagöngur, gengu börnin við
hlið foreldra sinna. Þau vita allt
sem skeður í kringum þau, og
hvaða þýðingu það hefir fyrir fram-
tið þeirra.
Fjölskyldan er öll hrædd við of-
beldisverk, en þau gleðjast ef ein-
hver framför verður, eða eitthvert
mannúðarmál fær góðan hljóm-
grunn.
Heit trú Corettu King og vitn-
eskjan um það að lífsstarf hennar
sé mikið, veitir henni styrk. Hún
er stöðugt á ferðinni, en oft sést
hún standa í hljóðri bæn. Hvað
hugsar hún þá? Um Martin Luther
King? Friðarverðlaun Nobels? Of-
beldið, sem hún hefir svo oft ver-
ið sjónarvottur að? Fangelsanir eig-
inmanns hennar? Morðið ( Memp-
his....
Hún hefir styrk til að horfast f
augu við erfiðleikana, og hún er
sú kona, sem vex með skyldutil-
finningunni. Hún er líka kjarkmik-
il kona!
☆
/
—......þar bunaði smálækj-
ar spræna....
V___________________________)
36. tbi. VIKAN 39