Vikan - 08.01.1970, Síða 3
2. tölublaS - 8. janúar 1970 - 32. árgangur
I ÞESSARI VIKU
VIKAN birti fyrir nokkru greinar um merka
landkönnuði, til dæmis Livingstone
og Stanley, sem báðir könnuðu
myrkviði Afríku. I þessu blaði verður
fjallað um barón Adolf Erik Norden-
skjöld, sem fyrstur manna hafði það af að
sigla meðfram ströndum Evrópu og
Asíu út i Kyrrahaf. Þetta er hin svokallaða
Norðausturleið, sem margan hefur heillað.
Við höldum áfram með paliadóma
Lúpusar í þessu blaði og er þá fjallað um
utanríkisráðherra og fyrrverandi
formann Alþýðuflokksins, Emil Jónsson.
Þar næsti þáttur birtist mjög fljótlega,
og þá er röðin komin að Eysteini Jónssyni,
fyrrverandi formanni Framsóknarflokksins.
í þessu blaði Ijúkum við greinaflokkinum
um Gretu Garbo, en þá birtist
fjórði hluti hans. Þessar greinar eru
byggðar á bók, sem nýlega er komin út og
hefur vakið mikla athygli erlendis.
Hún varpar alveg nýju Ijósi á hina frægu
og vinsælu kvikmyndaleikkonu Gretu Garbo,
sem enn á sér aðdáendur um allan heim.
Í NÆSTU VIKU
Thomas Edward Lawrence, eða
Arabíu-Lawrence eins og hann er oftast
kallaður, er með dularfyllstu persónum
þessarar aldar. Ráðgáturnar héldu áfram að
hlaðast upp í kringum hann fram í
andlátið. Undir forystu hans gerðu bedúínar
uppreisn, sem vafin er miklum
ævintýraljóma. Við birtum grein um
Arabiu-Lawrence í næsta blaði.
,,Bóndi þekkti móður sína vel. Hann
vissi hversu lífseig hún var, og að
hún lét sér ekki allt fyrir brjósti brenna.
Hann vissi, að hún gæti haldið út eina
viku enn, hvað sem læknirinn segði . . . ."
Þetla er brot úr snjallri sögu, sem við
birtum í næsta blaði. Hún er eftir sjálfan
meistara smásögunnar, Maupassant.
Nú hefur Árnagarður verið formlega
tekinn f notkun; húsið, sem hýsa skal
handritin okkar fornu, sem svo mikið
og oft hefur verið um deilt. Með því ætti
að skapast önnur og betri aðstaða fyrir
þá sem vilja helga sig íslenzkum fræðum.
í næsta blaði segjum við ögn frá
manninum, sem fyrstur gat stundað
íslenzk fræði og ritstörf þeim lútandi
frá unga aldri, Jóni Grindvíkingi.
FORSÍÐAN Forsiðumyndin er af hljómsveitinni Trúbrot, en í opnu þessa
blaðs er rætt við Gunnar Þórðarson um „eiturlyfjanautn" sumra meðlima þessarar
frægu hljómsveitar.
í FULLRI ALVÖRU
DOMSDAGUR í NÁND?
Ekki eru margar vikur síðan merkir visinda-
menn í sjálfum Bandaríkjunum spáðu því í
fullri alvöru að ekki myndi líða nema svo sem
áratugur unz allt líf sjávarins yrði útdautt af
völdum þeirra margvíslegu eiturefna, er stór-
iðja hins hraðf jölgandi mannkyns gefur af
sér og í höfunum lenda. Og enn skemmra er
síðan aðrir vísindamenn, engu ómerkari, spáðu
að innan fárra áratuga yrði andrúmsloftið orðið
svo gagnmettað óhollum dömpum svipaðs upp-
runa, að engri manneskju yrði líft utan dyra nema
með gasgrímu.
Það er ekkert nýtt að heimsendi sé spáð; hann
er að finna i kenningum margra trúarbragða og
hvað eftir annað í sögu kristninnar hafa kenni-
menn hennar talið hann yfirvofandi. En að þessu
sinni eru spámennirnir ekki fljóthuga trúmenn,
heldur sprenglærðir vísindamenn og aðrir kald-
hyggnir rökhugsuðir. Það er því til lítils að af-
greiða kenningar þeirra sem nokkurt venjulegt
svartagallsraus.
Það er íslenzkum stjórnarvöldum til meira en
lítils sóma að þau létu fulltrúa sína á Allsherj-
arþingi Sameinuðu þjóðanna flytja tillögu um
að gerðar yrðu ráðstafanir til að hindra mengun
sjávarins, einmitt skömmu eftir að fyrstnefnda
hryllispáin var birt almenningi. Þetta er lofs-
vert framtak og stendur að vísu fáum nær en
íslendingum, sem byggja efnahag sinn og til-
veru sem sjálfstæðrar og sérstakrar þjóðar á
afurðum sjávarins. Það segir sig því sjálft hvert
framhald mannlífs á íslandi verður eftir að út-
hafið er orðið að úldnum og eitruðum forarpolli,
þar sem ekkert líf þrifst.
Eitt er nokkurnveginn öruggt, og það er að
heiminum verður ekki bjargað ef haldið verður
áfram tryggð við þær reglur í alþjóðapólitík
sem voru í góðu gildi á nítjándu öld, en eru nú
löngu orðnar stórhættulegur klafi á þessum heimi
æsilegs og hraðvaxandi hraða. Kjörorðið verð-
ur að vera: einn heimur eða enginn. Hreppa-
pólitík í alþjóðaviðskiptum, sem leiðir af sér
aulalegar styrjaldir og níðingsverk og bindur
gífurlegt fjármagn í drápstækjum, verður að
víkja, en við að taka raunhæf samtök allra heims-
hluta, allra þjóða, til að bægja með samstillt-
um átökum aðvífandi ófreskjum frá dyrum mann-
kynsins. Tillaga íslands á Allsherjarþinginu var
lofsvert framlag í þá átt, og vonandi verður
meira gert af okkar hálfu í sama tilgangi.
dþ.
VIKAN Útgcfandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Gylfi
Gröndal. Blaðamenn: Dagur Þorleifsson, Mattliildur
Kdivald oe Ómar Valdimarsson. Útlitsteikning: Hall-
dóra Haildórsdóttir. Auglýsingastjóri: Jensína Karls-
dóttir. — Ritstjóm, auglýsingar, afgreiSsla og drelf.
ing: Skipholti 33. Simar 3S320 — 35323. Pósthólf 533.
VcrS I lausasölu kr. 50,00. Áskriftarverð' er 475 kr.
fyrir 13 tölublöS ársfjórSungslega, 900 kr. fyrir 2*
tölublöS misserisiega. ÁskriftargjaldlS greiSist fyrir-
fram. Gjaldd. eru: Nóvember, fcbrúar, mai og ágúit.