Vikan - 22.01.1970, Blaðsíða 8
BIBLÍAN
RIT HENNAR (MYNDUM OG TEXTA
BIBLÍAN — RIT HENNAR I MYNDUM
OG TEXTA er falleg myndabók í alþjóða-
útgáfu. Myndirnar, sem danska listakon-
an Bierte Dietz hefur gert, eru litprentað-
ar í Hollandi, en textinn er prentaður hér-
lendis. Magnús Már Lárusson, háskóla-
rektor, hefur annazt útgáfuna og ritar inn-
gang og ágrip af sögu íslenzkra Biblíuþýð-
inga frá upphafi. — Þetta er vönduð og
glæsileg myndabók, sem hefur að geyma
nýstárlega túlkun á Heilagri ritningu.
Fæst hjá næsta bóksala
HILMIR HF. SKIPHOLTI 33
PÖSTHÓLF 533 SÍMI 35320 REYKJAVÍK
Draumur úr
stríSinu ...
Kæri draumráðandi!
Mig langar að biðja þig að
ráða fyrir mig draum, sem mig
dreymdi fyrir skömmu síðan, en
hann veldur mér nokkrum
áhyggjum. Hann er á þessa leið:
Mér finnst ég vera Bandamað-
ur í síðari heimsstyrjöld og vera
stödd í hýzkum smábæ með vin-
konu minni, en bærinn var á
okkar valdi. Við bjuggum í
bragga ásamt fleiri sjálfboðalið-
um. Mig og vinkonu mína lang-
ar að eiga eitthvað til minning-
ar um þennan bæ, svo við förum
í minjagripaverzlun eina og
stöldrum þar lengi við og skoð-
um. Þar inni hitti ég unnusta
minn en hann var sjálfboðaliði
eins og ég. Okkur fannst nú allt
vera of dýrt það sem okkur lang-
ar í, svo við ætlum út, en þá
koma til okkar tvær þýzkar
stúlkur og segjast ætla að sýna
okkur aðra slíka verzlun, og
segja að þar munum við örugg-
lega finna eitthvað við okkar
hæfi. En um leið og við erum
að fara út úr búðinni tekur önn-
ur stúlkan grátt hárnet af grind
og setur í vasa minn. Á leiðinni
í verzlunina sér svo hin stúlkan
hárnetið í vasa mínum og tekur
það upp, en þá er rauðleit flétta
innan í netinu. Stúlkurnar verða
nú mjög hneykslaðar á mér að
stela þessu og er ákveðið að önn-
ur þeirra skuli hringja í verzlun-
ina og skila svo þessu, því okk-
ur fannst það mundi vera betra
að Þjóðverji skilaði þessu held-
ur en ég. og vorum við öll hjart-
anlega sammála. Stúlkan hring-
ir svo úr búðinni í eigandann, en
hann gerir lítið úr þessu öllu og
segir að þetta skipti engu máli.
Þessar dömur tvær áttu þessa
verzlun og verða hálf súrar þeg-
ar ég og unnusti minn kveðja án
þess að kaupa nokkuð.
Nú erum við á leiðinni í bragg-
ann okkar, en á leiðinni hittum
við bróður unnusta míns og hans
kærustu, og slást þau í förina.
Allt í einu kemur bíll á miklum
hraða og stanzar við hliðina á
okkur. Út úr bílnum kemur mað-
ur með byssusting ög rekur í
bakið á kærasta mínum og í
gegn, ræðst svo á bróður hans
og stingur hann oft, en á meðan
kom annar bíll og starizar og dró
ég unnusta minn bak við þann
bíl og breiði snjó yfir okkur.
Þegar þessi óði maður fer svo,
fer ég með kærastann inn í hinn
bílinn og við keyrum burt. Bróð-
irinn og stúlkan hans urðu eftir.
Við keyrum svo að einhverjum
skemmtistað og þurfti ég að fara
inn með ökumanninum, og farinst
mér þetta gert bæði til að vekja
ekki grun og til að sækja iækni.
Ökumaðurinn, se mer Þjóðverji
á okkar bandi, segir að þessi óði
maður sé SS-maður Þegar við
komum inn fer ökumaðurinn að
tala við fólk sem er í glerher-
bergi og er fólkið allt hálf-nakið,
en ég sit á stól í miðju öðru her-
bergi. Úg er klædd grænleitum
einkennisbúningi og er hálf
snöktandi og finnst mér fólkið
vera að gera grín að mér og ég
er að þurrka mér og smá mjaka
mér úr einkennisbúningnum til
að fólkið sjái ekki að ég er
Bandamaður. Draumurinn endar
svo á því að ökumaðurinn, ég
og einn hálfber maður sem er
læknir erum á leiðinni út að
hjálpa unnusta mínum, en ég
vissi í rauninni aldrei hvort hann
var dáinn eða lifandi.
Eg þakka fyrirfram, er þú ræð-
ur fyrir mig drauminn.
Ein áhyggjufull.
P.S. Úg vona að þú birtir ráðn-
inguna, þó nafn fylgi ekki bréf-
inu, en mér er verr við að geta
þess.
Þetta er einn af þessum löngn og
viðhurðaríku draumum, þegar
hugurinn líkt og losnar úr viðj-
um og ímyndunaraflið fær al-
gjörlega Iausan tauminn. Drauma
af þessu tagi þekkja flestir, sem
eitthvað dreymir á annað borð.
Hins vegar er mjög erfitt að ráða
slíka drauma og þeir boða sjaldn-
ast neitt sérstakt, að dómi þeirra
sem draumspakir kallast. Það eru
aðallega stuttir og einfaldir
draumar, sem hægt er að ráða.
Hins vegar viljum við eindregið
hvetja lesendur til að segja okk-
ur alla drauma sína hvernig sem
þeir eru. Við getum kannski ekki
komið því við að ráða þá, en
enginn draumur er svo ómerki-
legur, að 'hann sé ekki verður
athygli um hið undarlega og tor-
ráðna svið hugans: — Varðandi
drauminn, sem birtur er hér að
framan, er ástæðulaust fyrir
dreymandann að hafa áhyggjur
af honum. Hann er líklega til
orðinn eftir lestur stríðssögu eða
eftir ógnvekjandi mynd úr síð-
ari heimsstyrjöldinni í sjónvarp-
inu. Það er algengt, að hugurinn
haldi áfram að „vinna úr“ því í
svefni, sem í hann var látið í
vöku, ef svo má að orði komast.
8 VIKAN
4. tbl.