Vikan


Vikan - 22.01.1970, Blaðsíða 29

Vikan - 22.01.1970, Blaðsíða 29
Eftir Hjalmar Bergman maðurinn var ungur og dcá- lítið yfirlætisfullur. Hann hló og sagði: „Eg hefi heyrt þetta fyrr. Lofaðu mér inn. Ég stel hvorki né drep. En ég þarf að sofa.“ Hann lét það ekki fæla sig á burt, þótt gamli maðurinn segði honum frá dauðanum í húsinu. Hann ýtti gamla manninum til hliðar og geklc inn í garðinn. Myrkrið var svo svart, að hann gat ekki greint dyrnar á húsinu, svo hann gekk að upplýstum glugganum. Gamli maðurinn fylgdist með honum. Hann sagði, þegar þeir komu að glugganum: „Sjáðu, ég skrökvaði ekki. Þetta er tengdasonur minn, liann er dáinn.“ Rúm stóð í miðju herberg- inu og vissi höfðalagið að glugganum. í því lá dauður maður. Hann var á aldur við unga hérmanninn, en hann var dáinn. Hvíta slæðu hafði hann upp að hálsi. Við liöfða- lagið sat ung kona, naumast fullvaxta. Ilún sat við borð, sem fjögur kerti brunnu á. Hermanninum varð star- sýnna á stúlkuna en dauða manninn. Honum sýndist hún fögur, en þó nokkuð dökk yf- irlitum, og ekki eins geðfelld og unnustan hans lieima. En hvað kom honum þetta annars við. Hann þarfnaðist aðeins svefns. Hann sneri sér að gamla manninum og sagði: „Það hlýtur að vera til rúm i húsinu, eða að minnsta kosti dýna eða eitthvað, sem hægt er að liggja á.“ „svaraði gamli maður- inn. „I hliðarherberginu þarna er uppbúið rúm, sem tengda- sonur minn svaf í áður en hann giftist. En herra, ég segi yður það sjálfs yðar vegna, eins og þér getið líka séð að dauðinn býr í þessu húsi. Ég er gamall maður, og hefi nóg- ar bvrðir að bera.“ Hermaðurinn svaraði: „Karl minn, ég ætla ekki að verða mér um að sofa í rúminu því arna. Það verður ekki neinum til meins, þótt ég liggi í því og ég hlakka til að hvílast aftur milli hvítra lakanna.“ Hann skeytti nú engu mót- mælum gamla mannsins, en gekk að herbergisdyrunum. Gangurinn var niðdimmur, og um annað var ekki að ræða fyrir hann en að opna dyrn- ar að herberginu þar sem kertaljósin fjögur loguðu. En þegar hann hafði einusinni opnað hurðina var það ókurt- eisi að segja ekki hvert erindi hans var. Hann nam hikandi staðar við dyrnar. Unga kon.an stóð upp og hneigði sig. „Pardone Madame,“ sagði hermaðurinn. „Ég er aðeins að leita mér að skýli vfir nótt- ina. Vilduð þér, eða einhver vísa mér til herbergisins, sem mér er ætkað að sofa í.“ „Rúmið er tilbúið. Ég ætla að sækja vatn og Ijós. Það er kalt í því. Viljið þér að ég kveiki upp? Við lögðum allt af í á þessum tíma árs, þegar unnusti minn svaf þar. Við vorum nýgift. Giftumst í sumar.“ Ilermaðurinn tók ofan hjálminn og gekk á tánum að rúminu. Ilonura fannst að hann þyrfti að segja eitthvað og spurði: „IJr hverju dó hann!“ „Hann féll í stríðinu,“ svar- aði hún, og leit nú í fyrsta skipti í augu honum. „Hann dó fyrir tveim dögum. Þeir sögðu, að hann hefði fallið í návígi. Hann var skorinn á háls.“ „Faðir yðar . . .“ byrjaði hann, en hún greip fram í: „Já, ég veit það. Pabbi seg- ir, að hann hafi sýkzt hér í húsinu. Látið þér slíkt ekki hræða yður. Pabbi segir þetta alltaf, því að hann er hrædd- ur um, að ég sleppi mér ella, ef ég hitti einhvern yðar. En ég er ekki svo heimsk. Hver myrti hann? Hvorki einn né annar. Það var stríð- ið.“ Hann gekk fáein skref áfram og leit á dauða marni- inn. Stúlkan laut niður að hon- um og sýndi, hvernig byssu- stingurinn hafði skorið háls- inn sundur. Hermaðurinn hristi höfuð- ið. „Já, það er ekki gaman að sjá þá svona. A meðan það stendur yfir sýnist allt í lagi, en að sjá þá á eftir — og líta þá heima — það reynir á taugarnar. Piltarnir ykkar eru skratti góðir hermenn. Ég var líka í árásinni.“ „Ég veit það,“ sagði stúlk- an. „Pabbi hélt að við mynd- um fá liðsauka, og þeir myndu sækja annarsstaðar fram, en ég vissi, að þeir myndu koma. Eg heyrði herhiðrana ykkar um hádegi. Pabbi vildi, að við fælum okkur, en hvaða. g<agn er að því.“ „Það er rétt,“ kallaði her- maðurinn upp gáskalega, „við gerum engum mein. Það á aðeins að lofa okkur að vera útaf fyrir oklvur — og — en það er mjög fallegt af yður að vera ekki hræddar.“ Hann þagnaði allt í einu og blygðaðist sín fyrir galsann. Honum fannst svo ægilega einmanalegt í þessu óvina- landi, en þá tilfinningu mátti hann ekki láta í ljós við hvern sem var. En sem betur fór virtist honum að lnín væri upptekin af sínum eigin hugs- unum. Hún laut niður að hin- um látna og strauk hár lians og enni, jafn mjúklega og við- kvæmt eins og unnustan gerði við hann, þegar hann var heima. Svo sagði hún: „Við skulum eklci standa hér lengur. Eruð þér ekki svangir?“ Hún fór með hann inn í borðstofuna, kveikti á lamp- anum og lagði dúkinn á borð- ið. Hún tók hjálm hans og Framhald á bls. 39. 4. tbi. YIKAN 29

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.