Vikan - 08.01.1970, Blaðsíða 43
mælum. Síðan kvöddu þeir kur-
teislega!
Daginn eftir vorum við á æf-
ingu hér í Reykjavík, þegar
þessi sami lögreglumaður kom og
sagði okkur að við ættum að
koma strax með þeim suður í
Keflavík, þar sem átti að yfir-
heyra okkur.
Jú, jú, það var í lagi, og við
fórum með þeim suðureftir. Þar
vorum við yfirheyrðir af íslenzku
lögreglunni á Keflavíkurflugvelli,
og fengum við að vita að Banda-
ríkjamaðurinn, sem hafði gefið
okkur lyfið, hafði verið tekinn
fastur. Síðan vorum við leidd
fyrir rétt, og látin bera vitni í
máli hans, þar sem við játuðum
auðvitað að hann hefði gefið okk-
ur fjórar litlar filmudósir með
marijuana. Og það er ekki rétt
að það hafi fundist marijuana
hjá Shady við húsrannsókn, því
hún afhenti það strax sjálf.
„Hvernig náungi var þessi
Bandaríkjamaður og hvað verð-
ur um hann?“
„Okkur líkaði alltaf vel við
hann, og þá á ég alls ekki við
neitt í sambandi við þetta fikni-
lyfjamál. Hann var skemmtileg-
ur og góður félagi, svo mikið
sem maður getur dæmt um það
eftir svo stutta viðkynningu.
Tollvörður á Vellinum sagði
mér um daginn, að það hefði
komið í ljós, þegar farið var að
kanna fortíð hans, að hann hafði
aldrei gerzt sekur um neitt, og
stóð til að gera hann að höfuðs-
manni einhvern daginn, en hann
var lautinant (undirforingi). Nú
hefur herinn fengið hann í sín-
ar hendur, og ég held mér sé
óhætt að segja að hann fái senni-
lega 10 ára fangelsi fyrir og 1000
dollara sekt, ef hann verður ekki
rekinn úr hernum með skömm.“
„Það þýðir sennilega ekkert að
þræta fyrir þá staðreynd að
framtíð ykkar sem tónlistar-
manna á fslandi er heldur dökk.
Hvað ætlist þið fyrir?“
„Ja, hvað við ætlumst fyrir,
það er ekki gott að segja. f raun-
inni getum við ekkert gert. Eina
spilið sem við höfum í höndunum
er músikkin okkar, og við verð-
um að vinna á henni. Við höfum
öll fjögur ákveðið að gefa öllum
örfandi lyfjum frí, en nú er bara
að bíða og sjá til hverju fram
vindur.
Og mig langar til að segja þetta
einu sinni enn: Það er undarlegt
réttarfar sem stimplar menn
ótínda glæpamenn og þrjóta
fyrir eitthvað sem ekki er ólög-
legt, en lætur svo menn, stór-
hættulega þjóðfélaginu, hvílast
undir verndarvæng ríkisins.“
Aðdáendur hljómsveitarinnar
verða að gjöra svo vel og bíða
með þeim líka. Þetta hefur
valdið þeim geysilegum von-
brigðum að vita af átrúnaðar-
goðum sinum í fíknilyfjaneyzlu,
og margir hafa snúið við þeim
bakinu. Ef aðdáendunum líkar
PÉRSPARID
MEDÁSKRIFT
ÞÉR GETIÐ SPARAÐ FRÁ KR. 7.50 TIL KR. 15.38 MEÐ ÞVI AÐ
GERAST ASKRIFANDI AÐ VIKUNNI
OG »ÉR ÞEKKIÐ EFNIO:
VIKAN ER HEIMILISBLAD OG f ÞVÍ ERU GREINA R OG EFNI FYRIR ALLA Á HEIMILINU, — UNGA OG
GAMLA, SPENNANDI SÖGUR OG FRÁSAGNIR, FRÓDLEIKUR, FASXIR ÞÆXXIR O.FL., O.FL,
Vinsamlegast sendið mér Vikuna í áskrift
rs
i
i
i
L
4 TÖLUBLÖÐ Kr. 170.00. Hvert blaS á kr. 42.50.
3 MÁNUÐIR - 13 tolubl. - Kr. 475.00. Hvert blaS á kr. 36.58.
6 MÁNUÐIR - 26 tölubl. - Kr. 900.00. Hvert blaS 6 kr. 34.62.
Gjalddagar fyrir 13 tölubl. og 26 tölubl.: 1.' febrúar —
1. ma( — 1. ágúst — 1. nóvember.
SkrifiS, hringiS eSa komið.
PÓSTSTÖÐ
VIKAN
SKIPH0LTI 33
PÖSTH0LF 533
REYKJAVIK
SlMAR:
36720 - 35320
~í
I
I
I
J
2. tbi. VIKAN 43