Vikan


Vikan - 22.01.1970, Blaðsíða 49

Vikan - 22.01.1970, Blaðsíða 49
Kjallaradyrnar opnuðust alveg og í hendingskasti var Eric kom- inn á vettvang, krækti öðrum handleggnum sterklega yfir háls- inn á Rees en ieitaði með hinni hendinni í jakkavasa hans að skammbyssunni. Rétt eins og um væri að ræða vel undirbúið at- riði í kvikmynd, rétti hann mér byssuna utan seilingar Rees. 'Ég tók hana án þess að líta framan í andlit Rees, afmyndað af reiði. — Carol, hringdu í lögregluna, sagði Eric. Ég lagði byssuna frá mér á eld- húsborðið og valdi númerið. Rees róaðist, enda gat hann ekkert að- hafzt í sterkum greipum Erics. — Ef þér viljið vera rólegur, herra Morgan, þá skal ég sleppa yður. ■—• Takk, svaraði Rees kald- hæðnislegri röddu. Ég bað símastúlkuna að hringja á lögregluna og senda nokkra mem til Bellwood. Hlið- ið skyldi verða opnað fyrir þeim. — Það er um morðtilraun að ræða, útskýrði ég. — Við þurf- um líka á lækni að halda. Ég vissi jú ekki í hvernig ásig- komulagi Stephen var. Ég lagði tólið á og sneri mér við. Nú komst ég ekki hjá að horfa framan í Rees. Augu okk- ar mættust þvert yfir herbergið. — Carol, sagði Rees og það var spurnarhreimur í röddinni. — Mér þykir þetta leitt, sagði ég lágt. Þetta var vægt til orða tekið. Ég var milclu meira en leið yfir þeim ósköpum, sem gerzt höfðu hér á Bellwood. Ég var örvænt- ingarfull yfir þessum óskiljan- legu atburðum. — Mér þykir þetta líka leitt, sagði hann. — Því að ég elskaði þig, Carol, og geri enn. Og ein- mitt það gerir allt miklu erfið- ara. Hann var eldsnöggur, svo að Eric áttaði sig ekki í tíma. f einu vetfangi greip hann byssuna af eldhúsborðinu og ég hugsaði með mér, að nú væri stundin komin og dagar mínir og Erics taldir. En í staðinn hljóp hann fram á ganginn og ég hrópaði til Er- ics: — Hann ætlar að fara til Stephens! En einnig sú tilgáta mín reynd- ist röng. Hann fór ekki út úr húsinu, heldur inn í vinnuher- bergi Valeries og læsti sig þar inni. Við stóðum óttaslegin og horfðum á læstar dyrnar. Eric lagði handleggina utan um mig eins og hann vissi, hvað mundi gerast. Um leið og skotið reið af, þrýsti hann mér fast upp að sér eins og hann vildi reyna að koma i veg fyrir að ég heyrði það. Ég stóð þarna með lokuð augun og beit svo fast á vörina, að mig kenndi til; ég beið eftir því að bergmál skotsins dæi út, en það hélt áfram að hljóma í eyrum mínum. Þá heyrði ég rödd Erics yfir höfði mér, og það var ekki ég sem hann var að tala við. — Hvar er Tim? sþurði hann og eins og í fjarska heyrði ég rödd Roberts. — Hann er að leika sér að bátnum sínum í baðkarinu. Ég leit upp stigann og sá hvar Roberts stóð þar, lítill og grann- vaxinn. Þögnin var skelfileg. — Þér skiljið ef til vill hvað hefur gerzt, sagði Eric loks. Hann þagnaði, en hélt síðan áfram: — Það er kannski bezt að þér reynið að hafa ofan af fyriir drengnum eins lengi og þér get- ið. Og Roberts — lokið ekki hús- inu. — Nei, auðvitað ekki, svaraði Roberts með sinni venjulegu hljómlausu röddu. Máttarvana lét ég mig falla á neðsta stigaþrepið og huldi and- litið í hönd im mér. Mér barst til eyrna fuglasöngur og skrjáf í laufi að utan og ég hugsaði með mér, að lífið héldi áfram sinn vanagang, enda þótt einn maður væri ekki lengur í tölu lifenda. Og ef tll vill hafði þetta verið bezta lausnin úr því sem komið var. Eric hafði brugðið sér frá, en kom nú aftur og lagði handlegg- inn utan um mig, en sagði ekk- ert. — Við ættum kannski að fara til Stephens sagði ég eftir eilífð- arþögn. — Við getum kannski hughreyst hann og sagt honum það sem gerzt hefur.... — Við látum lögregluna koma fyrst, sagði Eric. •—• En hver er eiginlega þessi Stephen? Mér fannst erfitt að þurfa að fara að tala um þetta. Mér fannst satt að segja. eins og þetta heyrði alls ekki þessum heimi til og allra sízt Eric. En hjá því varð ekki komizt. Eric átti heimtingu á að fá að vita allan sannleik- ann. Það var jú honum að þakka, að ég var enn á lífi. — Hann var hér, þegar Vale- rie dó. . .. Rees sagði, að hann hefði átt sök á dauða hennar. . . . Hann hefur verið fangi Rees sfð- an þá. .. — Guð minn góður! — Hversu lengi stóðstu á bak við kjallaradyrnar? spurði ég. — Klukkan tíu var ég kominn að hliðinu. Ég hringdi og hringdi, en enginn svaraði. Þá tók ég mig til og klifraði yfir múrinn. Ég var hræddur, Carol. Það segi ég satt, ég hef sjaldan verið jafn hræddur á ævinni. Ég óttaðist mest að eitthvað kæmi fyrir þig, enda munaði mjóu að illa færi. Langt í fjarska heyrðist í sír- enum. — Ég komst inn í eldhúsið, hélt Eric áfram. — En þá heyrði ég rödd hans frammi og faldi mig í snatri í kjallaranum. Hljóðið í sírenunum nálgaðist óðum og ég gekk að veggnum og þrýsti á hnappinn sem opnaði hliðið. — Ég ætla að fara upp til Tims, sagði ég að svo búnu. — Hann er áreiðanlega hissa að heyra í sírenunum. — Reyndu að búa til ein- hverja sennilega skýringu, sagði Eric. — Annars er bezt að ég komi með þér upp og sæki Ro- berts. Hann getur verið mér til trausts og halds hér niðri, þegar lögreglan byrjar að spyrja okk- ur spjörunum úr. Tim lá þurr og nýbaðaður í rúminu sínu. — Ertu ekki ennþá farin, Car- ol? spurði hann strax. — Nei, svaraði ég. — Og ég er hætt við að fara. Hins vegar þurfti pabbi þinn að bregða sér frá. Nú var það ég, sem bar ábyrgð á Tim og ég fann að mér óx ás- megin þegar ég gerði mér ljósa þá staðreynd. Ég gleymdi sjálfri mér um stund og hugsaði ein- vörðungu um Tim. — Já, pabbi barf alltaf að vera að fara eitthvað, sagði hann. Síð- an leit hann hýrlega til Erics. — Þakka þér fyrir bílana. Komstu hingað á bátnum þín- um? — Nei, í þetta skipti kom ég gangandi. Hvar er Roberts? — Hann fór inn í herbergið sitt til þess að taka inn töflu. Honum var svo illt í höfðinu. Allt í einu tók Tim viðbragð í rúminu og varð allur að aug- um og eyrum. — Brunaliðið, kallaði hann upp yfir sig — Ég heyri það svo greinilega núna! Og það er að koma hingað! Er að kvikna í hjá okkur? — Herbergi Roberts er fyrir ofan eldhúsið, sagði ég fljótt við Eric, sem kinkaði kolli og fór. — Þetta er ekki brunabíll Tim, sagði ég. — Þetta er lögreglubif- reið. Síðan talaði ég mig hása um það, að lögreglan yrði að fara í hvert einasta hús til að gæta að, hvort allir hundar væru skráðir. Ég sagði honum sögur af mörgum hundum, sem ég hafði átt og minnlist á, að það væri leiðin- legt, að Tim skyldi ekki eiga neinn hund. Ég tíndi til fötin hans hægt og rólega og reyndi að tefja tímann eins og ég mögu- lega gat. En það var hægara sagt en gert. — Carol, sagði hann ákafur. — Nú eru þeir kannski að fara aftur. Og það áður en ég fæ að sjá þá! Ég gekk fram á ganginn og kíkti niður. Dyrnar á herbergi Valeries voru lokaðar, en lög- reglumaður stóð fyrir utan þær. — Litla drenginn langar til að skoða lögreglubíl, kallaði ég nið- ur til hans. — Fær hann það? Hann leit upp og kinkaði kolli, hikandi þó. Einhver talaði í sima í bóka- herberginu og ég heyrði að hann var að hringja eftir sjúkrabíl. Frá herbergi Valeries heyrðust raddir, og allt virtist skyndilega orðið svo óraunverulegt í húsinu. Ég beið eftir tækifæri til að fá nánari fregnir af atburðunum. Ég náði sem snöggvast tali af Eric nokkru síðar og reyndi að spyrja hann undir rós, svo að Tim skildi ekki hvað um væri að vera. Við stóðum úti í sólskin- inu og Tim skoðaði lögreglubíl- inn í krók og kring — Hvernig var? spurði ég. — Ekkert hægt að gera. Læknirinn er nú að sinna hinum. — Og maðurinn í steinhúsinu? — Það eru tveir menn þar nið- ur frá núna. En ég sá á svip Eric að hann bjó yfir einhverju og þurfti að segja mér eitthvað, sem ég vissi ekki. Hann þurfti ekki að ljúka setningunni til þess að ég skildi, hvað klukkan sló. —- Roberts er .. . Nokkurs kon- ar eitrun.... Það var sannkallaður léttir er við vorum, Tim og ég, í bíl Er- ics á leiðinni til Somerset, — burt frá Bellwood og allri þeirri martröð, sem þar hafði gerzt. Við vorum á leið til Helen og Marks, þar sem Tim mundi í fyrsta sinn eignast leikfélaga og fá að njóta frelsis eins og önnur börn. Við komumst ekki hjá því að koma einu sinni aftur til Bell- wood. Staðurinn vakti óhugnað í brjósti mér, og ég hefði aldrei þorað að dveljast þar stundinni lengur, ef ég hefði ekki verið í traustri fylgd Erics. Allt var raunar liðið. en þó fannst mér andi Rees svífa hvarvetna yfir vötnunum, iafnt úti sem inni á þessum skuggalega stað. Roberts. Ég fékk að vita ofur- lítið meira um hann hjá systur hans, sem kom til að annast út- för bróður síns. Hann hafði orðið vitni að morði, sem fyrr- verandi húsbóndi hans framdi án þess að upp kæmist og síðan lifað í stöðugum ótta við, að hon- um yrði kennt um það. Systirin áleit, að ótti hans hefði verið að mestu ástæðulaus, því engan hefði getað grunað, að Roberts hefði verið valdur að ódæðinu. í einangruninni á Bellwood hafði hann talið sig óhultan og öruggari en annars staðar. Rees vissi allt um Roberts og færði sér það í nyt. Hann hafði keypt þögn hans og trúnað með því að lofa hinu sama í staðinn. Og Stephen. Við Eric heim- sóttum hann á sjúkrahús nokkr- um dögum síðar. Hann var fölur og grindhoraður. en heilsa hans fór jafnt og þétt batnandi, og hann var nú orðinn nokkuð hress. Okkur lék hugur á að vita sann- leikann um dauða Valeries og það sem olli ósköpunum á Bell- wood. -— Ég átti ekki sök á því sem gerðist, sagði hann. — Og Valerie ekki heldur. Valerie hætti að skrifa mér. Nokkru síðar flaug ég til Bangor og hélt þaðan til 4. tw. yiKAN 49

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.