Vikan


Vikan - 22.01.1970, Blaðsíða 37

Vikan - 22.01.1970, Blaðsíða 37
STJÖRNUSPÁ & HrútsmerkiS (21. marz — 20. aprll): Fjármunir þínir nýtast einstaklega vel. Þú færð góðar fréttir sem vekja hjá þér endurnýjaðan kraft. Útlitið er yfirleitt gott og þú skalt láta hendur standa fram úr ermum. VogarmerkiS (24. september — 23. október): Þú færð fréttir af ættingjum þínum sem koma þér til að undrast, en láttu ekki hafa neinar skoðanir eftir þér þar að lútandi. Láttu ekki bera mikið á þér, starfaðu að málum þínum í ró. m Nautsmerkið (21. aprll — 21. mal): Hafðu fremur hægt um þig, en leggðu áherzlu á störf þín. Ákvarðanir sem þú tekur munu standast vel. Hafðu samráð við fjölskyldu þfna, en ekki vera einstrengingslegur í hugsun. Heillatala er fjórlr. «§►> DrekamerkiS (24. október — 22. nóvember): Þú hefur forystu í fjölskyldunni i ákveðnu máli, en þú verður að taka fullt tiUit til álits annarra. Þú kynnist mönnum sem gætu orðið þér að mlklu Uði, ef þú grípur tækifærin. HeiUadagur er laugardagur. TvlburamerkiS (22. mof — 21. júnQ: Vertu vakandi fyrir viðskiptamálum þínum, mörg tækifæri ættu að gefast í því sambandl. Þú verður fyrir bagalegum töfum og verður að hætta við fyrir- ætlanir þínar. t>ú starfar lítið að félagsmálum. BogmannsmerkiS (23. nóvember — 21. des.): Þú ert bjartsýnn og einkar heppinn við það sem þú hefur fyrir stafni. Margar hendur verða á lofti til að aðstoða þig, ef þú aðeins gefur það í skyn. Reyndu að nota tímann á kvöldin í einkaþarfir. KrabbamerkiS (22. júní — 23. júlf): Leggðu þig fram og reyndu að tileinka þér sem flest af því sem þú sérð í kringum þig. Nokkrar tafir verða á afgreiðslu máls sem þú hefur mikinn áhuga á. Vertu varkár í viðskiptum við hitt kynið. s SteingeitarmerkiS (22. desember — 20. janúar): Sjáðu svo um að þér gefist tími til að fara vel yfir áætlanir þínar og gera þér ljósa grein fyrir stöðu þinni, áður en þú hefst handa. Það er svo að sjá sem þú komir ár þinni kænlega fyrir borð. LjónsmerkiS (24. júlí — 23. ógúst); Vertu vel vakandi gegn tækifærum er varða verzlun og viðskipti. Þú skreppur í ferðaiag sem veitir þér mikla ánægju. Þú færð greidda gamla skuld. Vatnsberamerkið C21. janúar — 19. febrúar): Byrjaðu daginn snemma, þá mun þér verða mikið úr verki. Það kemur sér vel að þú verðir snemma búinn með dagsverkið og getir sinnt öðru. Fjölskyld- an þarfnast krafta þinna meir en endranær. 4f> MeyjarmerkiS (24. ógúst — 23. september): Þú færð gott tækifæri, annað hvort fyrir þig sjálfan persónulega eða fjölskyldu þína. Notaðu kvöldin til að sinna smærri verkefnum, sem þú hefur látið sitja á hakanum. Heillalitur er blár. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Taktu ekki mörg verkefni að þér í einu, leggðu á- herzlu á að ijúka einu áður en þú byrjar annað. Hagaðu störfum þínum svo að þú eigir fri nokkur kvöld og getir létt þér upp. TIL AÐ SPARA YÐUR TfMA OG FYRIRHÖFN Tíminn er yður dýrmætur. Þróunin er f þá itt «8 mynda stórar heildir. ÞaS á líka viS í verzlun, ekki sízt þegar um er að ræða hluti eins og húsgögn, innréttingar, heimilistæki, hillusamstæður, eidhús og barnarúm. Með öSrum orSum: Allt til heimilisins. Allt á einu gólfi, úrvalsvörur eingöngu. Merkin tala sínu máli: Pira-hillusamstæður, Neff-rafmagns- tæki, Dúna-sófasett og dýnur, hlaSrúm og stólar frá Krómhúsgögn. Og þannig mætti lengi telja. Þér veljiS í stofuna, í eldhúsið, í barnaherbergin og húsbóndahergergiS. Allt á einu bretti — allt á sama gólfi. /---------------- HÚS OG SKIP ÁRMÚLA 5 SÍMI 84415 OG 84416 v_______________/ i

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.